FME segir Víglund fara með rangt mál, rannsókn hafin á gagnaleka

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hefur hafnað mála­til­bún­aði Víg­lundar Þor­steins­sonar sem hefur ásakað stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn og eft­ir­lits­að­ila um að hafa fært erlendum kröfu­höfum föllnu bank­anna þriggja 300- 400 millj­arða króna þegar samið var við þá um end­ur­reisn íslenska banka­kerf­is­ins.

Víglundur vill meina að þessi upp­hæð hefði með réttu átt að fara í að lækka lán íslenskra fyr­ir­tækja og heim­ila um þessa upp­hæð og með því að skila þeim ekki fénu hefði þeir aðilar sem komu að ákvörð­un­inni mögu­lega framið stór­felld lög­brot. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að málið sé grafal­var­legt, að með þeim samn­ingum sem gerðir voru hafi hund­ruð millj­arða króna verið færðir til kröfu­hafa og hefur boðað rann­sókn á mál­inu.

[caption id="attachment_10653" align="alignnone" width="950"] "Því er rang­lega haldið fram að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi með stofnúr­skurði mælt fyrir um afskriftir á ein­stökum lánum," segir í til­kynn­ingu FME.[/caption]

Segja Víglund oftúlka gögnin


Fjár­mála­eft­ir­litið birti í gær­kvöld til­kynn­ingu um málið á heima­síðu sinni. Þar stendur meðal ann­ars: "Því er rang­lega haldið fram að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi með stofnúr­skurði mælt fyrir um afskriftir á ein­stökum lánum. Eins og áður greinir tók Fjár­mála­eft­ir­litið ákvarð­anir um hvaða eignir og skuldir færu yfir til nýju bank­anna og eftir hvaða ferli skyldi meta virði þeirra. Þau fylgi­skjöl sem nú hafa birst opin­ber­lega, drög að stof­nefna­hags­reikn­ingum bank­anna þriggja frá í októ­ber 2008, höfðu þann eina til­gang að leiða fram gróft mat á efna­hag bank­anna við upp­haf rekst­urs þeirra, stöðu sem fyr­ir­fram var vitað að tæki breyt­ingum á grund­velli áður­nefnds mats­ferlis. Enn­fremur er rétt að benda á að FME kveður almennt ekki upp úrskurði.

Fjár­mála­eft­ir­litið harmar að gögn sem þessi með ítar­legum upp­lýs­ingum um ein­staka við­skipta­vini bank­anna birt­ist opin­ber­lega. FME hefur til skoð­unar hvort í birt­ing­unni felist brot á 58. gr. laga 161/2002."

Sú grein snýst um brot á banka­leynd. Kjarninn greindi frá því fyrr í vik­unni að FME telji gögnin sem Víglundur sendi á alþing­is­menn og fjöl­miðla ekki hafa lekið frá sér. Nú er hins vegar ljóst að rann­sókn er hafin á því hvaðan gögnin komu. Í bréfi sem Víglundur sendi Einari K. Guð­finns­syni, for­seta Alþingis, sagði hann að það hefði atvikast svo að „ókunnur aðili sem ég hef nefnt hinn „nýja litla síma­mann“ sendi mér alla stofnúr­skurði FME um nýju bank­ana“. Samkvæmt til­kynn­ingu FME eru þau gögn sem Víglundur sendi alls ekki stofnúr­skurðir um nýju bank­ana.

Hægt er að lesa til­kynn­ingu FME í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár