Ísland dæmt í fimm málum á tveimur dögum

Ísland hefur frá því á föstu­dag­inn verið dæmt í fimm málum fyrir EFTA dóm­stólnum, og í öllum til­vikum hefur íslenska ríkið verið dæmt til þess að greiða allan máls­kostnað vegna mála­ferl­anna. Dómar voru kveðnir upp á föstu­dag og þriðju­dag.

Fjögur mál­anna voru höfðuð af ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, vegna þess að Ísland hafði ekki inn­leitt Evr­óputil­skip­anir á réttum tíma. Það fimmta snýr að því að Ísland end­ur­heimti ekki ólög­mæta rík­is­að­stoð frá fimm fyr­ir­tækjum eins og ESA hafði kveðið á um að ætti að gera.

Sem fyrr segir eru fjögur mál til­komin vegna þess að Ísland inn­leiddi ekki Evr­óputil­skip­anir, sem rík­inu ber að gera vegna EES samn­ings­ins. Tímara­mmi er settur öllum ríkjum til þess að taka upp til­skip­anir af þessu tagi, og þegar Ísland inn­leiðir ekki á réttum tíma fer eft­ir­lits­stofnun EFTA í málið. Íslensk stjórn­völd fá þá form­leg bréf þar sem þeim er til­kynnt að þau hafi með því brotið gegn EES samn­ingnum. Í þremur þess­ara mála svör­uðu íslensk stjórn­völd ekki bréfum ESA.

Næsta skref ESA er þá að senda frá sér rök­stutt álit með nið­ur­stöðu, þar sem Íslandi er gert að grípa til aðgerða innan tveggja mán­aða. Í sömu þremur mál­unum var því ekki heldur svarað.

Þá er síð­asta skrefið að fara í mál fyrir EFTA dóm­stólnum og fá brot á EES samn­ingnum stað­fest, sem var gert í öllum til­vikum.

Innleiðingarhallinn verstur hér

Ísland stendur sig verst allra þeirra 31 ríkja sem eiga aðild að Evr­ópska efna­hags­svæð­inu (EES) í að inn­leiða til­skip­anir sem ríkin hafa skuld­bundið sig til að inn­leiða í lög innan tíma­marka. Þetta er iðu­lega kallað inn­leið­ing­ar­halli, og inn­leið­ing­ar­halli Íslands er 1,8 pró­sent. Hin EFTA-­ríkin sem eru aðilar að EES, Liect­hen­stein og Nor­eg­ur, standa sig mun bet­ur. Í Liect­hen­stein er inn­leið­ing­ar­hall­inn 1,2 pró­sent en í Nor­egi eng­inn. Meðal inn­leið­ing­ar­hali í Evr­ópu­sam­bands­ríkjum er 0,7 pró­sent.

Í nýjasta frammi­stöðu­mati ESA frá því um miðjan júlí kemur fram að Ísland hafi ekki inn­leitt 16 til­skip­anir innan tíma­marka. „Þegar EES-­ríki inn­leiðir ekki til­skipun innri mark­að­ar­ins á réttum tíma fá ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki ekki notið þeirra rétt­inda sem hún felur í sér. Íslensk fyr­ir­tæki kunna til dæmis að úti­lok­ast frá aðgangi að innri mark­að­inum ef sam­ræmdar tækni­legar reglur eru ekki inn­leidd­ar. Því lengur sem inn­leið­ing dregst, því alvar­legri geta afleið­ing­arnar orð­ið,“ sagði í frammi­stöðu­mat­inu.

ESA hefur ítrekað sagt að Ísland þurfi að standa sig miklu betur til að standa við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart inn­leið­ingu á lögum og reglum EES samn­ing­ins.

Þvert gegn Evrópustefnunni

Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér til­kynn­ingu í kjöl­far þess að frammi­stöðu­matið var birt um miðjan júlí. Þar kom fram að Ísland hafi stöðugt verið að bæta þessa hlið á fram­kvæmd EES samn­ings­ins. Í nóv­em­ber 2014 hafi hall­inn verið 2,8% og 3,1% í apríl sama ár.

Í mars 2014, stuttu eftir að íslensk stjórn­völd höfðu sent bréf til Evr­ópu­sam­bands­ins þar sem því var lýst yfir að Ísland væri ekki lengur umsókn­ar­ríki að ESB, kynntu stjórn­völd nýja Evr­ópu­stefnu sína.

Þar var því lýst yfir að ráð­ast ætti í mikið átak til að gera betur í þessum málum. Á árinu 2014 átti upp­töku gerða í EES-samn­ing­inn að vera hraðað umtals­vert og eigi síðar en á fyrri hluta árs 2015 átti inn­leið­ing­ar­halli EES gerða að vera kom­inn undir 1%. Á sama tíma átti ekk­ert dóms­mál að vera fyrir EFTA dóm­stólnum vegna skorts á inn­leið­ingu EES gerða.

Málunum fyrir EFTA dóm­stólnum hefur hins vegar fjölgað, en sjö mál gegn Íslandi hafa verið í vinnslu hjá dóm­stólnum und­an­farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár