Már Guðmundsson: Varar við of miklum arðgreiðslum úr viðskiptabönkunum

Þótt staða íslensku við­skipta­bank­anna sé, að því er virð­ist, góð í öllum sam­an­burði er staðan ekki jafn björt þegar dýpra er kafað. Annars vegar er fjár­mögnun þeirra að hluta til varin af fjár­magns­höftum og hins vegar má rekja stóran hluta af hagn­aði þeirra á árinu 2014 til end­ur­mats eigna og ann­arra ein­skipt­isliða á borð við sölu eigna. Afkoma af grunn­rekstri þeirra er mun veik­ari.

Þetta kemur fram í for­mála Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra í nýjasta ein­taki af rit­inu Fjár­mála­stöð­ug­leika, sem var birt í dag. „Við núver­andi aðstæður er því var­huga­vert að veikja við­náms­þrótt bank­anna um of með veru­legum arð­greiðslum,“ segir Már.

Íslensku við­skipta­bank­arnir þrír sem reistir voru á grunni föllnu bank­anna, Lands­bank­inn, Arion banki og Íslands­banki, hafa hagn­ast mjög frá hruni. Alls nemur sam­an­lagður hagn­aður þeirra frá því að þeir voru settir á fót um 370 millj­örðum króna. Lands­bank­inn er í raun eini bank­inn sem má og getur greitt eig­endum sínum arð sem þeir geta ráð­stafað. Hann er að langstærstu leyti í eigu íslenska rík­is­ins en starfs­menn Lands­bank­ans eiga auk þess lít­inn hlut. Vegna árs­ins 2013 greiddi bank­inn rík­inu 20 millj­arða króna í arð og mun greiða því 24 millj­arða króna á þessu ári.

Arion banki og Íslands­banki eru að stærstu leyti í eigu þrotabú Kaup­þings og Glitnis. Ríkið á síðan lít­inn hlut í hvorum þeirra, þrettán pró­sent í Arion banka og fimm pró­sent í Glitni. Arð­greiðslur þeirra fara að stærstum hluta til í þrotabú sem enn á eftir að slíta.

Eign kröfuhafa í nýju bönkunum metin á 316 milljarða


For­mál­inn fjallar að mestu um hvernig megi varð­veita við­náms­þrótt þjóð­ar­bús og fjár­mála­kerfis í aðdrag­anda los­unar fjár­magns­hafta, en til­kynnt hefur verið að skref í þá átt verði stigin í nán­ustu fram­tíð. Már fer yfir þau vanda­mál sem þarf að takast á við áður en að hægt sé að losa höft og þær stærðir sem við er að etja. Mest munar þar um eignir erlendra kröfu­hafa fall­ina banka sem tej­ast sem íslenskar eignir. Þær nema nú um 910 millj­örðum króna. Þar af nemur eign slita­búa í Arion banka og Íslands­banka 316 millj­örðum króna. Til við­bótar nema skamm­tímakrónu­eignir erlendra aðila 291 millj­arði króna.

Már segir stöðu stóru við­skipta­bank­anna þriggja, Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka, að mörgu leyti vera sterka og að hún hafi batnað enn frekar á síð­asta ári. Arðsemi heild­ar­eigna þeirra hafi numið 2,7 pró­sentum, sem telj­ist gott í alþjóð­legum sam­an­burði, eigið fé sé með því hæsta sem ger­ist í nágranna­lönd­unum og lausa­fjár­staðan sé einnig mjög sterk. Þá sé fjár­mögn­un­ar­þörf þeirra í erlendum gjald­miðlum á næstu árum mjög hóf­leg.

Þeir þurfi aðeins að taka erlend lán sem nemi um 30 millj­örðum króna á ári næstu ár til að end­ur­fjár­magna afborg­anir og að halda sér fyrir ofan lág­marks­kröfur Seðla­bank­ans um lausa­fjár­stöðu í gjald­eyri. Bank­arnir hafa allir getað sótt slíka fjár­mögnun á mark­aði. Til dæmis tók Arion banki erlent lán í evrum upp á 45 millj­arða króna í mars síð­ast­liðnum.

Varhugavert að veikja viðnámsþrótt með arðgreiðslum


Már segir hins vegar að þegar dýpra sé kafað sé myndin ekki að öllu leyti eins björt og virð­ist við fyrstu sýn. „Þar kemur tvennt til. Annars vegar er fjár­mögnun bank­anna að hluta til varin af fjár­magns­höftum. Hins vegar mátti rekja stóran hluta hagn­aðar bank­anna á síð­asta ári til end­ur­mats eigna og ann­arra ein­skipt­isliða en und­ir­liggj­andi afkoma af grunn­rekstri er eins og áður er nefnt mun veik­ari. Við núver­andi aðstæður er því var­huga­vert að veikja við­náms­þrótt bank­anna um of með veru­legum arð­greiðslum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár