Landsbankinn ætlar að selja meirihlutann af eign sinni í Reitum

Lands­bank­inn hefur ákveðið að selja tíu pró­sent hlut í fast­eigna­fé­lag­inu Reitum, en bank­inn á alls um 18 pró­sent hlut í félag­inu. Hlut­ur­inn verður seldur í gegnum mark­að­við­skipti bank­ans og lág­marks­gengi í útboð­inu verður 63 krónur. Reitir voru skráðir á aðal­markað í lok síð­ustu viku í kjöl­far þess að Arion banki seldi 13,25 pró­sent hlut í félag­inu í gegnum útboð sem fyr­ir­tækja­ráð­gjöf fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs Arion banka hafði umsjón með. Meðla­gengi seldra hluta í því útboði var tæp­lega 63,9 krónur á hlut en eft­ir­spurn eftir hluta­fénu var fjör­föld.

Til­boðs­frestur í útboði á tíu pró­sent hlut Lands­bank­ans rennur út klukkan 16 á mið­viku­dag. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Lands­bank­anum til kaup­hall­ar­innar sem birt var eftir lokun mark­aða í dag.

Skráð gengi á hlutum í Reitum í lok dags í dag var 63,5 krónur á hlut.

Eignarhaldið bundið tímatakmörkum


Eign­ar­hald stóru við­skipta­bank­anna á hlutum í Reitum hefur verið nokkuð mikið til umræðu innan fjár­mála­heims­ins að und­an­förnu.

Yfirlýst stefna allra við­skipta­bank­anna er enda að selja eignir í óskyldum rekstri sem fyrst. Í starfs­reglum Eigna­bjargs, dótt­ur­fé­lags Arion banka sem heldur á hlut hans í Reitum, segir að félagið skuli „eftir fremsta megni haga því svo að eigna­halds­tími þess á fyr­ir­tækjum í eigu félags­ins vari í eins skamman tíma og hægt er“. Íslands­banki hefur gefið það út opin­ber­lega að hann leit­ist við að selja eignir í óskyldum rekstri enda sé „ekki stefna bank­ans að eiga slíkar eignir til lengri tíma“. Í útgef­inni stefnu Lands­bank­ans um sölu fulln­ustu­eigna segir að stefnt sé að því að selja þær „eins fljótt og unnt er að teknu til­liti til mark­aðs­að­stæðna“.

Auk þess er eign­ar­hald bank­anna á Reitum skil­yrt sátt sem þeir, og þrotabú Glitnis, gerðu við Sam­keppn­is­eft­ir­litið 30. apríl 2010. Samkvæmt henni veitti eft­ir­litið þeim tíma­frest til að minnka eign­ar­hald sitt í Reitum. Um þessa sátt, og hvernig henni hefur verið fylgt eftir, segir í skrán­ing­ar­lýs­ingu Reita hún hafi að stórum hluta gengið eftir með „þynn­ingu við end­ur­fjár­mögnun útgef­anda í árs­lok 2014 og með sölu þeirra á hluta­bréfum í kjöl­far end­ur­fjár­mögn­unar. Því til við­bótar minnkar eign­ar­haldið í fyr­ir­hug­uðu útboði sem verð­bréfa­lýs­ing þessi tekur til. Ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um frek­ari sölu­skyldu á hlutum í útgef­anda. Ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um hvort og þá hvenær eða með hvaða hætti selj­andi í útboð­inu eða aðrir í hópi stærstu hlut­hafa hans áformi að selja þá eign­ar­hluti sem þeir munu eiga eftir að útboð­inu lýkur.“

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, vildi ekki tjá sig um málið umfram það sem fram kom í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni þegar Kjarninn leit­aði eftir því í lok mars. Þar segir að „tíma­tak­mörk á sölu eign­ar­hluta í útgef­anda [Reitum] sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur veitt aðilum að sátt[…] yrði fram­lengd til 31. maí 2015“. Páll Gunnar vildi ekki tjá sig um hvort ein­hver við­bótar sölu­skylda hvíldi á við­skipta­bönk­unum þremur fram að þeim tíma­tak­mörk­unum.

Vildu ekki tjá sig um áformin


Í ljósi þeirra svara beindi Kjarninn fyr­ir­spurn til Lands­bank­ans þar sem hann var spurður af því hvað hafi valdið að hann hafi ekki selt hluti í útboð­inu sem ráð­ist var í fyrir skrán­ingu Reita á markað.

Kristján Krist­jáns­son, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bank­ans, sagði þá að bank­inn myndi vinna í sam­ræmi við þá sátt sem gerð var við Sam­keppn­is­eft­ir­litið á árinu 2010 vegna eign­ar­halds­ins á Reitum, en gild­andi tíma­frestur vegna hennar rennur út 31. maí næst­kom­andi. Að öðru leyti vildi bank­inn ekki tjá sig um áform sín á mark­aði „enda væru það upp­lýs­ingar sem alltaf myndu telj­ast verð­mót­andi“. Nú hefur hann hins vegar til­kynnt um að meiri­hluti af eign­ar­hlut bank­ans sé til sölu.

Risastórt fasteignafélag


Eigna­safn Reita saman stendur af mörgum af verð­mæt­ustu fast­eignum lands­ins. Mik­il­væg­asta ein­staka eign félags­ins er Kringlan en félagið á einnig margar verð­mætar eignir mið­svæðis í Reykja­vík. Félagið á stórt eigna­safn í versl­un­ar­hús­næði til við­bótar við Kringl­una, t.d. Holta­garða, Spöngina, Mjóddina og Eiðis­torg. Þá á félagið t.a.m. tvær stórar Icelandair hót­el­eignir; Hilton Reykja­vík hótel og Icelandair Natura.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár