Móttökumiðstöð stofnuð og refsingar fyrir vegabréfsleysi takmarkaðar

Setja á á stofn mót­töku­mið­stöð fyrir þá sem sækja um alþjóð­lega vernd hér á landi svo hægt sé að greina þá sem eru í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu og sér­þarfir þeirra. Þannig geti umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, hæl­is­leit­endur, fengið fag­þjón­ustu á einum stað. Þá eiga öll sam­skipti útlend­inga við íslensk stjórn­völd að fara í gegnum Útlend­inga­stofnun. Þetta er á meðal þess sem lagt er til í drögum að frum­varpi um breyt­ingar á útlend­inga­lögum.

Þverpóli­tísk nefnd um útlend­inga­mál skil­aði í dag frum­varpi sem felur í sér heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um útlend­inga. Áætlað er að frum­varpið verði lagt fram á þingi nú í haust. Frum­varpið bygg­ist að veru­legu leyti á öðru frum­varpi sem lagt var fram á síð­asta kjör­tíma­bili af nefnd sem þá starf­aði og skil­aði af sér skýrslu um mál­efni útlend­inga, sem varð að frum­varpi sem ekki náði fram að ganga.

Óttarr Proppé, Birgitta Jóns­dóttir, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, Svandís Svav­ars­dóttir, Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir og Össur Skarp­héð­ins­son sátu í nefnd­inni sem hefur starfað í eitt og hálft ár. Með þeim störf­uðu tveir sér­fræð­ingar í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, Íris Björg Krist­jáns­dóttir og Erna Kristín Blöndal, auk þess sem Sig­ur­björg Rut Hoffritz, lög­fræð­ingur hjá Útlend­inga­stofnun, hefur starfað með nefnd­inni. Þá hafa sér­fræð­ingar í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, hjá Útlend­inga­stofnun og Vinnu­mála­stofnun komið að end­ur­skoð­un­inni.

Takmarka refsingar fyrir vegabréfsleysi


Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir því að hæl­is­leit­anda sem komi til Íslands ólög­lega verði ekki refsað, „færi hann rök fyrir því eða líkur séu á að hann komi í óslit­inni för frá svæði þar sem hann hafði ástæðu til að ótt­ast ofsóknir [...] eða var án rík­is­fangs og án mögu­leika að öðl­ast slíkt“. Skilyrði fyrir því er að við­kom­andi gefi sig fram við stjórn­völd eða færi gildar ástæður fyrir því að hafa ekki gert það.

Núna er það svo að hæl­is­leit­endur eru iðu­lega dæmdir í 30 daga fang­elsi fyrir að fram­vísa fölsuðum eða stolnum skil­ríkjum við kom­una til lands­ins. Þetta hefur verið gagn­rýnt, enda hafa hæl­is­leit­endur oft ekki kost á eigin skil­ríkjum. Ákvæðið í frum­varp­inu er í sam­ræmi við ákvæði í flótta­manna­samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Þá er í frum­varp­inu lagt til að rétt­ar­á­hrifum vegna ákvarð­ana Útlend­inga­stofna verði sjálf­krafa frestað í öllum málum um alþjóð­lega vernd þar sem nið­ur­staða er kærð til kæru­nefndar útlend­inga­mála. Þannig eigi allir að fá úrlausn sinna mála fyrir æðra stjórn­sýslu­stigi áður en til þess kemur að fólki sé vísað úr landi.

Dvalarleyfisflokkum breytt og skilyrði einfölduð


Frum­varpið tekur einnig til dval­ar­leyfa og sam­kvæmt því eru lagðar til ýmsar breyt­ingar á rétt­indum og rétt­inda­söfnun sem teng­ist dval­ar­leyfum. Flokkum dval­ar­leyfa verður einnig breytt og skil­yrðin ein­földuð, til dæmis er lögð áhersla á að koma til móts við aðstæður atvinnu­lífs, vinnu­mark­aðar og háskóla- og vís­inda­sam­fé­lags­ins.

Dval­ar­leyf­is­flokk­arnir verða: dval­ar­leyfi vegna atvinnu­þátt­töku, dval­ar­leyfi vegna mennt­unar, rann­sókna og menn­ing­ar­skipta og dval­ar­leyfi vegna fjöl­skyldu­sam­ein­ingar. Fjórði flokk­ur­inn er svo dval­ar­leyfi vegna alþjóð­legrar verndar, mann­úð­ar­sjón­ar­miða og mansals. Fimmti flokk­ur­inn er svo önnur dval­ar­leyfi, en undir það geta fallið dval­ar­leyfi á grund­velli lög­mæts og sér­staks til­gangs, til dæmis ef við­kom­andi hefur myndað sér­stök tengsl hér á landi.

Í núver­andi kerfi er það svo að sum dval­ar­leyfi mynda með tím­anum rétt til var­an­legrar búsetu hér á landi og önnur ekki. Samkvæmt frum­varp­inu mun kerfið breyt­ast á þann hátt að rétt­inda­söfnun fylgir ein­stak­lingnum en ekki teg­und dval­ar­leyfis, þannig að þótt skipt sé um teg­und dval­ar­leyfis breyt­ist ekki rétt­inda­söfnun.

Ýmsar formbreytingar og breytingar til að Ísland uppfylli alþjóðaskuldbindingar


Þá mun rík­is­fangs­laust fólk eiga sjálf­stæðan rétt til alþjóð­legrar verndar, sam­kvæmt nýju ákvæði um rík­is­fangs­leysi. Þetta er liður í því að inn­leiða samn­ing um rétt­ar­stöðu rík­is­fangs­lausra ein­stak­linga frá árinu 1954 og samn­ing um að draga úr rík­is­fangs­leysi, frá árinu 1961. Ýmsar fleiri breyt­ingar á lögum eiga einnig að stuðla að því að stjórn­völd upp­fylli skuld­bind­ingar sínar á alþjóða­vett­vangi, meðal ann­ars áhersla á rétt­indi barna og umbætur í þeim mála­flokki.

Þá er upp­setn­ingu og kafla­skipt­ingu lag­anna einnig breytt, en nefndin von­ast til þess að það geri útlend­inga­lögin aðgengi­legri. Þá eiga lögin að stuðla að því að það verði sam­ræm­ing milli laga um útlend­inga og laga um atvinnu­rétt­indi útlend­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár