Hvorki ólögmætt né óskynsamlegt að færa kröfuhöfum nýju bankanna

Það er mat Brynjars Níels­sonar alþing­is­manns að „það hafi hvorki verið ólög­mætt né óskyn­sam­legt að slita­búin fengju yfir­gnæf­andi hlut í Arion banka og Íslands­banka, enda ekki óeðli­legt þar sem verið var að færa yfir skuldir og eignir gömlu bank­anna í þá nýju.“ Þetta kemur fram í skýrslu sem hann skil­aði til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd um ásak­anir Víg­lundar Þor­steins­sonar.

Víglundur sendi gögn á þing­menn og fjöl­miða í jan­úar sem hann sagði sýna að að stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn í ráðu­neytum og Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hafi framið stór­felld og marg­vís­leg lög­brot þegar þeir ákváðu að breyta stofnúr­skurði eft­ir­lits­ins um stofnun nýrra banka á grunni þeirra þriggja sem féllu í októ­ber 2008. Víglundur vildi meina að með þessu hafi erlendir „hrægamma­sjóðir“ átt að hagn­ast um 300 til 400 millj­arða króna á kostnað þjóð­ar­innar.

Spurning um virðisauka


Í skýrslu Brynjars, sem var birt á vef Alþingis síð­degis í dag, segir að ríkið hafi stofnað umrædda banka, verið eig­andi þeirra og tekið með því veru­lega áhættu. Því kunni að vakna sú spurn­ing, með hlið­sjón að óvissu um verð­mæti eigna bank­anna, af hverju ekki var gert sam­komu­lag um skipt­ingu virð­is­auka eins og gert var í samn­ingum um Lands­bank­ann. Í þeim samn­ingum skipt­ist virð­is­auki á milli rík­is­ins og kröfu­hafa en í samn­ing­unum hjá Arion banka og Íslands­banka skipt­ist virð­is­auki vegna eigna milli nýju bank­anna og slita­búa fyr­ir­renn­ara þeirra. Eigendur Arion banka og Íslands­banka eru að langstærstu leyti slitabú gömlu bank­anna.

[caption id="attachment_17957" align="alignnone" width="624"] Víglundur Þor­steins­son, fyrrum eig­andi BM Vallár, segir að stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn í ráðu­neytum og Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hafi framið stór­felld og marg­vís­leg lög­brot þegar þeir ákváðu að breyta stofnúr­skurði eft­ir­lits­ins um stofnun nýrra banka á grunni þeirra þriggja sem féllu í októ­ber 2008. Brynjar Níelsson hafnar þeim ásök­unum.[/caption]

Í skýrslu Brynjars segir: „Ekki hafa komið afger­andi skýr­ingar á því hvers vegna mál þró­uð­ust með þessum hætti. Nærtækt er að ætla að stjórn­völd hafi talið mikla áhættu fel­ast í því að eiga alla bank­ana og að úti­lokað hafi verið að fá kröfu­hafa gömlu bank­anna til að taka yfir þessa nýju banka nema hugs­an­legur virð­is­auki eigna­safns­ins kæmi allur til þeirra. Hver sem skýr­ingin er virð­ist sem lítil eða engin and­staða hafi verið við þessa ráð­stöfun á bönk­unum í umræðum á þing­inu í des­em­ber 2009 og virð­ist jafn­vel sem mikil ánægja hafi verið með að ríkið skyldi losna við að taka dýr lán til að mynda eigið fé bank­anna og að bank­arnir þyrftu ekki að gefa út skulda­bréf sem gæti haft í för með sér mikla gjald­eyr­is­á­hættu.“

Fullyrðingar Víglundar eiga ekki við rök að styðjast


Brynjar segir að við heild­ar­mat á lána­söfnum bank­anna hafi verið tekið til­lit til þess að mis­mun­andi líkur voru á inn­heimtu lán­anna sem í þeim voru. Sum voru lík­leg til að inn­heimt­ast að fullu, önnur að hluta og sum voru hrein­lega töpuð. „Mun með­al­talið hafa verið nálægt því um helm­ingur af stöðu lán­anna og afslátt­ur­inn sem því nemur. Hvert lán var því ekki lækkað um helm­ing, heldur tók mats­verðið mið af mis­mun­andi líkum á inn­heimtu. Við það mið­aði heild­ar­kaup­verðið.

Full­yrð­ingar Víg­lundar í bréfi til þing­manna um að skuld­arar lán­anna, sem færð voru til nýju bank­anna, hafi verið hlunn­farnir eiga því ekki við rök að styðj­ast.[...]Með hlið­sjón af öllu fram­an­sögðu er ekki fall­ist á að í sam­komu­lags­leið­inni um skipt­ingu eigna og skulda, sem nýju bank­arnir tóku yfir, hafi verið farið á svig við lög. Enn síður er nokkuð sem bendir til þess að beitt hafi verið með skipu­lögðum hætti blekk­ingum og svikum til hags­bóta fyrir erlenda kröfu­hafa á kostnað rík­is­ins og ein­stakra skuld­ara.“

Ríkið fær allt sitt rúmlega til baka


Brynjar segir lík­legt að rík­is­sjóður geti fengið alla þá 190 millj­arða króna sem hann lagði til við end­ur­reisn bank­anna til baka og rúm­lega það. „Virð­is­auk­inn hefur styrkt fjár­hags­lega stöðu bank­anna og þannig tryggt fjár­fest­ingar rík­is­sjóðs í þeim. Má því ætla að þessi útgjöld séu í eðli sínu fjár­fest­ingar sem skili sér með góðri ávöxtun.

Þegar til þessa er horft verður ekki sagt að slita­búin hafi grætt á kostnað rík­is­ins, þótt vel megi halda því fram að hægt hefði verið að semja um ein­hverja hlut­deild rík­is­ins í virð­is­auka sem varð á eignum sem yfir­færðar voru til bank­anna sem þá voru í eigu rík­is­ins. Segja má að slita­búin hafi fengið sann­gjarnt verð fyrir eignir sínar og að heild­ar­verð­mætið hafi í raun verið mjög nálægt með­al­tali mats Deloitte. Ekki hafa komið fram hald­bær gögn um að við­skipta­vinir nýju bank­anna hafi verið hlunn­farnir.“

Engin hald­bær gögn liggi fyrir um annað en að mál­efna­leg rök hafi almennt ráðið för við end­ur­skipu­lagn­ingu og upp­gjör lána fyr­ir­tækja og heim­ila.

[caption id="attachment_9662" align="alignnone" width="640"] Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði ásk­anir Víg­lundar við fyrstu sín slá­andi og boð­aði rann­sókn á þeim þegar þær voru lagðar fram í síð­asta mán­uði.[/caption]

Örugglega hægt að benda á einhver mistök


Í skýrslu Brynjars segir að þegar horft sé til baka megi örugg­lega benda á ein­hver mis­tök sem hafi átt sér stað við end­ur­reisn bank­anna þriggja og annað sem betur hafi mátt fara. „En það er auð­veld­ara um að tala en í að kom­ast þegar allt banka­kerfið hrynur á einu bretti eins og gerð­ist í byrjun októ­ber 2008. Enginn var við­bú­inn svona for­dæma­lausum aðstæðum á fjár­mála­mark­aði. Þótt neyð­ar­lögin hafi reynst góð svo langt sem þau ná var lag­ara­mm­inn og umgjörðin öll mjög tak­mörkuð og rennt var nokkuð blint í sjó­inn við það gríð­ar­lega erf­iða verk­efni að halda greiðslu­miðlun gang­andi, reisa við banka­kerfið og end­ur­skipu­leggja skuldir ein­stak­linga og atvinnu­lífs. Hins vegar tókst að tryggja hags­muni rík­is­sjóðs með við­un­andi hætti þótt vel megi vera að hægt hafi verið að gera betur í þeim efnum. Þá tókst að byggja upp trausta banka með góða eig­in­fjár­stöðu. Þeir fjár­munir sem ríkið lagði til þeirra eru tryggðir og rík­is­sjóður hefur engum fjár­munum tapað í eig­in­legum skiln­ingi.“

Hann segir að ef sú leið hafi verið farin að ríkið hefði eign­ast alla bank­ana og gefið út skulda­bréf til slita­búa þeirra væri skulda­staða rík­is­sjóðs nokkur hund­ruð millj­örðum króna verri en hún er í dag og þjóðin væri ófær um að afla gjald­eyris til greiðslu útgef­inna skulda­bréfa nýju bank­anna til slita­bú­anna. „Hefði slíku ráðslagi fylgt gíf­ur­leg áhætta fyrir þjóð­ar­búið. Aðrar leiðir voru farnar við end­ur­reisn ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja. Ekki verður fjallað um það í þess­ari skýrslu en til með­ferðar hjá stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins er rann­sókn­ar­skýrsla um spari­sjóð­ina. Jafn­framt þyrfti að mati skýrslu­höf­undar að skoða betur aðgerðir stjórn­valda í tengslum við aðstoð við minni fjár­mála­fyr­ir­tæki eins og Saga Capital, Verð­bréfa­stof­una og Askar Capital og á hvaða grunni veitt var rík­is­á­byrgð á skulda­bréfi SPRON og Spari­sjóða­bank­ans til slita­bús Kaup­þings.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár