Risa ákvörðun um makríl - 150 til 170 milljarða verðmæti?

Ein umfangs­mesta ákvörðun sem Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, stendur frammi fyrir er hvort hann ákveður að úthluta mak­ríl­kvóta var­an­lega til þeirra útgerða sem hafa afla­reynslu af veiðum á mak­ríl.

Veiðar og vinnsla á mak­ríl er ein skýr­ingin á góðri afkomu stóru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna sem hafa lagt stund á mak­ríl­veiðar á síð­ustu árum. Makríll veidd­ist fyrst sem með­afli á síld­veiðum en svo smám saman jókst magn hans innan lög­sög­unnar, og hefur mak­ríll­inn verið mikil himna­send­ing fyrir íslenska hag­kerfið frá hruni fjár­mála­kerf­is­ins og krón­unnar.

Kom sér vel

Þetta kom sér best fyrir þau fyr­ir­tæki sem lögðu stund á upp­sjáv­ar­veiðar enda eru þau með lang mesta afla­reynslu frá því mak­ríl­veiðar hófust fyrir ein­ungis fáum árum síðan. Öðrum útgerð­ar­flokkum líkt og frysti­tog­urum, ísfisk­skipum og smá­bátum hefur þó einnig verið skammt­aður hluti hins árlega kvóta und­an­farin ár. Úthlut­unin til skipa í mis­mun­andi útgerð­ar­flokkum fer ein­ungis fram árlega og kvót­anum hefur því ekki ennþá verið úthlutað var­an­lega.

Frá því kvóta­kerfið var sett á lagg­irnar árið 1984 hefur svo verð­mæt teg­und sem mak­ríll­inn aug­ljós­lega er ekki bæst við inní kerfið. Þó hafa aðrar teg­undir verið kvóta­settar á und­an­gengnum árum, nýjasta dæmið er blá­langa. Sigurði Inga er því vandi á höndum í ljósi þess hve mikil verð­mæti eru í spil­unum.

[caption id="attachment_21023" align="alignnone" width="640"] Sigurður Ingi Jóhanns­son, ráð­herra sjáv­ar­út­vegs og land­bún­að­ar­mála, stendur frammi fyrir stórum ákvörð­unum þegar kemur að mak­ríl­veiðum.[/caption]

Færeyingar bjóða kvóta til leigu

Samn­ingar um mak­ríl­veiðar hafa ennþá ekki náðst fram á milli þjóð­anna í N-Atl­ants­hafi eins og þekkt er. Þrátt fyrir þetta hefur fær­eyska heima­stjórnin boðið út hluta af sínum mak­ríl­kvóta til leigu til árs í senn. Græn­lenska heima­stjórnin hefur umtals­verðar tekjur af sínum mak­ríl­kvóta og rukka ákveðna krónu­tölu á hvert veitt kíló.

Mikil verðmæti

Á núver­andi fisk­veiði­ári er

þorskígild­is­stuð­ull­inn fyrir mak­ríl 0,41

. Stuð­ull­inn hefur farið hækk­andi á síð­ustu árum enda er mak­ríll verð­mæt teg­und og stærstur hluti nýttur til mann­eldis. Þetta hefur skilað sér í afburða góðri afkomu fyr­ir­tækja sem veiða, vinna og selja mak­ríl á alþjóða­markað.

Til sam­an­burðar er stuð­ull­inn fyrir kolmuna 0,10 og 0,29 fyrir norsk-íslenska síld.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er verð á þorsk­kvóta um það bil 2.500 kr/kg í nýlegum við­skiptum. Miðað við þessar for­sendur er ein­falt að finna út að verð­mæti mak­ríl­kvót­ans, ef hann verður úthlut­aður var­an­lega án end­ur­gjalds til sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna, gæti verið á bil­inu 150 til 170 millj­arðar. Að sjálf­sögðu fer verð­mætið eftir því hversu kvót­inn er stór hverju sinni og eflaust eru þorskígild­is­stuðlar ekki hinn end­an­lega rétti mæli­kvarði. Þessi ein­faldi útreikn­ingur gefur þó vís­bend­ingu um að ákvörðun Sigurðar Inga er umfangs­mikil mælt í krónum og aurum, og miklir hags­munir í húfi fyrir bæði almenn­ing og útgerð­irnar sem hafa hagn­ast vel á mak­ríl­gengd­inni und­an­farin ár.

Makríll
Úthlut. Kvóti Verð á þorski Þorskígild­is­stuð­ull Verðmæti kvóta
Þús. tonn kr/kg m.kr.
167,8 2.500 0,41 171.995
147,7 2.500 0,41 151.393
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár