Dani undirbjó mörg hryðjuverk

Til­viljun réði því að hryðju­verk, sem Dani að nafni Basil Hassan und­ir­bjó, mistókst. Ætlunin var að granda far­þega­þotu. Basil Hassan hafði, ásamt sam­verka­mönnum sínum, mörg slík hryðju­verk í hyggju.

Basil hassan
Basil hassan

Í byrjun júlí 2017 fengu tveir bræður í Ástralíu pakka frá Tyrk­landi. Send­and­inn var hópur undir stjórn Basil Hassan, dansks verk­fræð­ings af líbönskum upp­runa. Í pakk­anum var sprengi­bún­aður, sem hægt var að stjórna með far­síma. Hálfum mán­uði síðar, 17. Júlí, fór annar bræðr­anna, með litla hjóla­tösku, á flug­völl­inn í Sydney, hann var með flug­miða til Abu Dhabi í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum. Taskan, sem hann ætl­aði að hafa með sér inn í flug­vél­ina, reynd­ist þyngri en leyfi­legt er og þá hætti mað­ur­inn við ferð­ina og fór heim. Síðar komst lög­regla að því að í tösk­unni var gam­al­dags hand­snúin hakka­vél, fyllt með sprengi­efn­inu PETN og bún­að­ur­inn sem hafði komið í pakk­anum frá Tyrk­landi. Ætlun manns­ins var að tendra sprengj­una, með far­síma, þegar vélin væri komin á loft.

Ástr­alskir fjöl­miðlar full­yrtu að þessar fyr­ir­ætl­anir hefðu gengið upp ef taskan hefði verið innan leyfi­legra þyngd­ar­marka. Ástr­alskir fjöl­miðlar sögðu það nán­ast til­viljun að mann­inum tókst ekki ætl­un­ar­verk sitt. Þetta fyr­ir­hug­aða hryðju­verk hafði hópur, sem talið er að sé, eða hafi verið, undir stjórn Basil Hassan skipu­lagt. Hópurinn kennir sig við íslamska ríkið.

Und­ir­bjuggu annað hryðju­verk

Áður­nefndir bræður í Ástralíu hófust strax aftur handa við að skipu­leggja annað ódæði. Sem fyrr var það hópur Basil Hassan í Raqqa í aust­ur­hluta Sýrlands sem skipu­lagði. Að þessu sinni var ætl­unin að nota eit­ur­gas sem yrði beint að sam­göngu­kerfi Ástralíu.

Hvorki bræð­urnir né Basil Hassan vissu að erlendar leyni­þjón­ustur, þar á meðal sú danska, höfðu látið áströlsku lög­regl­unni í té upp­lýs­ingar sem leiddu til þess að fylgst var með bræðr­unum. Upp­lýs­ingar um hakka­vél­ina í ferða­tösk­unni voru að lík­indum komnar úr sömu átt, þótt ekki hafi verið upp­lýst um það. Bræð­urnir tveir voru hand­teknir í Ástralíu áður en þeir gætu fram­kvæmt áætl­an­irnar um eit­urgasið. Danska Leyni­þjón­ustan, PET, fylgist grannt með öllu sem teng­ist Basil Hassan sem er eft­ir­lýstur í Danmörku. Og fyrir því eru ríkar ástæður, fleiri en ein.[adspot]

Mis­heppnuð morð­til­raun

5. febr­úar árið 2013 hringdi maður, íklæddur rauðum póst­mannsjakka bjöll­unni á heim­ili danska rit­höf­und­ar­ins Lars Hedegaard á Frið­riks­bergi við Kaup­manna­höfn. Þegar rit­höf­und­ur­inn opn­aði dró sá í rauða jakk­anum upp byssu og hleypti af. Þótt færið væri ein­ungis einn metri geig­aði skotið en þegar sá rauð­klæddi ætl­aði að hleypa af öðru skoti stóð byssan á sér. Eftir handa­lög­mál komst mað­ur­inn í rauða jakk­anum undan. Að sögn rit­höf­und­ar­ins tal­aði sá rauð­klæddi lýta­lausa dönsku. Lög­reglan taldi sig vita hver mað­ur­inn væri, en upp­lýsti ekki strax um nafn hans. Síðar kom fram að þessi maður var Basil Hassan. Ástæða til­ræð­is­ins var talin vera skrif rit­höf­und­ar­ins um múslíma. Lýst var eftir Basil Hassan á alþjóða­vett­vangi og gefin út hand­töku­skipun á hann.

Basil Hassan hand­tek­inn, og sleppt

5. apríl 2014 hand­tók tyrk­neska lög­reglan danskan rík­is­borg­ara, sem reynd­ist vera marg­nefndur Basil Hassan. Ástæður hand­tök­unnar hafa aldrei verið birtar. Danir ósk­uðu strax eftir fram­sali hans en áður en að því kom var Basil Hassan lát­inn laus. Skýr­ingar Tyrkja á þeirri ákvörðun voru loðnar og ollu mik­illi reiði Dana. Basil Hassan var hins­vegar á bak og burt. Síðar kom í ljós að hann hefði að lík­indum farið til Sýrlands. Hann er ofar­lega á lista banda­rísku leyni­þjón­ust­unnar yfir sér­lega hættu­lega hryðju­verka­menn. Nokkrum sinnum hafa borist af því fréttir að hann hafi verið drep­inn en það hefur aldrei feng­ist stað­fest.

Dróna­hern­að­ur­inn og tóm­stunda­búðin í Kaup­manna­höfn

Í októ­ber árið 2016 varð sprengja borin af dróna (flygildi), tveimur kúrdískum her­mönnum í Írak að bana. Leyni­þjón­ustur Dan­merkur og Banda­ríkj­anna telja sig vita með vissu að dróna­hern­aður íslamska rík­is­ins hafi verið skipu­lagður af Basil Hassan. Og að drón­inn sem varð Kúrdunum tveim að bana í Írak hafi verið keyptur í verslun á Fredens­gade í Kaup­manna­höfn. Danska leyni­þjón­ustan hafði kom­ist á snoðir um tengsl Basil Hassan við þrjá eða fjóra menn í Kaup­manna­höfn og einn þeirra hafði keypt sex öfl­uga dróna í versl­un­inni sem áður var nefnd og ætl­aði síðar að kaupa fleiri. Þessir menn voru síðar allir hand­teknir og sitja í fang­elsi í Danmörku. Í aðgerðum dönsku lög­regl­unnar í lok sept­em­ber í fyrra voru tveir menn hand­teknir og bíða þess nú að réttað verði yfir þeim. Sama dag var Basil Hassan úrskurð­aður í gæslu­varð­hald að honum fjar­stöddum (in absentia).

Til­rauna­pakkar í flugi og áhyggjur Dana

Danska rík­is­út­varpið, P1, hefur nýlega, í níu útvarps­þáttum, fjallað ítar­lega um Basil Hassan og hryðju­verka­starf­semi íslamska rík­is­ins. Í þætti í danska sjón­varp­inu, DR, fyrir tveim vikum var greint frá því að árin 2016 og 2017 hefði hópur undir stjórn Basil Hassan reynt að senda pakka í flugi frá Tyrk­landi og Maldíveyjum til fjöl­margra landa, þar á meðal Qatar, Englands, Þýska­lands og Banda­ríkj­anna. Til­gang­ur­inn var að láta reyna á örygg­is­eft­ir­lit á flug­völlum.

Danska leyni­þjón­ustan telur fulla ástæðu til að ótt­ast að hryðju­verka­menn tengdir íslamska rík­inu muni láta til skarar skríða í Danmörku, hvort sem Basil Hassan sé lífs eða lið­inn. Leyni­þjón­ustan hefur kom­ist yfir myndir þar sem sjá má svo­nefnt Krist­janíu reið­hjól (algeng í Danmörku) og enn­fremur tröppur sem líkj­ast inn­gang­inum við Nør­report lest­ar­stöð­ina í Kaup­manna­höfn.

Svíinn Magnus Ranstorp, einn helsti sér­fræð­ingur á Norð­ur­löndum varð­andi rann­sóknir á hryðju­verkum, sagði í við­talið við Danska sjón­varpið að aldrei sé of var­lega farið og allar minnstu grun­semdir varð­andi hugs­an­leg hryðju­verk verði ætíð að taka alvar­lega.

Fyrir áhuga­sama les­endur má nefna tvo pistla sem birst hafa hér í Kjarn­anum. Annar um til­ræðið við Lars Hedegaard og hinn um dróna­versl­un­ina þar sem hryðju­verka­menn keyptu dróna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár