Aðstoðarmaður ráðherra segir enga þjóð „í svona rugli eins og við“ í útlendingamálum

„Þetta er orðið stjórn­laust hér, við komum ekki einu sinni fólki úr landi sem er búið að fá höfnun,“ segir Brynjar Níelsson aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra um stöð­una í vernd­ar­kerf­inu. Hann segir nýtt frum­varp gera það mögu­legt að fram­fylgja lögum.

Brynjar Níelsson fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks og aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra.
Brynjar Níelsson fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Brynjar Níelsson, aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra, segir að staða útlend­inga­mála sé „stjórn­laus“ á Íslandi og að vænt­an­legu frum­varpi dóms­mála­ráð­herra til breyt­inga á útlend­inga­lögum sé ætlað að verða til þess að hægt sé að fram­fylgja núver­andi lögum og koma þeim sem eru hér á landi en hafi verið synjað um alþjóð­lega vernd, úr landi.

Aðstoð­ar­mað­ur­inn sagði, í við­tali í nýjasta hlað­varps­þætti tíma­rits­ins Þjóðmála, að frum­varp ráð­herra, sem nú liggur frammi í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, snú­ist um að „færa okkur svo­lítið nær öðrum“ í þessum mála­flokki.

„Þetta er orðið stjórn­laust hér, við komum ekki einu sinni fólki úr landi sem er búið að fá höfnun. Þannig að staðan er núna sú að hver sem kemur í flug­vél hér og flýgur til Íslands, hann er bara hér enda­laust að óbreyttu. Það er auð­vitað ekk­ert hægt og það er engin þjóð í svona rugli eins og við í þessum málum,“ sagði Brynjar.

Ört stækkandi hópur bíður brottflutnings

Bent hefur verið á þunga stöðu í vernd­ar­kerf­inu hér á landi á und­an­förnum mán­uðum. Í grein­ar­gerð með frum­varps­drögum ráð­herra segir frá því að hópur þeirra ein­stak­linga sem bíða flutn­ings úr landi eftir að hafa fengið synjun á umsókn sinni hafi farið ört stækk­andi á síð­asta ári og hóp­ur­inn hafi í lok árs talið 228 ein­stak­linga.

Þar segir einnig frá því að heild­ar­fjöldi umsækj­enda í þjón­ustu Útlend­inga­stofn­unar og Reykja­vík­ur­borgar, Hafn­ar­fjarðar og Reykja­nes­bæjar, sem þjón­usta umsækj­endur fyrir stofn­un­ina hafi vaxið hratt og verið 735 í lok árs sam­an­borið við 357 þann 1. júní.[links]

Hægt verði að skylda fólk til læknisskoðana

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir einnig frá því að stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hafi mætt „nýjum áskor­unum“ við að flytja fólk úr landi sem hlotið hafði synjun á umsóknum um alþjóð­lega vernd hér­lendis, vegna krafna við­töku­ríkja um PCR-próf, vott­orðs um afstaðna Covid-19 sýk­ingu eða bólu­setn­ingu gegn veirunni.

„Þeir ein­stak­lingar, sem lögum sam­kvæmt eiga að yfir­gefa landið, hafa nýtt sér þessa stöðu og ítrekað neitað að und­ir­gang­ast PCR-próf og kom­ast þannig undan fram­kvæmd­inni. Jafn­framt reynd­ist erfitt og í sumum til­vikum ómögu­legt fyrir stoð­deild að fá upp­lýs­ingar frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum um það hvort ein­stak­ling­arnir væru bólu­settir eða höfðu þegar fengið Covid-19 sýk­ingu,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­drag­anna um þetta efni.

Í frum­varps­drög­unum er lagt til að „útlend­ingi verði gert skylt að kröfu lög­reglu til að gang­ast undir heil­brigð­is­skoðun og lækn­is­rann­sókn“ ef slík rann­sókn sé nauð­syn­leg til að hægt sé að „tryggja fram­kvæmd ákvörð­unar“ yfir­valda.

Skerpt á því að þjónusta falli niður ef fólk fari ekki af landi brott

Í laga­frum­varpi ráð­herra er einnig til­greint hvenær Útlend­inga­stofnun megi láta þjón­ustu við umsækj­endur sem hafa fengið synjun um alþjóð­lega vernd falla niður. Í frum­varps­drög­unum segir að útlend­ingar sem hafi fengið end­an­lega synjun í málum sínum hafi til þessa haldið áfram að njóta fullrar þjón­ustu sem umsækj­endur þar til þeir hafi farið af landi brott.

„Þar sem lögin eru að meg­in­stefnu til þögul um hvenær umrædd þjón­usta fellur niður hafa sumir útlend­ingar í þess­ari stöðu notið óskertrar þjón­ustu í jafn­vel nokkur ár vegna erf­ið­leika stjórn­valda við fram­kvæmd flutn­ings­ins, m.a. sökum skorts á sam­starfi þar um af hálfu útlend­ings­ins,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum.

Þess er skemmst að minn­ast að síð­asta sumar svipti Útlend­inga­stofnun all­nokkra ein­stak­linga sem neit­uðu að und­ir­gang­ast PCR-próf fyrir brott­vísun úr landi þjón­ustu. Kæru­nefnd útlend­inga­mála komst í kjöl­farið að þeirri nið­ur­stöðu að engin stoð hefði verið fyrir þeirri ákvörðun í lögum.

[adspot]

Með frum­varps­drög­unum er lagt til að öll rétt­indi til þjón­ustu á borð við hús­næði, fram­færslu, og heil­brigð­is­þjón­ustu, falli niður 30 dögum dögum eftir að end­an­leg ákvörðun í máli umsækj­enda er birt. Und­an­þága er þó lögð til á þessu fyrir börn og for­ráða­menn þeirra, sem fái enn grunn­þjón­ustu í formi skóla­göngu og hús­næðis þrátt fyrir að búið sé að birta þeim ákvörðun um að fara úr landi.

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir að ólíkt lög­gjöf­inni hér á landi sé það almennt inn­byggt í reglu­verkum og vernd­ar­kerfum hinna Norð­ur­land­anna að þjón­ustu­stig minnki og falli jafn­vel alveg niður þegar útlend­ingur fái synjun á umsókn sinni og frestur til sjálf­viljugrar heim­farar sé lið­inn.

„Skiptir þar einna helst máli hversu sam­vinnu­fúsir ein­stak­ling­arnir eru við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd flutn­ings. Geta þannig ein­stak­lingar sem sýna ekki sam­starfsvilja við fram­kvæmd ákvörð­un­ar­innar í vissum til­vikum átt hættu á að missa rétt til þjón­ustu fram að brott­för, s.s. búsetu, heil­brigð­is­þjón­ustu og fjár­hags­að­stoðar. Á Norð­ur­lönd­unum eru einnig rekin svo kölluð lokuð búsetu­úr­ræði (e. detention center, d. asylcentre) sem ætluð eru til vist­unar fyrir rík­is­borg­ara þriðja ríkis sem eru í ólög­mætri dvöl, t.d. ein­stak­linga sem hlotið hafa end­an­lega synjun á umsókn um alþjóð­lega vernd og ber lögum sam­kvæmt að yfir­gefa landið. Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða hús­næði sem skerðir veru­lega ferða­frelsi við­kom­andi, oft­ast með þeim hætti að við­kom­andi getur ekki yfir­gefið hús­næðið,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár