Morðtól í tómstundabúð

Þegar tveir ungir menn, Toke Suhr og Frederik Skøt, opn­uðu verslun í Kaup­manna­höfn, fyrir tveim árum, grun­aði þá ekki að vörur sem þeir hefðu til sölu yrðu not­aðar til árása og mann­drápa í Írak.

Frederik Skøt og Toke Suhr.
Frederik Skøt og Toke Suhr. Mynd: Skjáskot/DR

Vorið 2016 sett­ist Toke Suhr inn í leigu­bíl skammt frá Amali­en­borg í Kaup­manna­höfn. Bílinn hafði hann pantað gegnum Uber akst­urs­þjón­ust­una. Bíl­stjór­inn var 27 ára Kúrdi, hér eftir nefndur Mehmet, glað­legur náungi og ræð­inn.

Á leið­inni upp á Norð­ur­brú, þangað sem för­inni var heitið, barst í tal að Toke myndi ásamt félaga sínum eftir um það bil tvo mán­uði opna verslun með dróna (flygildi) í Kaup­manna­höfn.

[adspot]Mehmet leigu­bíl­stjóri sagð­ist hafa mik­inn áhuga fyrir drónum og hann myndi fljót­lega koma í búð­ina og skoða það sem þar væri í boði, og kannski kaupa eitt­hvað. Spurði margra spurn­inga um drón­ana, hvað þeir gætu flogið langt, hvað þeir gætu borið þunga hluti o.s.frv. Toke svar­aði eftir bestu getu öllum spurn­ingum bíl­stjór­ans. „Nota­leg­asti náungi“ hugs­aði Toke með sér þegar þeir kvödd­ust. Hvorki Toke né Mehmet höfðu hug­mynd um að fylgst var með ferðum þeirra.

Leyniþjónustan bankar upp á

Um fimm leytið að morgni sex vikum eftir bílt­úr­inn með Mehmet vakn­aði Toke við að dyra­bjöll­unni var hringt. Þegar hann svar­aði ekki var dyra­bjöll­unni hringt aftur. Toke leit á sím­ann og sá að hringt hafði verið til hans fimm sinnum, úr leyni­núm­eri. „Ég hélt að nágrann­inn væri í ein­hverjum vand­ræðum en þegar ég svar­aði í dyra­sím­ann sagð­ist sá sem hringdi vera lög­reglu­maður og þyrfti nauð­syn­lega, ásamt vinnu­fé­laga sínum, að tala við mig. Mér kross­brá, vissi ekki til að ég ætti neitt van­talað við lög­regl­una, hélt svo kannski að eitt­hvað alvar­legt hefði gerst í fjöl­skyld­unni.“ Lög­reglu­menn­irnir byrj­uðu á að segja Toke að þeir þyrftu að ræða við hann í trún­aði, en það sner­ist ekki um fjöl­skyld­una heldur um ökutúr í leigu­bíl. Sem sé um ferð­ina með Mehmet. Toke mundi vel eftir öku­ferð­inni og sam­tal­inu við Mehmet.

[adspot]Eftir að hann hafði rifjað upp sam­talið, spurn­ingar Mehmet og áhuga hans á drónum, sögðu lög­reglu­menn­irnir að þeir væru starfs­menn Dönsku Leyn­þjón­ust­unnar, PET, og hefðu grun um að Mehmet hefði kannski eitt­hvað mis­jafnt í huga varð­andi drón­ana. Vildu þó ekki útskýra það nánar. „Nú brá mér illi­lega“ sagði Toke sem sagði að þeir félag­arnir, hann og Frederik Skøt, hefðu einmitt rætt það sín á milli að þeir þyrftu að vera á verði ef þeir yrðu varir við grun­sam­lega við­skipta­vini. Lög­reglu­menn­irnir sögðu Toke að þeir vildu gera sam­komu­lag við þá félaga, hann og Frederik. Ef Mehmet kæmi í búð­ina ættu þeir strax að láta PET vita og ef hann vildi kaupa eitt­hvað skyldu þeir segja að þeir ættu þetta ekki á lager. Þeir myndu panta það sem hann vildi fá og láta vita þegar pönt­unin yrði til­búin. Toke sam­þykkti þetta og lög­reglu­menn­irnir fóru, eftir að hafa látið hann hafa síma­númer sem þeir félagar gætu hringt í hvenær sem væri.

Göngutúr

Síðar þennan sama morgun fór Toke niður á Fredens­gade þar sem þeir félagar voru að stand­setja versl­un­ina. Frederik var mættur og Toke sagði honum að þeir skyldu fá sér göngutúr. Þetta þótti Frederik ein­kenni­legt, þeir voru ekki vanir að fara saman út að ganga, allra síst að morgni dags. „Toke var mjög alvar­legur“ sagði Frederik, „ég hélt fyrst að eitt­hvað hefði komið fyrir, það var sem betur fer ekki en hann sagði mér frá heim­sókn­inni. Ég trúði þessu varla og spurði hvort hann hefði nokkuð dreymt þetta.“

Toke full­viss­aði félaga sinn um að þetta væri ekki draumur og þeir vissu að þeir yrðu að aðstoða PET eins og óskað var eftir. „Við vorum óneit­an­lega ansi stress­aðir yfir þessu“ sagði Frederik. Toke lýsti Mehmet, eftir bestu getu, fyrir félaga sínum en ennþá var mán­uður þangað til búðin yrði opnuð.

Spurði sérstaklega um stóru drónana

Eins og Mehmet hafði sagt við Toke kom hann fljót­lega eftir að búðin var opnuð. Spurði Toke hvort hann myndi ekki eftir sér, Toke dró aðeins við sig svarið, til að virka ekki grun­sam­legur, en spurði svo hvort það hefði ekki verið eitt­hvað með leigu­bíl. Það stóð heima. Eftir að hafa litið í kringum sig beind­ist athygli Mehmet að stærsta drón­anum í búð­inni, hann getur borið að minnsta kosti tíu kíló. Mehmet spurði nú um til­tekin tækni­leg atriði varð­andi drón­ann og eftir að hafa skoðað eitt­hvað í sím­anum sagð­ist hann vilja kaupa dróna með ýmis konar auka­bún­aði og til­tók að sér lægi á að fá þetta sem fyrst.

Toke sagð­ist gera sitt besta til að útvega hlut­ina eins fljótt og unnt væri, síðan kvödd­ust þeir og Mehmet fór. Toke tal­aði strax við PET og ákveðið var að kaupin færu gegnum milli­lið, til að tryggja að þeir félagar sætu ekki í súp­unni og yrðu hugs­an­lega ákærðir fyrir að hafa aðstoðað við und­ir­bún­ing hryðju­verka. PET vildi líka fá að skoða hlut­ina áður en Mehmet fengi þá afhenta. Allt tók þetta sinn tíma en Mehmet keypti fimm stóra dróna, sem hann stað­greiddi þegar hann fékk þá afhenta.

Mehmet kaupir meira

Nú liðu nokkrir mán­uðir. Þeir Toke og Frederik heyrðu ekk­ert, hvorki frá PET né Mehmet. Þeir ímynd­uðu sér að ann­að­hvort hefði lög­reglan hand­tekið Mehmet eða málið orðið að engu. En dag einn birt­ist Mehmet í versl­un­inni og vildi fá að skoða dróna sem hefðu búnað til að greina á milli kaldra hluta og heitra. Banda­ríkja­her hafði þróað slíkan búnað og þeir Toke og Frederik höfðu selt nokkra dróna með slíkum bún­aði, til fyr­ir­tækja sem not­uðu þá til að greina skemmdir á bygg­ingum. Hvað eigið þið marga svona? spurði Mehmed og bætti við að hann vildi gjarna kaupa 40 stykki.

[adspot]„Við vorum orð­lausir“sagði Toke. Þegar þeir sögðu hvað svona drónar kost­uðu sagði Mehmet að hann hefði séð svona dróna á miklu lægra verði ann­ars staðar en hann vildi versla við þá félaga. Meðan á þessu stóð fór Toke afsíðis og hringdi til PET og í fram­hald­inu sagði hann Mehmet að því miður væri ein­ungis leyfi­legt að selja sex svona dróna til hvers kaup­anda, það tengd­ist einka­leyf­is­málum. Mehmet tók þessa skýr­ingu góða og gilda og pant­aði sex dróna. Þeir áttu að koma eftir tvo mán­uði. Á leið­inni út úr búð­inni spurði Mehmed hvort þeir vildu fá borgað í doll­urum eða dönskum krónum, hann myndi borga með seðlum. „Dönskum krónum“ svar­aði Toke.

Á til­teknum tíma birt­ist Mehmet í versl­un­inni til að sækja drón­ana. Hann dró seðla­búnt upp úr tösku sem hann bar um mittið og sagði Toke að telja. Upphæðin stemmdi. „Það fer ótrú­lega lítið fyrir svona mörgum seðlum“ sagði Frederik. Mehmet hló og sagði „Þið ættuð að sjá þetta í evrum, sést varla.“

Svo gekk hann út úr búð­inni, setti drón­ana í sendi­bíl sem beið fyrir utan og fór.

Þetta var í síð­asta skipti sem þeir Toke og Frederik sáu Mehmet.

Handtökur

21. sept­em­ber í fyrra var Mehmet hand­tek­inn á heim­ili sínu í Brøndby. Síðan hefur hann setið í gæslu­varð­haldi, ákærður fyrir að taka þátt í und­ir­bún­ingi hryðju­verka. Lögregla telur sannað að hann hafi keypt drón­ana fyrir ísla­misk hryðju­verka­sam­tök. Samtímis var annar maður úrskurð­aður í gæslu­varð­hald að honum fjar­stöddum(in absentia).

28. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, ári eftir hand­töku Mehmet, voru þrír til við­bótar hand­teknir og úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald, grun­aðir um að hafa keypt dróna og síðar selt til sam­taka sem kenna sig við íslamska ríkið. Einn þess­ara fimm, sá sem ekki hefur náðst er Basil Hassan sem er eft­ir­lýstur vegna til­raunar til að ráða af dögum danska rit­höf­und­inn Lars Hedegaard árið 2013. Basil Hassan er tal­inn hafa skipu­lagt dróna­hernað sam­tak­anna íslamska rík­is­ins en sprengja sem dróni flutti varð tveimur kúrdískum her­mönnum að bana í Írak í októ­ber 2016. Danska leyni­þjón­ustan, PET, telur víst að sá dróni hafi verið keyptur í versl­un­inni á Fredens­gade í Kaup­manna­höfn.

Drónarnir hættuleg árásarvopn

Thomas Galasz Nielsen yfir­maður deildar her­tækni hjá danska her­skól­anum sagði í við­tali við danska útvarpið, DR, að drón­arnir geti verið hættu­leg vopn. Írakar hafi ekki búnað til að verj­ast þessum tækjum. Drón­arnir sem Mehmet keypti í búð­inni hjá þeim Toke og Frederik eru áþekkir þeim sem til dæmis banda­ríski her­inn notar. Þótt tölvu­bún­að­ur­inn í drónum sem seldir eru í tóm­stunda­búðum sé ekki jafn full­kom­inn og sá sem banda­ríski her­inn notar má kaupa slíkan búnað í versl­unum og auð­velt sé fyrir kunn­áttu­menn að koma honum fyrir í dróna.

Þeir Toke Suhr og Frederik Skøt sögðu sögu sína í við­tali við danska útvarpið. Viðtalið var sýnt sl. sunnu­dag, 2. des­em­ber. Aðfara­nótt 4. des­em­ber var stórum steinum kastað í rúður á verslun þeirra félaga. Rúðurnar eru úr sér­hertu þykku gleri og brotn­uðu ekki. Ekki er vitað hver þarna var að verki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár