Búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd komin að þolmörkum

Dóms­mála­ráð­herra fjall­aði um erf­iða stöðu í vernd­ar­kerf­inu á rík­is­stjórn­ar­fundi í síð­ustu viku.

Búsetu­úr­ræði Útlend­inga­stofn­unar og sveit­ar­fé­lag­anna þriggja sem þjón­usta umsækj­endur um alþjóð­lega vernd fyrir stofn­un­ina á grund­velli samn­ings, Reykja­vík­ur­borgar, Reykja­nes­bæjar og Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar, eru komin að þol­mörkum.

Þetta kemur í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans en dóms­mála­ráð­herr­ann, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, fjall­aði um erf­iða stöðu í vernd­ar­kerf­inu í síð­ustu viku.

Lagði hún fram minn­is­blað sem fjall­aði „um þá erf­iðu stöðu sem nú er uppi í vernd­ar­kerf­inu þar sem þróun erlendis, sér­ís­lenskar máls­með­ferð­ar­reglur, COVID og fleiri atriði valda því að umsóknum fjölgar mikið, erf­ið­lega gengur að flytja þá af landi brott sem lögum sam­kvæmt eiga að yfir­gefa landið og búsetu­úr­ræði eru komin að þol­mörkum. Bregðast þarf við því með ein­hverjum hætti og vakti dóms­mála­ráð­herra athygli á þessu,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

„Gengur erfiðlega“ að flytja einstaklinga sem fengið hafa synjun úr landi

Fram kemur í minn­is­blað­inu að frá miðju ári hafi fjöldi umsækj­enda auk­ist mjög hratt. „Rúmlega 450 umsóknir hafa borist frá því í júní, þar af 124 í októ­ber sem er mesti fjöldi umsókna á einum mán­uði síðan ágúst 2017. Lang­flestar umsóknir falla undir það sem kall­ast vernd­ar­mál, þ.e. umsóknir frá ein­stak­lingum sem þegar hafa hlotið alþjóð­lega vernd í öðru Evr­ópu­ríki, og almenn efn­is­með­ferð­ar­mál, þ.e. umsóknir frá ein­stak­lingum sem Ísland ber ábyrgð á að meta hvort þurfi á vernd að halda.“

Þá segir að þessi mál séu almennt lengi í vinnslu og dvelji umsækj­end­urnir þar af leið­andi lengur í búsetu­úr­ræðum Útlend­inga­stofn­unar. Sér­ís­lenskar reglur um þessi mál útskýri einnig þessa fjölgun, en hlut­fall þess­ara mála hefur farið úr innan við 20 pró­ent í 55 pró­sent á tveimur árum.

„Samhliða þess­ari fjölgun umsókna gengur erf­ið­lega að flytja ein­stak­linga, sem fengið hafa end­an­lega synjun á umsóknum sínum um vernd, vegna sótt­varn­ar­krafna við­töku­ríkja. Þeir ein­stak­lingar sem lögum sam­kvæmt eiga að yfir­gefa landið neita ítrekað að und­ir­gang­ast PCR-próf og kom­ast þannig undan fram­kvæmd­inni. Þar sem stjórn­völd hafa engin úrræði til að bregð­ast við stöð­unni dvelj­ast þessir ein­stak­lingar hér á landi áfram með óskerta þjón­ustu,“ segir í minn­is­blað­inu.

Afleið­ing fram­an­greindrar stöðu, það er fjölgun umsókna og erf­ið­leikar við að fram­kvæma flutn­inga, hafi gert það að verkum að búsetu­úr­ræði Útlend­inga­stofn­unar og sveit­ar­fé­lag­anna þriggja, sem þjón­usta umsækj­endur fyrir stofn­un­ina á grund­velli samn­ings, eru komin að þol­mörkum, eins og áður segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár