Eigið fé Vísis neikvætt um 174 milljónir í lok árs í fyrra

Þrátt fyrir tæp­lega millj­arð í rekstr­ar­hagnað í fyrra þá var eigið fé útgerð­ar­fé­lags­ins Vísis nei­kvætt í lok árs. Staðan hefur batnað mikið milli ára.

Eigið fé útgerð­ar­fé­lags­ins Vísis var nei­kvæmt um 1,4 millj­ónir evra í lok árs í fyrra, eða sem nemur um 174 millj­ónum króna, miðað við núver­andi gengi.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Vís­is­sam­stæð­unnar fyrir árið í fyrra. Sér­stak­lega er áréttað í skýr­ingum árs­reikn­ings­ins að stjórn­endur telji félagið rekstr­ar­hæft og að það geti staðið við allar skuld­bin­ingar þess. „Samkvæmt efna­hags­reikn­ingi var eigið fé félags­ins nei­kvætt um EUR 1,4 millj­ónir en hagn­aður árs­ins nam EUR 7,4 millj­ónum. Lang­tíma­lán félags­ins eru í skilum og engin van­skil á skuldum til staðar. Stjórn­endur félags­ins telja að rekstur félags­ins standi undir skuld­bind­ingum þess og það sé því rekstr­ar­hæft,“ segir í árs­reikn­ingnum.

Í lok árs 2014 var staðan enn verri, en þá var eigið fé nei­kvætt um rúm­lega 10 millj­ónir evra, eða sem nemur um 1,25 millj­örðum króna.

Heild­ar­eignir félags­ins námu 132 millj­ónum evra, eða sem nemur um 16,5 millj­örðum króna. Heild­ar­skuldir námu 133,4 millj­ónum evra, eða sem nemur tæp­lega 16,7 millj­örðum króna.

Tæpur milljarður í hagnað

Hagnaður Vísis í fyrra nam 7,4 milljón evra, eða um 980 millj­ónum króna. Enginn arður var greiddur úr félag­inu, enda félagið ekki með jákvætt eigið fé.

Stærsti ein­staki eig­andi félags­ins í lok árs í fyrra var dán­arbú Páls H. Páls­sonar, með rúm­lega 27 pró­sent hlut. Þá eiga Pétur, Kristín, Margrét, Sólný og Svanhvít Pálsbörn, 13,6 pró­sent hlut hvert og Páll J. Pálsson 4,8 pró­sent.

Á öðrum stað í reikn­ingnum koma þó fram önnur eig­enda­hlut­föll, en þar eru aðeins til­greindir inn­lendir hlut­hafar. Þar kemur fram að Pétur, Kristín, Margrét, Sólný og Svanhvít eigi öll 10,46 pró­sent, Páll H. Pálsson 20,92 pró­sent, og Páll J. Pálsson 3,69 pró­sent. Afgang­ur­inn, rúm­lega 23 pró­sent, er ekki til­greindur í þeirri upp­taln­ingu.

Í stjórn Vísis eru Sveinn Ari Guð­jóns­son, Kristín Páls­dóttir, Margrét Páls­dóttir, Óskar Magn­ús­son og Gústaf Bald­vins­son. Þeir tveir síð­ast­nefndu hafa báðir gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Samherja um ára­bil, og hefur Óskar átt sæti í stjórn félags­ins.

Fram­kvæmd­ar­stjóri er Pétur H. Pálsson.

Langtímaskuldir við banka aukast

Lang­tíma­skuldir Vísis við banka juk­ust umtals­vert á árinu 2015 miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs 2014. Í lok árs 2015 voru lang­tíma­skuldir við banka tæp­lega 105 millj­ónir evra, eða sem nemur um 13,2 millj­örðum króna. Í lok árs 2014 voru lang­tíma­skuld­irnar 40 millj­ónir evra, eða um fimm millj­örðum króna. Tæplega 70 millj­ónir evra töld­ust til skamm­tíma­skulda í lok árs 2014.

Rúmlega 98 pró­sent skulda er í evrum en í reikn­ingnum segir að 64,7 millj­ónir evra, eða um átta millj­arðar, séu á gjald­daga á næsta ári, 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár