Óskar eftir skoðun umboðsmanns Alþingis á skýrsluskilum Bjarna

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, hefir óskað eftir því skrif­lega að umboðs­maður Alþingis fjalli um hvort Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og verð­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafi brotið gegn 6. grein c siða­reglna ráð­herra með því að birta ekki skýrslu um aflands­fé­lög fyrr en nokkrum vikum eftir að hún lá fyrir.

Í bréfi Svan­dísar segir að í inn­gangi að gild­andi siða­reglum ráð­herra komi fram að ábend­ingum megi koma á fram­færi við umboðs­mann Alþingis kunni að vakna spurn­ingar um hvort um brot á siða­reglum hafi verið að ræða. „Með erindi þessu er þess óskað að umboðs­maður Alþingis fjalli um hvort svo kunni að vera í því til­viki að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra Bjarni Bene­dikts­son ákveður að birta ekki skýrslu um aflands­fé­lög fyrr enn all­nokkrum vikum eftir að hún lá fyrir. Þar með var skýrsl­unni haldið frá almenn­ings­sjónum í aðdrag­anda kosn­inga sem eins og kunn­ugt er sner­ust að veru­legu leyti um skatta­mál og skattaund­an­skot. Spurn­ingar hafa vaknað um að sú ákvörðun ráð­herr­ans kunni að varða 6. grein c. umræddra siða­reglna en þar segir: „Ráðherra leynir ekki upp­lýs­ingum sem varða almanna­hag nema lög bjóði eða almanna­hags­munir krefj­ist þess að öðru leyti. Ráðherra ber að hafa frum­kvæði að birt­ingu slíkra upp­lýs­inga sé hún í almanna­þágu.““

Til­efnið er skýrsla um aflandseignir Íslend­inga, sem fjár­mála­ráðu­neytið birti á föstu­dag. Eins og Kjarn­inn hefur greint frá var skýrsl­unni skilað til ráðu­neyt­is­ins í sept­em­ber og Bjarni og aðrir fengu kynn­ingu á henni í byrjun októ­ber. Engu að síður kom hún ekki fyrir sjónir almenn­ings fyrr en fyrir helgi, en Kjarn­inn hafði marg­sinnis spurst fyrir um afdrif skýrsl­unn­ar.

Bjarni baðst afsök­unar á því í gær að hafa sagt rang­lega frá tíma­línu atburða í tengslum við birt­ing­una. Á laug­ar­dag hafði hann haldið því fram að skýrslan hafi ekki borist honum og ráðu­neyt­inu fyrr en eftir að þing hafði lokið störf­um, en það var 13. októ­ber síð­ast­lið­inn. Því leið mán­uður frá því að skýrslan barst ráðu­neyt­inu og þar til þingið hætti störf­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár