Drónar og skattsvik

Í fyrsta skipti í sög­unni eru danskir rík­is­borg­arar ákærðir fyrir að taka beinan þátt í hryðju­verkum. Fimm menn eru taldir hafa útvegað dróna sem not­aðir voru í árásum á her­stöð í Sýrlandi árið 2014. Enn­fremur tengj­ast mál­inu umfangs­mikil skatt­svik.

Basil hassan
Basil hassan

21. sept­em­ber 2017 var þrí­tugur leigu­bíl­stjóri, kall­aður Mehmet, hand­tek­inn á heim­ili sínu í Brøndby vestan við Kaup­manna­höfn, grun­aður um að hafa tekið þátt í und­ir­bún­ingi hryðju­verka. Lög­reglan hafði um um langt skeið fylgst náið með Mehmet, meðal ann­ars í sam­starfi við tvo unga menn en Mehmet hafði keypt dróna í verslun þeirra á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn.

Handtaka Mehmet, sem síðan hefur setið í gæslu­varð­haldi var upp­haf þess máls sem nú er komið til kasta dóm­stóla, Dróna­máls­ins svo­nefnda. Samtímis hand­töku Mehmet var annar maður úrskurð­aður i gæslu­varð­hald að honum fjar­stöddum (in absentia). Sá heitir Abdul Kadir Cesur (stundum kall­aður bíla­þvotta­mað­ur­inn), Tyrki sem bjó um ára­bil í Danmörku en er nú sagður búsettur í Tyrk­landi og eft­ir­lýstur af Alþjóða­lög­regl­unni, Interpol. Hann er tal­inn hafa afhent liðs­mönnum Íslamska ríks­ins (svo­nefnda) drón­ana sem Mehmet leigu­bíl­stjóri keypti í Kaup­manna­höfn.

[links]Í sept­em­ber í fyrra, ári eftir hand­töku Mehmet, voru tveir menn hand­teknir og úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald, ásamt einum til við­bótar, sá var fjar­staddur. Sá sem ekki hafði tek­ist að hand­taka var Basil Hassan. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem nafn hans komst í bækur lög­regl­unnar. Hann hefur lengi verið eft­ir­lýstur á alþjóða­vett­vangi vegna til­raunar til að ráða af dögum danska rit­höf­und­inn Lars Hedegaard árið 2013. Sú til­raun mistókst því ekki vildi betur til en svo að þótt færið væri aðeins um einn metri fór kúlan úr byssu Hassan fram­hjá höfði rit­höf­und­ar­ins. Þrátt fyrir mikla leit náð­ist til­ræð­is­mað­ur­inn ekki og lög­reglan taldi sig vitað að hann hefði nær sam­stundis farið frá Danmörku. Basil Hassan er tal­inn hafa skipu­lagt dróna­hernað Íslamska rík­is­ins en sprengja sem dróni bar varð tveimur kúrdískum her­mönnum að bana í Írak í októ­ber 2016. Danska leyni­þjón­ustan, PET, taldi á sínum tíma að drón­inn hafi verið keyptur í áður­nefndri verslun á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn.

Basil Hassan er 32 ára, danskur rík­is­borg­ari af líbönskum upp­runa, og ólst upp í Danmörku. Hann lauk fyrri­hluta verk­fræði­náms og hefur einnig lært flug.

Handtekinn og sleppt

Eftir að Basil Hassan tókst að flýja frá Danmörku, eftir hið mis­heppn­aða til­ræði árið 2013 frétt­ist næst af honum í Tyrk­landi í byrjun apríl árið eftir. Þá var hann hand­tek­inn á flug­velli þar í landi. Þegar Danir ósk­uðu eftir fram­sali hans kom í ljós að hann hafði verið lát­inn laus. Skýr­ingar Tyrkja á þeirri ákvörðun voru loðnar en síðar kom i ljós að um var að ræða fanga­skipti Tyrk­lands og Íslamska rík­is­ins. Að Basil Hassan skyldi lát­inn laus olli mik­illi reiði Dana, síðar kom í ljós að hann hefði að lík­indum farið strax til Sýrlands. Talið er að hann hafi skipu­lagt og und­ir­búið fjöl­mörg hryðju­verk Íslamska rík­is­ins og tal­inn einn helsti sér­fræð­ingur sam­tak­anna varð­andi dróna­hernað.

Margoft hafa borist af því fréttir að Basil Hassan hafi verið felldur en slíkar fréttir hafa aldrei feng­ist stað­festar.

Auk þeirra Basil Hassan og Abdul Kadir Cesur og leigu­bíl­stjór­ans sem áður var getið eru tveir til við­bótar ákærðir í dróna­mál­inu. Nöfn þeirra hafa ekki verið birt opin­ber­lega en þeir ganga undir nöfn­unum hjóla­kaup­mað­ur­inn og kenn­ar­inn. Þeir eru báðir þrí­tugir að aldri og þekktir meðal múslima í Kaup­manna­höfn. Hjóla­kaup­mað­ur­inn hefur hlotið dóma fyrir skjala­fals og svindl, reyndi meðal ann­ars, fyrir nokkrum árum, að svíkja út bætur í nafni Basil Hassan. Kenn­ar­inn hefur starfað við nokkra skóla í Kaup­manna­höfn, þar á meðal CBA við­skipta­há­skól­ann. Um tíma vann kenn­ar­inn hjá tölvu­fyr­ir­tæki á Frederiks­berg, en það fyr­ir­tæki telur lög­reglan að hafi staðið að ýmis­konar svindli tengdum pen­inga­yf­ir­færslum frá Svíþjóð til Dan­merkur. Kenn­ar­inn er sagður náinn vinur Basil Hassan.

Löng og flókin réttarhöld

Eins og nefnt var í upp­hafi þessa pistils hófust rétt­ar­höldin yfir fimm­menn­ing­unum í síð­ustu viku, í Bæj­ar­rétti Kaup­manna­hafnar. Búast má við að rétt­ar­höldin verði löng og flókin en gert er ráð fyrir 19 dögum í rétt­ar­salnum, fram í jan­úar á næsta ári. Máls­skjölin fylla 18 þús­und blað­síður og ræða sak­sókn­ara við upp­haf rétt­ar­hald­anna tók þrjár klukku­stundir. Annar og þriðji dagur rétt­ar­hald­anna fóru í yfir­heyrslur yfir kenn­ar­anum. Lög­reglan hafði lagt hald á minnis­lykil (USB) á heim­ili hans og kenn­ar­inn sagð­ist hafa fengið lyk­il­inn í Tyrk­landi, hann væri kom­inn frá Basil Hassan en Abdul Kadir Cesur hefði afhent sér hann, með kveðju frá Basil. Að sögn sak­sókn­ara er minnis­lyk­ill þessi mjög mik­il­vægt gagn í rétt­ar­höld­unum.

Og svo er það skattasvikamálið

Í ræðu sak­sókn­ara við upp­haf rétt­ar­hald­anna kom fram að auk ákærunnar um að taka þátt í hryðju­verkum tengd­ust, að minnsta kosti sumir hinna ákærðu, og hugs­an­lega fleiri, umfangs­miklu pen­inga­svindli. Það mál teygir anga sína til Sví­þjóðar og er flókin svika­mylla en það verður ekki fyrr en á síð­ari stigum rétt­ar­hald­anna sem fjallað verður um þau mál. Fram hefur komið að upp­hæðir sem um er að ræða hlaupi á að minnsta kosti tveimur millj­örðum danskra króna (37 millj­arðar íslenskir).

Sænsk yfir­völd ákærðu danska konu, sem vann hjá sænsku fyr­ir­tæki, fyrir að hafa átt þátt í að svíkja á aðra milljón sænskra króna undan skatti en fyr­ir­tækið tengd­ist Íslamska rík­inu. Konan hlaut átta mán­aða fang­els­is­dóm fyrir bók­halds­svindl. Við rétt­ar­höldin yfir henni kom fram að hún hafði mikil tengsl við mann sem átti og var for­stjóri tölvu­fyr­ir­tækis á Frederiks­berg og talið var tengj­ast Íslamska rík­inu. Þessi for­stjóri, sem síðar er talið að hafi fallið í Sýrlandi kall­aði kon­una ætíð ,,Skat“ ,en það orð hefur fleiri en eina merk­ingu á dönsku, hún kall­aði hann hins­vegar ,,Moms“, sem sem er danska orðið yfir virð­is­auka­skatt.

Við upp­haf rétt­ar­hald­anna sagði sak­sókn­ari þau marka tíma­mót í danskri rétt­ar­sögu. Þetta væri í fyrsta skipti sem danskir rík­is­borg­arar væru ákærðir fyrir að taka beinan þátt í hryðju­verkum á erlendri grund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár