Makrílkvóta úthlutað varanlega...eða næstum því

Sigurður Ingi Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra lagði fram frum­varp á Alþingi um úthlutun á mak­ríl­kvóta rétt fyrir páska sem við­búið er skapi nokkrar deilur á Alþingi, enda skiptar skoð­anir um það hjá stjórn­mála­mönnum hvernig stjórn fisk­veiða á að vera. Þá eru hags­mun­irnir sem undir eru gríð­ar­lega miklir, og það hvernig að þessu verður staðið núna getur markað veg­inn til fram­tíðar þegar kemur að mak­ríl­veiðum, líkt og var raunin með lög­fest­ingu kvóta­kerf­is­ins. Heild­ar­tekjur af mak­ríl hafa verið um og yfir 20 millj­arðar á ári, síð­ustu árin.

Samkvæmt frum­varp­inu verður afla­hlut­deildum (kvóta) úthlutað niður á skip í áþekkum hlut­föllum og á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári. Enda byggir úthlut­unin á núver­andi fisk­veiði­ári á veiði­eynslu fyrri ára. Útgerðir skipa og báta sem hafa afla­reynslu frá árunum 2011-2014 fá afla­hlut­deild í mak­ríl úthlutað. Hömlur eru á við­skiptum með afla­heim­ildir. Framsal verður óheim­ilt en til­flutn­ingur milli skipa innan sömu útgerðar verður heimil. Þetta þýðir að mak­ríl­kvót­inn mun ekki geta gengið kaupum og sölum á milli útgerða líkt og tíðkast með aðrar teg­undir innan kvóta­kerf­is­ins. Í það minnsta ekki fyrst um sinn.

Í mak­ríl­frum­varpi ráð­herra verður kvóta­skipt­ing eft­ir­far­andi:


  1. a) 90% til báta/skipa sem hafa afla­reynslu frá árunum 2011-2014 (upp­sjávar-, frysti- og ísfisk­skip).

  2. b) 5% til smá­báta sem veitt hafa mak­ríl með línu eða hand­færi á árunum 2009-2014.

  3. c) 5% til fiski­skipa í flokki a) sem unnu sér­stak­lega í mann­eld­is­vinnslu.


Á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári, líkt og á fisk­veiði­ár­unum þar á undan, var mak­ríl­kvót­anum skipt niður á skip í upp­sjávar-, frysti- og ísfisk­skipa­flokkum. Frá árinu 2009 hefur mak­ríl­veiðum verið stýrt með útgáfu veiði­leyfa sem gilt hafa í eitt ár í senn á grund­velli reglu­gerða. Í smá­báta­flokknum er hins vegar „ólympískt“ fyr­ir­komu­lag, þ.e.a.s. bátar með sér­út­búin veið­ar­færi geta veitt frjálst þangað til heild­ar­kvóta smá­báta er náð.

Tímabundin úthlutun


Öfugt á við fyrri kvóta­setn­ingar á öðrum teg­undum innan lög­sög­unnar (sbr. þegar kvóta­kerfið var sett á lagg­irnar árin 1983 og 1984) verður mak­ríl­kvót­anum ekki úthlutað var­an­lega til langs tíma heldur er farin hálf­gerð milli­leið og kvót­anum úthlutað til sex ára með fram­leng­ing­ar­á­kvæði. Í athuga­semdum með frum­varp­inu kemur fram að í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar komi fram að samn­ings­bundin rétt­indi um nýt­ingu afla­heim­ilda eigi að taka við af var­an­legri úthlutun. Því sé mik­il­vægt við hlut­deild­ar­setn­ingu nýrra stofna að kveða skýrt á um úthlutun tíma­bund­inna rétt­inda. Þá kemur einnig fram að meiri óvissa sé um mak­ríl­veiðar en um aðra stofna vegna stuttrar afla­reynslu. Auk þess er rætt um að ósamið sé um mak­ríl­veiðar við aðrar þjóðir. Loks kemur fram að til­teknar útgerðir hafi stefnt rík­inu vegna „rangrar“ úthlut­unar í mak­ríl. Þetta er rök­semda­færslan í frum­varp­inu fyrir tíma­bund­inni úthlutun.

Stórútgerðir hljóta að fagna


Þessi sex ára gild­is­tími virkar þannig að kvót­anum er úthlutað strax til útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna til sex ára. Afla­hlut­deildin (kvót­inn) fram­leng­ist sjálf­krafa um eitt ár í senn nema lögum verði breytt. Í frum­varp­inu kemur jafn­framt fram að kvót­inn falli ekki niður að hluta eða öllu leyti með minna en sex ára fyr­ir­vara. Þannig hafa útgerðir trygg­ingu fyrir því á hverjum tíma að halda sínum hlut­deildum næstu sex ár. Útgerð­ar­fyr­ir­tækin hafa því alltaf sex ár að lág­marki fyrir framan sig áður en til breyt­inga kemur. Til dæmis þýðir þetta að ef ríkið til­kynnir árið 2021 að það hygg­ist breyta fyr­ir­komu­lagi á úthlutun á mak­ríl­kvóta mun sú breyt­ing ekki geta átt sér stað fyrr en árið 2027. Á manna­máli þýðir þetta að kvót­anum hefur hálf­vegis verið úthlutað var­an­lega og laga­leg staða þeirra útgerða sem fá hlut­deild núna verður mun sterk­ari miðað við þá stöðu sem nú er fyrir hendi með árlegri úthlutun byggða á reglu­gerðum til eins árs. Á heild­ina litið er þessi kvóta­setn­ing jákvæð fyrir stóru sam­settu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin sem hafa mest stundað mak­ríl­veið­arnar. Fyr­ir­tæki eins og HB Grandi, Ísfélag Vest­manna­eyja, Síld­ar­vinnslan, Vinnslu­stöðin, Skinney, Eskja, Huginn, Gjögur og Samherji munu öll fá háa hlut­deild í kvót­anum enda hafa þau veiði­reynslu.

Makrílkvóti mikils virði


Líkt og Kjarninn hefur áður bent á er verð á afla­heim­ildum í mik­il­væg­ustu teg­undum innan lög­sög­unnar hátt. Verð á þorsk­kvóta er að lág­marki 2.500 kr/kg um þessar mundir. Verð á ýsu­kvóta er einnig mjög hátt. Þorskígild­is­stuð­ull mak­ríls er 0,41. Miðað við verð á þorsk­kvóta gæti verð­mið­inn á heild­ar­makríl­kvót­anum verið um 150 millj­arðar. Vegna þess hve gild­is­tími afla­hlut­deild­ar­innar er stuttur er þó lík­legt að virðið sé lægra. En þó er ekki gott að segja, þar sem arð­semin í mak­ríl­veiðum, vinnslu og sölu hefur verið mikil, og mun meiri hlut­falls­lega heldur en í þorsk­inum.

Makríll næst verðmætasta tegundin árið 2014


Árið 2014 var mak­ríll næst verð­mætasta teg­undin innan lög­sög­unnar mælt í útflutn­ings­verð­mætum. Þorsk­ur­inn er vita­skuld lang verð­mætasta teg­undin, líkt og und­an­farna ára­tugi. Árið 2014 nam útflutn­ings­verð­mæti þorsks tæpum 90 millj­örðum króna, næst kom mak­ríll með 22 millj­arða. Á árinu 2014 veiddu íslensk skip um 167 þús­und tonn af mak­ríl. Þetta þýðir að útflutn­ings­verð­mætið nam 134 kr/kg árið 2014. Mak­ríll­inn hefur komið eins og himna­send­ing inn í íslenskan sjáv­ar­út­vegs, einkum og sér í lagi eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins.
Útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða 2014 millj­ónir króna Hlutfall
Þorskur 89.578 37,2%
Makríll 22.408 9,3%
Síld 16.380 6,8%
Loðna 14.978 6,2%
Karfi 14.161 5,9%
Ýsa 13.240 5,5%
Ufsi 11.910 4,9%
Aðrar teg­undir sam­tals 58.047 24,1%
Samtals 240.701 100,0%
Heimild: Hagstofa

Sérstakt veiðigjald á makríl verður 10 kr/kg


Samhliða því að gild­is­tím­inn á afla­hlut­deild í mak­ríl er 6 ár hefur verið ákveðið að inn­heimt verði sér­stakt veiði­gjald frá þeim útgerðum sem fá mak­ríl­kvóta, til við­bótar við hefð­bundin veiði­gjöld, uppá 10 kr/kg. Þetta mun skila rík­inu árlega 1,5 millj­örðum króna miðað við 150 þús. tonna mak­ríl­kvóta. Til sam­an­burðar rukka Græn­lend­ingar 0,95 danskar krónur á kíló (tæp­lega 20 kr/kg) þær útgerðir sem nýta græn­lenskan mak­ríl­kvóta. Þessar 10 kr/kg ættu að vera vel við­ráð­an­legar í ljósi útflutn­ings­verð­mæt­is­ins (134 kr/kg árið 2014).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár