Seðlabankinn selur félag troðfullt af fasteignum og útlánum sem metin eru á milljarða króna

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag aug­lýsti Seðla­banki Íslands dótt­ur­fé­lag sitt Hildu ehf. til sölu. Það fór ekki mikið fyrir aug­lýs­ing­unni, sem birt­ist meðal ann­ars í Við­skipta­blað­inu, og litlar upp­lýs­ingar komu fram í henni um þær eignir sem í félag­inu eru.

Hilda hefur hins vegar leikið stórt hlut­verk í upp­gjöri Seðla­bank­ans við banka­hrunið und­an­farin ár, ásamt móð­ur­fé­lagi sínu Eigna­safni Seðla­banka Íslands (ESÍ). Inn í þessi félög hefur þeim fulln­ustu­eignum og upp­gjörs­samn­ingum sem Seðla­bank­inn hefur leyst til sín verið hrúgað. Í til­felli Hildu eru aðal­lega um fast­eignir og útlán að ræða, en sam­an­lagt bók­fært virði eign­anna er um 15 millj­arðar króna. Vegna þessa eru félögin tvö oft kölluð "ruslakistur" Seðla­bank­ans í hálf­kær­ingi.

Og nú á að selja þetta félag, sem er fullt af eignum sem teknar hafa verið upp í hrunskuldir, úr opin­berri eigu til einka­að­ila. Einka­væð­ing er að fara að eiga sér stað.

Var stofnað utan um ríkisskuld Sögu


Við banka­hrunið var Seðla­banki Íslands tækni­lega gjald­þrota. Íslenska ríkið tók yfir mörg hund­ruð millj­arða króna skuldir hans og afskrif­aði. Þær kröfur sem urðu til vegna þess­arra skulda voru síðan færðar aftur til Seðla­bank­ans árið 2009 svo hægt væri að end­ur­heimta eitt­hvað af því tapi sem rík­is­sjóður hafði tekið á sig vegna hruns­ins.

Ákveðið var að stofna sér­stakt dótt­ur­fé­lag utan um þessar him­in­háu kröfur. Sumarið 2011 tók ESÍ yfir félag sem heitir Hilda. Það hafði verið sett á fót til að halda utan skuld Saga Capital við rík­is­sjóð, en hann hafði veitt bank­anum 19,6 millj­arða króna fyr­ir­greiðslu í mars 2009. Sú fyr­ir­greiðsla dug­aði ekki til að halda Sögu á lífi og Hilda end­aði í fangi ESÍ.

Síðan þá hefur Hilda leikið stórt hlut­verk í „við­skiptum“ ESÍ.

Tók við fullt af eignum frá Dróma


Í lok árs 2013 var hluti eigna og skulda hins alræmda félags Dróma hf. (eigna­safns SPRON og Frjálsa fjár­fest­inga­bank­ans) fært til Hildu. Um var að ræða fyr­ir­tækja­lán og fulln­ustu­eignir Dróma, meðal ann­ars það íbúða­hús­næði sem félagið hafði gengið að á starfs­tíma sínum. Ein­stak­lings­lán Dróma fóru hins vegar til Arion banka.

Við þessa breyt­ingu juk­ust eignir Hildu mikið. Allt í einu voru bók­færðar eignir félags­ins metnar á 32,5 millj­arða króna. Stór hluti þeirra voru mynda­legt fast­eigna­safn, en það verður að telj­ast afar óvenju­leg staða fyrir seðla­banka að eiga stórt safn fast­eigna. Kjarninn fjall­aði um umsvif Hildu á fast­eigna­mark­aði í apríl 2014. Í þeim kom fram að Hilda héldi á þeim tíma á 350 fast­eignum, 250 íbúðum og um 100 fast­eignum sem telj­ast til atvinnu­hús­næðis. Hluti íbúð­anna vöru í útleigu, aðrar voru í sölu­ferli og sumar voru ekki í íbúð­ar­hæfu ástandi. Á þessum tíma var því komin upp sú sér­staka staða að Seðla­banki Íslands var, í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt, að selja íbúðir á mark­aði. Í frétta­skýr­ingu Kjarnans í apríl 2014 kom enn fremur fram að Hilda kapp­kost­aði að selja eignir ekki of hratt „þar sem slíkt gæti haft mikil áhrif á fast­eigna­mark­að­inn og jafn­vel stuðlað að lækkun fast­eigna­verðs.“

[caption id="attachment_15056" align="alignnone" width="640"] Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn hefur undir höndum skipt­ast eignir Hildu þannig að í félag­inu eru nú 364 fast­eignir sem metnar eru á 6,6 millj­arða króna, 387 útlán (til 260 lán­tak­enda) og önnur skulda­bréf sem metin eru á 5,7 millj­arða króna og hand­bært fé/kröfur upp á 2,9 millj­arða króna.[/caption]

Hundruð fasteigna og milljarða virði


Ljóst er að Hildu hefur gengið ágæt­lega að selja eignir und­an­farin ár. Um mitt þetta ár voru eignir félags­ins komnar niður í 15,4 millj­arða króna, og höfðu lækkað um 17,1 millj­arð króna á einu og hálfu ári.

Samkvæmt upplýsingum sem Kjarninn hefur undir höndum skiptast eignir Hildu þannig að í félaginu eru nú 364 fasteignir sem metnar eru á 6,6 milljarða króna, 387 útlán (til 260 lántakenda) og önnur skuldabréf sem metin eru á 5,7 milljarða króna og handbært fé/kröfur upp á 2,9 milljarða króna.
Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn hefur undir höndum skipt­ast eignir Hildu þannig að í félag­inu eru nú 364 fast­eignir sem metnar eru á 6,6 millj­arða króna, 387 útlán (til 260 lán­tak­enda) og önnur skulda­bréf sem metin eru á 5,7 millj­arða króna og hand­bært fé/kröfur upp á 2,9 millj­arða króna.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn hefur undir höndum skipt­ast eignir Hildu þannig að í félag­inu eru nú 364 fast­eignir sem metnar eru á 6,6 millj­arða króna, 387 útlán (til 260 lán­tak­enda) og önnur skulda­bréf sem metin eru á 5,7 millj­arða króna og hand­bært fé/kröfur upp á 2,9 millj­arða króna. Hilda á alls sex dótt­ur­fé­lög og hjá félag­inu starfa 13 manns. Það hagn­að­ist um 1,5 millj­arð króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og mun­aði þar lang­mestu um hreinar rekstr­ar­tekjur, sem eru sala eigna og lána á tíma­bil­inu. Auk þess námu leigu­tekjur 139 millj­ónum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

Þarft að eiga 750 milljónir til að taka þátt


Og nú á að selja allt hlutafé Hildu. Í því ferli gengur Seðla­bank­inn út frá því að láns­fjár­mögnun hans til Hildu, alls 12,6 millj­arðar króna, verði greidd upp til við­bótar við greiðslu fyrir hlutafé félags­ins. Því er ljóst að kaup­verðið mun hlaupa á millj­örðum króna og ekki á hvers manns færi að taka þátt í sölu­ferl­inu.

Arion banki sér um söl­una. Samkvæmt skil­yrðum sem sett hafa verið fyrir þátt­töku í sölu­ferl­inu þurfa fjár­festar að sýna fram á að þeir eigi að lág­marki 750 millj­ónir króna sem þeir geti nýtt til fjár­fest­ingar í félag­inu til að fá að taka þátt. Stefnt er að því að þeir sem upp­fylla skil­yrði sölu­ferl­is­ins fái afhent frek­ari gögn, svo sem árs­reikn­inga og fjár­festa­kynn­ingu, þann 10. sept­em­ber 2015.

Þótt Hilda selj­ist þá er upp­gjöri Seðla­bank­ans á hrun­inu fjarri því lokið. ESÍ er enn í fullu fjöri og eignir félags­ins voru metnar á 209 millj­arða krona um síð­ustu ára­mót. Þeim á enn eftir að koma í verð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár