Hluti af leiðréttingunni fer til fólks sem borgar ekki skatta hérlendis og skuldar ekkert á Íslandi

Hluti leið­rétt­ing­ar­innar fer til ein­stak­linga sem borg­uðu ekki skatt hér­lendis og áttu engar skuldir á Íslandi árið 2013. Auk þess verða alls 5,8 millj­arðar króna greiddir sem sér­stakur per­sónu­af­sláttur til umsækj­enda sem eru ekki lengur að greiða af fast­eigna­lánum, annað hvort vegna þess að þeir hafa þegar greitt upp fast­eigna­lán sín eða eru ekki lengur með slík. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um skýrslu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um lækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra lána, sem birt var á mánu­dag.

Í skýrsl­unni voru birtar ýmsar skýr­ing­ar­myndir sem sýndu skipt­ingu þess fjár sem rík­is­sjóður greiðir í aðgerð­ina milli ald­urs- og tekju­hópa og lands­svæða.

Kjarninn kall­aði eftir frek­ari upp­lýs­ingum um töl­urnar að baki skýr­ing­ar­mynd­unum og fékk þær afhentar síð­degis á mánu­dag. Samkvæmt þeim er heild­ar­upp­hæð þess sem hefur verið ráð­stafað inn á höf­uð­stólslækk­anir ein­ungis 69,7 millj­arðar króna, ekki 80,4 millj­arðar króna líkt og heild­ar­upp­hæð leið­rétt­ing­ar­innar er. Því vant­aði útskýr­ingar á 10,7 millj­arða króna útgjöldum í skýr­ing­ar­mynd­unum.

Ekki greint frá skiptingu persónuafslátts milli hópa


Kjarninn óskaði eftir skýr­ingum á þessu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Þær bár­ust í dag. Samkvæmt þeim skýrist mis­ræmið á töl­unum sem settar eru fram í skýr­ing­ar­mynd­unum, og þeirri 80,4 millj­arða króna tölu sem á að fara í leið­rétt­ing­una, á því að um 5,8 millj­örðum króna var ráð­stafað í sér­stakan per­sónu­af­slátt í gegnum skatt­kerfið, til „ein­stak­linga sem sóttu um og fengu lækkun höf­uð­stóls en eiga ekki fast­eign í dag“. Þeir sem eru búnir að greiða niður hús­næð­is­lán sín, en upp­fylltu samt sem áður skil­yrði til að fá leið­rétt­ingu, fá einnig greitt með sér­stökum per­sónu­af­slætti.

Í skýrslu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra er ekki greint frá því hvernig þessir tæpir sex millj­arðar króna skipt­ast milli ald­urs- og tekju­hópa né lands­svæða. Kjarninn hefur kallað eftir upp­lýs­ingum um þá skipt­ingu.

Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að það sem út af stendur, um 4,8 millj­arðar króna, teng­ist meðal ann­ars því að aðilar sem hafi ekki fengið birt­ingu á leið­rétt­ingu sinni og aðilar sem sam­þykktu ekki ráð­stöfun lækk­unar innan settra tíma­marka, séu ekki teknir með í grein­ing­unni. Það sem út af standi, að teknu til­liti til þess hóps, teng­ist því að„í grein­ing­ar­kafla skýrsl­unnar eru umsækj­endur sem ekki voru fram­tals­skyldir á Íslandi 2013 utan við úrtakið og því stemma ekki ráð­staf­aðar fjár­hæðir við upp­reikn­aðar heild­ar­fjár­hæðir á bak­við grein­ing­arnar.“ Því er hluti þeirra sem fær greitt úr leið­rétt­ing­unni, ein­stak­lingar sem borga ekki skatta né skulda nokkuð á Íslandi, og skila því ekki skatt­fram­tali hér­lendis. Þessi hópur getur hvorki fengið greitt inn á höf­uð­stól, þar sem hann hvorki á né skuldar af fast­eign, né sér­stakan per­sónu­af­slátt, þar sem hann greiðir ekki skatta á Íslandi.

Tölurnar ekki brotnar niður


Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur ekki fram hvernig þessir 4,8 millj­arðar króna skipt­ast á milli ofan­greindra hópa en í skýrsl­unni er til­greint að 91,9 pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni, 80,4 millj­örðum króna, eigi að renna inn á höf­uð­stól lána, eða alls 73,9 millj­arðar króna. Það þýðir að um fjórir millj­arðar króna til við­bótar eigi eftir að greið­ast inn á lán þeirra sem hafa ekki fengið birt­ingu á leið­rétt­ingu sinni eða hafa ekki sam­þykkt hana innan settra tíma­marka. Raunar er því fólki í sjálf­vald sett hvort það sam­þykki greiðsl­una. Miðað við þessar for­sendur, sem til­greindar eru í skýrsl­unni, fara áum 700 millj­ónir króna til ein­stak­linga sem voru ekki fram­tals­skyldir á Íslandi árið 2013.

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um skýrslu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, frá því að hún kom út á mánu­dag. Hægt er að sjá hvernig þeir 69,7 millj­arðar króna sem greiddir voru inn á höf­uð­stól lána eftir ald­urs- og tekju­hópum og lands­svæðum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár