Mynd: Bára Huld Beck

Versta kreppa á Íslandi frá árinu 1920

Útlit er fyrir að far­sóttin sem nú geisar muni valda „þjóð­ar­bú­inu lang­vinnum skaða.“ Ekki er von á fleiri ferða­mönnum til lands­ins í ár, sjáv­ar­út­vegur mun upp­lifa sinn mesta sam­drátt frá því snemma á níunda ára­tugnum.

Grunnspá Seðla­banka Íslands um þróun efna­hags­mála á Íslandi gerir nú ráð fyrir að sam­dráttur í lands­fram­leiðslu í ár verði átta pró­sent, sem sam­svarar 180 millj­örðum króna. Það yrði mesti sam­dráttur sem mælst hefur á einu ári hér­lendis síðan árið 1920 og umtals­vert meiri enn sá sem varð eftir banka­hrunið, en árið 2009 dróst hag­vöxtur saman um 6,8 pró­sent.

Mikil óvissa er þó fyrir hendi um þróun mála, þar sem áhrif far­sótt­ar­innar sem geisar vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 á heims­bú­skap­inn geti verið mun lang­líf­ari en grunn­spá bank­ans gerir ráð fyrir. Í svart­sýn­ustu spá hans er því gert ráð fyrir tíu pró­sent sam­drætti og bank­inn telur að hann geti hæg­lega orðið meiri „ef sótt­varn­ar­að­gerðir stjórn­valda vara lengur eða önnur bylgja far­ald­urs­ins kæmi fram og sam­dráttur í ferða­þjón­ustu reynd­ist þá meiri og lang­líf­ari.“

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í maí-útgáfu Pen­inga­mála, riti sem Seðla­banki Íslands gefur út fjórum sinnum á ári þar sem gerð er grein fyrir horfum í efna­hags- og pen­inga­málum. Í rit­inu segir að útlit sé fyrir að „far­sóttin valdi þjóð­ar­bú­inu lang­vinnum skaða.“

Gera ekki ráð fyrir fleiri ferðamönnum í ár

Grunnspá Seðla­bank­ans gerir ráð fyrir því að fjöldi ferða­manna sem heim­sæki Ísland árið 2020 verði undir 400 þús­und, en þeir voru tvær millj­ónir í fyrra og 2,3 millj­ónir árið 2018. Því er um að ræða 84 pró­sent sam­drátt frá metár­inu.

Sam­kvæmt tölum Ferða­mála­stofu um fjölda ferða­manna þá komu alls 351.264 ferða­menn til Íslands á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2020. Í apríl voru brott­farir frá Íslandi 1.262 tals­ins, eða 99,3 pró­sent færri en í sama mán­uði árið áður. Þar var vart um ferða­menn að ræða þar sem Pól­verjar, sem eru lang­fjöl­menn­asti hópur erlendra rík­is­borg­ara sem býr á Íslandi, voru þrír af hverjum fjórum erlendum far­þegum sem fóru úr landi.

Miðað við þessar tölur er ljóst að grunn­spá Seðla­banka Íslands miðar við að það komi varla nokkur annar ferða­maður til Íslands í ár, þrátt fyrir að stjórn­völd hafi ákveðið að opna landa­mæri Íslands með tak­mörk­unum og örygg­is­ráð­stöf­unum frá miðjum næsta mán­uði.

Þessi mikla fækkun á komum ferða­manna til lands­ins gerir það að verkum að útflutt þjón­usta dregst saman milli ára um meira en 50 pró­sent.

Mesti samdráttur í sjávarútvegi frá níunda áratugnum

Það er þó ekki ein­ungis ferða­þjón­ustan sem er að drag­ast saman. Útflutn­ingur í heild mun sam­kvæmt grunn­spánni minnka um tæp­lega þriðj­ung, sem yrði mesti sam­dráttur útflutn­ings á einu ári frá upp­hafi þjóð­hags­reikn­inga hér á landi.

Spáð er umtalsverðum samdrætti í útflutningi á sjávarafurðum.
Spáð er umtals­verðum sam­drætti í útflutn­ingi á sjáv­ar­af­urðum.

Hin stóra stoðin undir efna­hags­kerf­inu, sjáv­ar­út­vegur, mun einnig finna veru­lega fyrir sam­drætti í ár. Könnun Seðla­bank­ans á meðal sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja eftir að far­ald­ur­inn skall á bendi til umtals­verðra breyt­inga á eft­ir­spurn eftir sjáv­ar­af­urðum og trufl­ana við dreif­ingu afurða til sölu­að­ila. Dregið hafi úr sölu á sjó­frystum afurðum á Evr­ópu­markað og eft­ir­spurn hót­ela- og veit­inga­geirans eftir ferskum og sjó­frystum afurðum hvarf nær alger­lega þegar ferða­þjón­usta í helstu við­skipta­löndum lagð­ist nán­ast af og veit­inga­húsum var víða lokað. „Einnig eru vís­bend­ingar um að stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin hafi dregið úr sjó­sókn. Grunn­spáin gerir því ráð fyrir að útflutn­ingur sjáv­ar­af­urða verði um 12 pró­sent minni í ár en í fyrra sem yrði mesti sam­dráttur í sjáv­ar­út­vegi frá því snemma á níunda ára­tug síð­ustu aldar.“

Horfur fyrir annan vöru­út­flutn­ing hafa líka versnað og útlit er fyrir tölu­verðan sam­drátt í útflutn­ingi hátækni­bún­aðar til mat­væla­fram­leiðslu og lækn­inga­vöru og minni vöxt í útflutn­ingi eld­is­fisks en áður var spáð. Þá er spáð 1,5 pró­sent sam­drætti í útflutn­ingi álaf­urða í ár sem er heldur meiri sam­dráttur en spáð var í febr­úar.

Á heild­ina litið er gert ráð fyrir að útflutn­ingur vöru og þjón­ustu drag­ist saman um tæp­lega þriðj­ung í ár. Það yrði mesti sam­dráttur í útflutn­ingi á heilu ári frá upp­hafi þjóð­hags­reikn­inga og þarf að fara aftur til árs­ins 2010 til að finna áþekkt magn útflutn­ings og í ár.

Ofan á þetta er spáð um sjö pró­sent sam­drætti einka­neyslu þar sem minni útgjöld erlendis vega þyngst. Gangi þetta eftir yrði sam­dráttur einka­neyslu í ár sá mesti frá árinu 2009 en þá dróst hún saman um 12,6 pró­sent.

Mesta atvinnuleysi frá upphafi mælinga

Afleið­ingar þess­arar stöðu, sem sann­ar­lega á sér engin for­dæmi, eiga sér nokkrar birt­ing­ar­myndir. Atvinnu­leysi hefur þegar stór­auk­ist og mun sam­kvæmt spá Seðla­bank­ans ná hámarki í um 12 pró­sentum á þriðja árs­fjórð­ungi, eða síð­sum­ars og snemma hausts. Að með­al­tali er talið að það verði tæp­lega níu pró­sent á árinu 2020 „sem er mesta atvinnu­leysi frá upp­hafi mæl­inga og nokkru meira en það var í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar fyrir ára­tug.

Nýleg lækkun á gengi krón­unnar veldur því að verð­bólga verður heldur meiri á næstu mán­uðum en spáð var í febr­úar, þótt áfram sé talið að hún verði við eða undir verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans. „Á móti áhrifum lægra gengis vegur mikil lækkun alþjóð­legs olíu­verðs og þá hefur alþjóð­legt mat­væla- og hrá­vöru­verð almennt lækkað þótt verð sumra vara hafi hækkað vegna ýmiss konar fram­leiðslu­vanda og skorts.“ Seðla­bank­inn spáir því að þegar líður á þetta ár fari áhrif mik­ils slaka sem mynd­ast hefur í þjóð­ar­bú­skapnum að vega þyngra og því er spáð að verð­bólga verði undir tvö pró­sent á seinni hluta spá­tím­ans.

Mesti samdráttur sem hefur mælst í þróuðum ríkjum

Far­ald­ur­inn er vit­an­lega ekki bund­inn við Ísland, heldur geisar um allan heim. Á heims­vísu er gert ráð fyrir að sam­drátt­ur­inn á öðrum árs­fjórð­ungi verði sá mesti sem mælst hefur í þró­uðum ríkjum frá upp­hafi árs­fjórð­ungs­legra þjóð­hags­reikn­inga. Í Pen­inga­málum segir: „Í nýrri spá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins er gert ráð fyrir að heims­hag­kerfið drag­ist saman um þrjú pró­sent í ár en í jan­úar spáði sjóð­ur­inn ríf­lega þrjú pró­sent hag­vexti á árinu. Gangi spáin eftir yrði þetta mesti sam­dráttur sem mælst hefur í heims­bú­skapnum á frið­ar­tímum frá því í krepp­unni miklu á fjórða ára­tug síð­ustu aldar og mun meiri sam­dráttur en varð í alþjóð­legu fjár­málakrepp­unni fyrir lið­lega ára­tug þegar hann mæld­ist 0,1 pró­sent.“

Ekki sé þó loku fyrir það skotið að far­ald­ur­inn, og afleið­ingar hans, geti verið lang­vinni. Mörg ríki glími auk þess við marg­vís­leg önnur áföll eins og til dæmis umtals­vert fjár­magns­út­flæði og mikla lækkun hrá­vöru­verðs. Að mati Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins sé því hætta á að efna­hags­fram­vindan verði enn óhag­stæð­ari en spá hans gerir ráð fyrir. „Sam­drátt­ur­inn í heims­bú­skapnum gæti jafn­vel orðið tvö­falt meiri en sjóð­ur­inn spáir ef far­sóttin gengur hægar niður og hætta er á að bati næsta árs verði að engu ef far­sóttin blossar upp á ný. Takist hins vegar að finna bólu­efni við sjúk­dómnum gæti heims­bú­skap­ur­inn tekið fyrr og meira við sér.“

Vöxtur í náinni framtíð

Hafa verður í huga að mikil óvissa er um hversu djúp og lang­vinn kreppan verður í ár, einkum vegna óvissu um þróun far­sótt­ar­innar og getu heil­brigð­is­kerfa við að ráða nið­ur­lögum hennar. Spá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins gerir ráð fyrir að heims­far­ald­ur­inn nái hámarki á öðrum árs­fjórð­ungi og taki síðan að ganga niður. Í Pen­inga­málum segir að sam­hliða því yrði hægt og bít­andi slakað á þeim sótt­varn­ar­að­gerðum sem beitt hefur verið til að hefta útbreiðslu sjúk­dóms­ins. „Samkvæmt þessu gerir sjóð­ur­inn ráð fyrir að heims­hag­vöxtur taki við sér á næsta ári og verði að með­al­tali 5,8 pró­sent. Þetta er hins vegar háð því hversu lang­vinnur far­ald­ur­inn verður.“

Grunnspá Seðla­bank­ans fyrir næsta ár er í takti við þetta, og gerir hún ráð fyrir tæp­lega fimm pró­sent hag­vexti hér á árinu 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár