Ekki tímabært að ræða um hvort Bandaríkjaher komi aftur til Íslands

Aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra í Banda­ríkj­unum ræddi við Kjarnann um norð­ur­slóða­mál, hval­veiðar og hvort Banda­ríkja­menn opin her­stöð í Keflavík á ný.

Benjamin Ziff er aðstoðarutanríkisráðherra í Bandaríkjunum og ber ábyrgð á málum sem varða Evrópu og Evrasíu
Benjamin Ziff er aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra í Banda­ríkj­unum og ber ábyrgð á málum sem varða Evrópu og Evrasíu Mynd: Birgir Þór Harðarson.

Benjamin Ziff er aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra í Banda­ríkj­unum og ber

ábyrgð á málum sem varða Evrópu og Evrasíu. Kjarninn ræddi við Ziff um

Norð­ur­slóða­mál, hval­veiðar og mögu­leik­ann á því að Banda­ríkja­menn opni

her­stöð á ný.

„Ísland spilar óvenju­stórt hlut­verk í alþjóða­stjórn­málum um þessar
mundir,“ segir Benjamin Ziff, aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna.
„Ekki bara vegna land­fræði­legrar stað­setn­ingar heldur líka vegna
fram­taks­semi og leið­toga­hlut­verks sem hefur verið sýnt í mál­efnum eins
og Norð­ur­slóða­málum.“

Ziff kom einmitt hingað til lands um síð­ustu helgi til að vera
við­staddur og taka þátt í Arctic Circle ráð­stefn­unni í Hörpu.
Banda­ríkja­menn tóku nýlega við for­sæti í Norð­ur­skauts­ráð­inu.
„Rétt eins og fyrir Ísland eru Norð­ur­slóðir gríð­ar­lega mik­il­vægt svæði
fyrir Banda­ríkin af mörgum ástæðum, efna­hags­legum, land­fræðipóli­tískum
og sam­fé­lags­legum,“ segir Ziff.

„Okkar for­sæti mun ein­beita sér að þrennu, því að bæta efna­hags­leg og
lífs­skil­yrði fólks­ins sem býr á norð­ur­slóðum, að bæta örygg­is­mál á
svæð­inu og auð­vitað verður áhersla á lofts­lags­breyt­ingar. Okkar
mark­mið er að líta á Norð­ur­skautið sem alþjóð­lega auð­lind og vernda
það sem slíka.“

Ziff segir að Banda­ríkja­menn vilji gera það sem þeir
geta til þess að tryggja að Norð­ur­skautið verði áfram sam­eig­in­leg
arf­leið, og verði ekki spillt af manna völdum.

„Með lofts­lags­breyt­ingum og bráðnun íss sjáum við hvað áhug­inn á
sjó­leið­inni yfir svæðið er að aukast. Þótt það séu lík­lega tutt­ugu til
þrjá­tíu ár í að þetta verði algengt þurfum við engu að síður að und­ar­búa það núna, og und­ir­búa okkur undir meng­un­ina og skemmd­irnar
sem af þessu gætu orðið. Það þarf líka að huga að lag­ara­mm­anum, sem
þarf að vera í lagi til að frjáls för og frjálsir flutn­ingar geti orðið þarna um.“

Hann segir það nauð­syn­legt að brjóta á bak aftur sam­keppni um og mis­mun­andi kröfur Norð­ur­slóða­ríkj­anna, „og finna kerfi þar sem not á svæð­inu er þannig að það gagn­ist öllum og sé gert á sann­gjarnan hátt.“

Ísland mikilvægt þótt ekki sé á það minnst

Ekki er minnst á Ísland í nýrri Norð­ur­slóða­stefnu Banda­ríkj­anna, en
Ziff segir samt sem áður að Ísland sé „lyk­il­banda­lags­þjóð“ fyrir
Banda­ríkin, enda stofn­með­limur í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og íkin tvö
hafi mikil efna­hags­leg tengsl. „Ég heim­sótti Sjáv­ar­kla­s­ann hérna, sem
er að gera magn­aða hluti í sjáv­ar­rann­sóknum og því hvernig hægt er að
nota allt frá hausi til sporðs á fiskum, allt slíka hefur mikla
efna­hags­lega mögu­leika í Banda­ríkj­unum líka.“ Banda­ríkja­menn geti lært
mikið af Íslend­ingum í þessum efnum.

Vill fleiri í hvalaskoðun í stað hvalveiða

Í einu mál­efni sjáv­ar­ins vilja Banda­ríkja­menn þó ekki læra af
Íslend­ingum. Banda­ríkja­stjórn hefur ítrekað und­an­farin ár gagn­rýnt
hval­veiðar Íslend­inga og jafn­vel látið kanna hvort halda eigi
sam­skiptum ríkj­anna með sama hætti vegna þeirra. Ziff segir að við­horf
og afstaða Banda­ríkja­manna í þessum málum sé vel þekkt. „Hval­veiðar
eru alþjóð­legt mál en ekki spurn­ing um tví­hliða sam­skipti
Banda­ríkj­anna og Íslands. Ég von­ast til þess að vera á leið í
hvala­skoðun, og fá þá að verða hluti af stórum hópi fólks sem fer að
skoða hvali lifa og anda, en ekki vera veidda í gróða­skyni.“

Hann nefnir ferða­manna­sprengj­una sem orðið hefur á Íslandi und­an­farið. „Hluti þessa fólks hefur áhuga á sjáv­ar­um­hverfi Íslands, hefur áhuga á því að sjá hér hluti sem það sér ekki ann­ars staðar, og hvalir eru þar á meðal. Ég trúi ekki öðru en að það að veiða hvali í versl­un­ar­skyni hafi minna efna­hags­legt gildi fyrir ísland en það að nýta náveru hval­anna, lif­andi, í þess­ari miklu ferða­mennsku hér á landi.“

Ziff seg­ist hafa hitt marga íslenska emb­ætt­is­menn og hval­veiðar komi alltaf upp. „En ég held að okkar staða sé alveg þekkt og við vonum að við sjáum fram­þróun í þessum málum, sem muni gera enn fleira fólki kleift að koma hingað til að fara í hvala­skoðun.“

Ekki tímabært að tala um opnun herstöðvar á Íslandi

Við fengum líka af því fréttir fyrir skömmu að rætt hefði verið um
aukna við­veru Banda­ríkja­hers á Íslandi á nýjan leik. Ziff segir að það
sé þó of snemmt að ræða ein­hverjar ákvarð­anir í því sam­hengi. „Ég veit
að hingað hafa komið emb­ætt­is­menn til að skoða þennan mögu­leika. Staða
Íslands í Norður-Atl­ants­hafi, og sú stað­reynd að inn­við­irnir eru til
staðar og þeim hefur verið vel við haldið af Íslend­ingum frá 2006,
þegar við fórum frá Keflavík, sýna að ef þörf krefur er Ísland í góðri
stöðu til að taka þátt á breið­ari hátt í aðgerðum Nató, en þessar
ákvarð­anir hafa ekki verið teknar.“

Myndi þetta tengj­ast Rússum og hrak­andi sam­skiptum Banda­ríkj­anna og
ann­arra Vest­ur­velda við Rússland? „Ég myndi ekki ganga svo langt að
segja að sam­skipt­unum fari hrak­andi. Ég held að það sé mik­il­vægt að
horfa ekki á málin eins og í kalda stríð­inu. Heim­ur­inn er miklu
alþjóða­vædd­ari og marg­hliða núna en þegar Banda­ríkja­her fór frá
Íslandi 2006. Áskor­an­irnar sem við stöndum frammi fyrir eru það líka.
Stað­setn­ing her­liðs er því ekki endi­lega merki um mik­il­vægi eða stöðu
Íslands. Við sjáum núna auk­inn áhuga alþjóð­legra skipa­fyr­ir­tækja á
íslandi, vegna Norð­ur­slóða, ég nefndi áðan íslensk frum­kvöðla­fyr­ir­tæki
í sjáv­ar­út­vegi og sjáv­ar­rann­sóknum, þetta er á heims­mæli­kvarða. Það er
miklu marg­þætt­ari sýn á það hvað það þýðir að vera mik­il­vægur í
heim­inum í dag. Banda­ríkin segja að gildi þjóðar sé í menntun og
frum­kvöðla­starf­semi, og þar stenst eng­inn Íslandi snún­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár