Höfuðborgarsvæðið fékk 72 prósent leiðréttingarinnar en landsbyggðin 28 prósent

Tæplega 72 pró­sent af þeim fjár­munum sem varið var til lækk­unar á höf­uð­stól þeirra sem voru með verð­tryggð lán á árunum 2008 og 2009, hin svo­kall­aða leið­rétt­ing, fór til heim­ila í Reykja­vík og á Suð­vest­ur­landi. Alls eru lands­menn 329 þús­und tals­ins og af þeim búa rúm­lega 211 þús­und á þessum tveimur lands­svæðum eða 64 pró­sent.

Því rann um 72 pró­sent leið­rétt­ing­ar­innar til svæða þar sem 64 pró­sent íbúa lands­ins búa eða 28 pró­sent hennar til lands­byggð­ar­innar, þar sem 36 pró­sent hennar búa.

Ef þeim 50,1 millj­arði króna yrði dreift á alla íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins myndi hver og einn fá um 237 þús­und krónur. Ef þeim 19,7 millj­arðar króna sem fóru til lands­byggð­ar­innar í leið­rétt­ing­unni myndu dreifast á alla íbúa hennar fengi hver og einn þeirra um 167 þús­und krónur.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um lækkun á höf­uð­stól verð­tryggðra hús­næð­is­lána sem var gerð opin­ber í gær. Athygli vekur að í þeim skýr­ing­ar­myndum um skipt­ingu leið­rétt­ing­ar­innar á milli hópa er heild­ar­upp­hæðin tæp­lega 70 millj­arðar króna, en ekki 80,4 millj­arðar króna líkt og hún á að vera sam­kvæmt skýrsl­unni. Kjarninn hefur óskað eftir upp­lýs­ingum um hvað valdi þess­ari skekkju og verið er að vinna svar við fyr­ir­spurn­inni í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Frétt um það verður birt þegar svarið berst. Vert er að taka fram að allar tölur sem birtar eru í þess­ari sam­an­tekt sýna ein­ungis skipt­ingu á milli þeirra sem fengu leið­rétt­ingu, um 94 þús­und manns. Aðrir Íslend­ingar, sem fengu hana ekki, koma ekki fyrir í töl­unum.

Yngri skulda meira en fengu minna

Þegar horft er á skipt­ingu millj­arð­anna 70 milli ald­urs­hópa kemur fram í skýrsl­unni að þeir sem eru 35 ára og yngri fengu 4,4 millj­arða króna, eða 6,4 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar. Þeir sem eru eldri en 46 ára fengu 68,4 pró­sent hennar, sam­tals um 47,7 millj­arða króna.

Með­al­eft­ir­stöðvar hús­næð­is­skulda eru mun hærri hjá þeim sem fengu leið­rétt og eru undir 45 ára aldri, en þeim sem eru yfir þeim aldri. Að með­al­tali skuld­aði leið­réttur aðili undir 45 ára að með­al­tali 19,8 millj­ónir króna í hús­næð­is­lán. Þeir sem voru eldri en 45 ára skuld­uðu um 15,3 millj­ónir króna að með­al­tali. Samt fór ein­ungis 31,6 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar til yngri hóps­ins.

Tvær af hverjum þremur krónum til hinna tekjuhærri


Í skýrsl­unni eru einnig birtar upp­lýs­ingar um hvernig leið­rétt­ingin skipt­ist milli tekju­hópa. Samkvæmt því fær tekju­hærri helm­ingur þeirra sem fá leið­rétt­ingu 62 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar en þeir tekju­minni 38 pró­sent hennar. Þeir sem þéna meira skulda þó einnig meira en hinir tekju­lægri. Alls er með­al­tal eft­ir­stöðvar hús­næð­is­skulda um 15 millj­ónir króna hjá tekju­lægri helm­ingi leið­réttra Íslend­inga en um 19,6 millj­ónir króna hjá tekju­hærri helm­ingnum.

Tveir tekju­hæstu hóp­arnir, þar sem árs­tekjur heim­ila eru frá 14 til 21,2 millj­ónir króna ann­ars vegar og yfir 21,2 millj­ónir króna hins vegar, fá sam­tals 29 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar, en sá hópur er 22 pró­sent þeirra sem fá leið­rétt­ingu.

Fjórðungur þeirra sem greiddu auðlegðarskatt leiðréttir

Í skýrsl­unni kemur fram að 1.250 heim­ili sem sem greiddu auð­legð­ar­skatt vegna árs­ins 2013 hafi fengið höf­uð­stólslækkun. Alls nam upp­hæðin sem rann til þessa hóps um 1,5 millj­örðum króna. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem fram koma í skýrsl­unni eru þetta fjórð­ungur þeirra sem greiddu auð­legð­ar­skatt, en það gerðu allir ein­stak­lingar sem eiga meira en 75 millj­ónir krónur í hreina eign og hjón sem eiga meira en 100 millj­ónir króna í hreina eign. Auð­legð­ar­skattur hefur nú verið aflagður, en sam­tals námu tekjur rík­is­ins af honum og við­bót­ar­auð­legð­ar­skatti á hluta­bréfa­eign 10,9 millj­örðum króna vegna árs­ins 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár