Stjórnarmyndun um fá mikilvæg mál

Þó ekki liggi fyrir enn hvaða flokkar muni mynda rík­is­stjórn, þá er má leiða að því líkum að fá stór mál muni fá mikla athygli við stjórn­ar­myndun.

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður eru nú í gangi eftir sögu­legar Alþing­is­kosn­ingar 29. októ­ber síð­ast­lið­inn, og liggur ekki fyrir enn hvaða flokkar muni mynda rík­is­stjórn. Greint hefur verið frá þreif­ingum for­manna flokk­anna en þeir hafa allir átt fundi með Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta Íslands.

Þó ekki sé hægt að full­yrða hvaða flokkar verði með valda­þræð­ina í hendi sér, þá liggur fyrir að mörg krefj­andi verk­efni bíða rík­is­stjórn­ar­innar. Það gæti reynst snúið fyrir stjórn­mála­flokk­ana að ná saman um mik­il­væg mál, í ljósi mis­mun­andi stefnu þeirra í ein­stökum mála­flokkum.

Marga ein­staka mála­flokka má telja til, þar sem erfitt getur reynst að ná sam­stöðu um, en hér verða nefndir fimm mála­flokkar sér­stak­lega, sem ný rík­is­stjórn mun þurfa að móta stefnu um.

1. Kjaraviðræður á vinnumarkaði

Ákvörðun Kjara­ráðs, um að hækka laun þing­manna, ráð­herra og for­seta Íslands – sem tekin var á kjör­dag 29. októ­ber – hefur nú þegar hleypt illu blóði í kjara­við­ræður sem framundan eru, og má búast við hörðum átökum. Grunn­skóla­kenn­arar hafa fellt samn­inga í tvígang, og engin lausn er í sjón­máli í deilu þeirra við sveit­ar­fé­lög. Sjómenn deila við útgerðir, og framundan er svo alls­herj­ar­samn­ings­gerð á vinnu­mark­aði og end­ur­skoðun kjara­samn­inga. Ljóst er á yfir­lýs­ingum hags­muna­sam­taka bæði starfs­fólks og atvinnu­rek­enda, að tug­pró­senta hækk­anir ráða­manna hafa nú þegar hleypt illu blóði í við­semj­endur á vinnu­mark­aði, sem hafa þvert yfir kallað eftir því að ákvörðun kjara­ráðs verði aft­ur­kölluð. Ný rík­is­stjórn fær þetta vanda­mál í fangið, og verður vafa­lítið snúið að ná ásætt­an­legri lend­ingu í því.

2. Hvert á gengi krónunnar að vera?

Ein meiri­háttar breyt­ing hefur orðið á stöðu efna­hags­mála í land­inu, og hún er sú að gengi krón­unnar gagn­var helstu við­skipta­myntum hefur styrkst veru­lega á síð­ustu 12 til 15 mán­uðum. Evran kostar nú 123 krónur en fyrir ári var verð hennar 150 krónur. Sterl­ingspundið kostar 136 krónur en fyrir ári var verð þess 205 krónur. Brexit atkvæða­greiðslan frá því í júní hefur haft afger­andi áhrif á gengi punds­ins sem hefur veikst mikið, og sér ekki fyrir end­ann á þeirri þróun. Fyrir útflutn­ings­fyr­ir­tæki, ekki síst í sjáv­ar­út­vegi, er þetta alvar­legt mál en um 12 pró­sent af heild­ar­út­flutn­ingi lands­ins fer til Bret­lands og um 19 pró­sent erlendra ferða­manna sem hingað komu í fyrra, komu frá Bret­landi. Styrking krón­unnar gagn­vart pund­inu hefur því haft mikil áhrif á skömmum tíma. Þá kostar Banda­ríkja­dalur nú 111 krónur en fyrir ári kost­aði hann 136 krónur. Stjórn­mála­flokk­arnir ræddu flestir um þessa stöðu fyrir kosn­ingar, en áhersl­urnar voru mis­mun­andi. Þannig tal­aði Viðreisn fyrir því að koma á mynt­ráði, til þess að halda gengi krón­unnar stöð­ugu, en þá myndi gengi krón­unnar fylgja þróun til­tek­inna erlendra gjald­miðla. Slíkt er þó kostn­að­ar­samt, og hafa aðrir stjórn­mála­flokkar ekki talað fyrir þessum leiðum.

3. Á að breyta um fiskveiðistjórnunarkerfi?

Kvóta­kerfið í sjáv­ar­út­vegi hefur verið þrætu­epli um ára­tuga­skeið, og fyrir þessar kosn­ingar boð­uðu margir flokkar breyt­ingar á því. Píratar, Vinstri græn, Viðreisn, Sam­fylk­ingin og Björt fram­tíð töl­uðu öll fyrir því að taka upp upp­boðs­leið í sjáv­ar­út­vegi, og horfðu meðal ann­ars til Færeyja í þeim efnum. Er mark­miðið með leið­inni að almenn­ingur fái til sín mark­aðs­verð fyrir afnot af auð­lindum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafa frekar talað fyrir því að halda í núver­andi fyr­ir­komu­lag, en þó hafa flokk­arnir sagst vera opnir fyrir því að skoða upp­boðs­leið­ina, með þá lít­inn hluta afla­heim­ilda. Umræður um þessi mál í stjórn­ar­mynd­un­ar­ferl­inu gætu orðið snúnar, og ekki hægt að segja með vissu að sátt sé í sjón­máli.

4. Spenna á húsnæðismarkaði

Aðgerðir á hús­næð­is­mark­aði voru áber­andi fyrir kosn­ingar, og töl­uðu stjórn­mála­flokk­arnir allir fyrir mik­il­vægi þess að skapa stöð­ug­leika á hús­næð­is­mark­aði. Það gæti reynst erfitt, þegar staðan er greind. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vantar yfir 5.100 íbúðir, einkum litlar og með­al­stórar, til að mæta vax­andi eft­ir­spurn. Hús­næð­is­verð hefur hækkað um 30 pró­sent á þremur árum og spár gera ráð fyrir áfram­hald­andi hækkun um meira tutt­ugu pró­sent á næstu tveimur árum. Þessi hækkun og spenna gerir mörgum erfitt fyrir, þegar kemur að því að kom­ast inn á hús­næð­is­markað. Flestir flokkar ræddu um mik­il­vægi þess að koma til móts við þessa stöðu, meðal ann­ars með upp­bygg­ingu hús­næðis og aðgerðum sem eru svip­aðar og Fyrsta fast­eign, sem rík­is­stjórnin kynnti fyrr á þessu ári, en sú leið byggir á því að fólk noti sér­eign­ar­sparn­að­inn til að safna upp í inn­borgun fyrir kaup á fyrstu eign. Stjórn­mála­flokk­arnir sem mynda rík­is­stjórn munu vafa­lítið láta sig þetta mál varða, enda var málið fyr­ir­ferða­mikið í mál­flutn­ingi sumra þeirra fyrir kosn­ingar.

5. Innviðauppbygging

Í aðdrag­anda kosn­inga komu öll fram­boð inn á það í sinni kosn­inga­bar­áttu, að mik­il­vægt væri að huga að upp­bygg­ingu „inn­viða“ víða um landið, meðal ann­ars þegar kemur að sam­göngum, heil­brigð­is­þjón­ustu og þjóð­görðum. Það sem stjórn­mála­flokk­arnir munu þurfa að ræða í þessum efnum er for­gangs­röðun og hversu umfangs­mikil þessi upp­byggin á að vera. Þarna kemur meðal ann­ars inn í heild­stæð­ari stefna en nú þegar hefur komið fram, þegar kemur að aðgangs­stýr­ingu á helstu ferða­manna­stöðum lands­ins. Þetta ætti ekki að vera erfitt verk­efni fyrir rík­is­stjórn, að ná saman um, en þó gæti for­gangs­röð­unin verið snúin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár