Stöðva á notkun félaga til að greiða lægri skatta og láta fjármagnstekjufólk borga útsvar

Frumvarp um að láta þá sem skrá laun sem fjár­magnstekjur greiða útsvar og borga tekju­skatt í stað fjár­magnstekju­skatts er vænt­an­legt í apríl á næsta ári. ASÍ hefur áætlað að tekjur rík­is­sjóðs geti auk­ist um átta millj­arða á ári við þetta.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, mun leggja frumvarpið fram í vor.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, mun leggja frum­varpið fram í vor. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ætlar að leggja fram frum­varp um end­ur­skoð­aðar og ein­fald­ari reglur um reiknað end­ur­gjald í atvinnu­rekstri eða sjálf­stæðri starf­semi aðila í eigin rekstri í apríl á næsta ári. Markmið þess er að með varna mis­munun í skatt­lagn­ingu úttekta eig­enda úr félögum. Þá verður reglu­verk í kringum tekju­til­flutn­ing tekið til end­ur­skoð­unar til að tryggja að þau sem hafa ein­göngu fjár­magnstekjur reikni sér end­ur­gjald og greiði þannig útsvar.

Frum­varp­inu hefur verið bætt inn á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar.

Í stjórn­­­­­­­ar­sátt­­­­mála rík­­­­is­­­­stjórn­­­­­­­ar­innar frá 30. nóv­­­­em­ber 2021 sagði að skatt­­­­mats­­­­reglur yrðu end­­­­ur­­­­skoð­aðar og að komið verði í veg fyrir „óeðli­­­­lega og óheil­brigða hvata til stofn­unar einka­hluta­­­­fé­laga“.

Í grein sem Arn­aldur Sölvi Krist­jáns­­son og Róbert Farest­veit, hag­fræð­ingar hjá Alþýðu­sam­bandi Íslands (ASÍ), skrif­uðu í Vís­bend­ingu í sept­em­ber í fyrra kom fram að skatta­snið­ganga í formi tekju­til­flutn­ings, sem feli í sér að fólk skrái launa­­tekjur sínar rang­­lega sem fjár­­­magnstekj­­ur, komi í veg fyrir að þeir greiði útsvar og heild­ar­skatt­pró­senta þeirra verður fyrir mikið miklu lægri en ella. Þetta á sér aðal­­­lega stað á meðal atvinn­u­rek­enda með háar tekj­­ur sem taka þær í gegnum einka­hluta­fé­lög.

[adspot]Hag­fræð­ing­arnir tveir sögðu að með því að tak­marka slíkan til­flutn­ing myndu árlegar skatt­tekjur aukast um allt að átta millj­arða króna á ári, styrkja tekju­öflun sveit­ar­fé­laga og auka skatt­byrði þeirra sem eru tekju­hærri.

Skattmat á hlunnindum tekið til endurskoðunar

Kjarn­inn spurð­ist fyrir um hvað fælist í þessu stefn­u­­­máli rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­innar fyrr á þessu ári, en hvorki for­­­sæt­is- né fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­neytið gat svarað því.

Jóhann Páll Jóhanns­­­son, þing­­­maður Sam­­­fylk­ing­­­ar­inn­­­ar, lagði í kjöl­farið fram fyr­ir­­­spurn á Alþingi um sama mál, og fékk efn­is­­­legt svar við henni frá fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Í því svari sagði að end­­­ur­­­skoðun skatt­­­mats­regln­anna, til að koma í veg fyrir óeðli­­­lega og óheil­brigða hvata til stofn­unar einka­hluta­­­fé­laga, feli í sér að skatt­­­mat á hlunn­indum og reglur um reiknað end­­­ur­­­gjald verði teknar til ein­hvers­­­konar end­­­ur­­­skoð­un­­­ar.

Þeir sem eiga einka­hluta­­­fé­lag utan um ein­hvers­­­konar rekstur eiga að reikna sér laun fyrir þá vinnu sem felst í rekstr­in­um, sem getur eðli máls­ins sam­­­kvæmt verið alls­­­kon­­­ar. Rík­­­is­skatt­­­stjóri setur árlega reglur um hver lág­­­marks­­­laun fyrir störf eigi að vera.

Munur á skatt­­pró­­sentu getur falið í sér hvata

Hæsta skatt­þrepið í almennum tekju­skatti er 46,25 pró­sent en sam­an­lagður skattur á hagnað og arð­greiðslur er tals­vert lægri, eða 37,6 pró­sent.

Í svari Bjarna sagði að gætt hafi „til­hneig­ingar til þess að þeir sem telja fram launa­­­tekjur á grund­velli reikn­aðs end­­­ur­gjalds gangi út frá lægstu við­mið­unum sem regl­­­urnar heim­ila og greiði sér í rík­­­­­ari mæli út hagnað eða arð af rekstri. Af því leiðir að þeir sem telja fram lægra reiknað end­­­ur­­­gjald en rétt mætti telja að séu tekjur þeirra í reynd greiða lægri tekju­skatt til rík­­­is­­­sjóðs en þeir sem starfa hjá ótengdum vinn­u­veit­end­­­um. Lægri reiknuð laun þýða enn fremur að greitt er lægra trygg­inga­gjald og iðgjald til líf­eyr­is­­­sjóðs en ella væri.“

Bjarni sagði að munur á tekju­skatti ann­­ars vegar og sam­an­lögðum skatt­greiðslum vegna arðs og hagn­aðar hins vegar geta falið í sér hvata til að stofna félag utan um atvinn­u­­­rekstur svo hagn­aður skatt­­­legg­ist í lægra hlut­­­falli en efsta þrep­inu. „Þessu til við­­­bótar er hætta á að því að lög­­­að­ilar og þeir sem stunda sjálf­­­stæðan atvinn­u­­­rekstur gjald­­­færi útgjöld á rekstur sem rétt væri að þeir beri per­­­són­u­­­lega af launa­­­tekjum sín­­­um. Í því felst ígildi hlunn­inda eða tekna sem hvorki er greiddur tekju­skattur af í rík­­­is­­­sjóð né launa­tengd gjöld. Einnig að virð­is­auka­skattur af einka­­­kostn­aði sé tal­inn fram sem inn­­­skattur þannig að skil á virð­is­auka­skatti í rík­­­is­­­sjóð verði lægri sem því nem­­­ur.“

Ætla að skipa starfs­hóp

Jóhann Páll spurði einnig af hverju það hafi ekki verið gripið fyrr til aðgerða til að sporna við þessum hvötum sem eru inn­­­­­byggðir inn í skatt­­­mats­­­kerfi Íslands. Í svari ráð­herra var því ekki svarað beint heldur þar þar meðal ann­­­ars að í öðrum löndum hafi verið farnar „ýmsar aðrar leiðir en hér á landi til að reyna að sam­ræma skatt­lagn­ingu á tekjur af mis­­­mun­andi upp­­­runa en ljóst er að það getur verið vanda­­­samt í fram­­­kvæmd.“

Fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði að rík­­­is­­­stjórnin ætli sér að koma í veg fyrir þessa hvata, í sam­ræmi við fyr­ir­heit í stjórn­­­­­ar­sátt­­­mála, með því að stofna sér­­­stakan starfs­hóp um verk­efn­ið. Erindi þess hóps verður skil­­­greint í skip­un­­­ar­bréfi. „Þar verður m.a. kveðið á um end­­­ur­­­skoðun og ein­­­földun reglna um reiknað end­­­ur­­­gjald í eigin atvinn­u­­­rekstri og sam­­­spil við skatt­lagn­ingu á hagnað og arð sem og skatt­­­mat vegna hlunn­inda og úttekta eig­enda úr félög­­­um.“

Ekki hefur verið til­kynnt um skipun þess starfs­hóps en á heima­síðu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins segir að það verk­efni að end­ur­meta skatt­mats­reglur sé hafið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár