Mikil skuldsetning heimila á ábyrgð stjórnvalda og vaxtasveiflur líka

Þing­maður Sam­fylk­ingar segir að stjórn­völd beri ábyrgð á mik­illi við­bót­ar­skuld­setn­ingu almenn­ings og þurfi nú að und­ir­búa mót­væg­is­að­gerðir. Þing­maður Við­reisnar segir óeðli­legt að íslensk heim­ili þurfi að vera í virkri áhættu­stýr­ingu með hús­næð­is­lán sín.

Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Kristrún Frosta­dóttir og Sigmar Guð­munds­son þing­menn Sam­fylk­ingar og Við­reisnar gerðu bæði vænt­an­lega stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans og áhrifin sem hún mun hafa á hús­næð­is­lán lands­manna að umtals­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Kristrún sagði frá því að þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar ásamt full­trúum minni­hlut­ans í fjár­laga­nefnd myndi í dag leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um aðgerðir til þess að milda höggið á heim­ilin í land­inu sem við blasi vegna mik­illar verð­bólgu og vaxta­hækk­ana.

„Líta þarf til beins fjár­hags­stuðn­ings vegna snarpra breyt­inga á hús­næð­is­kostn­aði en einnig gera heim­il­unum kleift að dreifa auknum kostn­aði yfir lengra tíma­bil. Fordæmin eru nú þegar til staðar erlendis,“ sagði Kristrún og bætti því við að færa mætti sterk rök fyrir því núver­andi staða í efna­hags­málum, bæði hvað varðar verð­bólgu og hús­næð­is­verðs­hækk­anir væri „til­komin vegna hag­stjórn­ar­mistaka af hálfu stjórn­valda í heims­far­aldr­inum, sem gripu of seint til sér­tækra aðgerða og úthýstu ákvörð­unum um dreif­ingu fjár­magns til banka­kerf­is­ins og Seðla­bank­ans.“[links]

„Eigna­verð hefur rokið upp, þrýst á verð­bólgu og nú þarf að snúa olíu­skip­inu við,“ sagði Kristrún og bætti við því við að stjórn­völd hefðu ítrekað á und­an­förnum mán­uðum ítrekað vitnað til „lágra vaxta vegna vel heppn­aðra efna­hagsúr­ræða“ og bæru „ábyrgð á því að hafa hvatt fólk til auk­innar skuld­setn­ingar á ein­stökum tímum í sögu vaxta á Íslandi.“

„Í raun má segja að heim­ilin í land­inu hafi skuld­sett sig um 450 millj­arða króna fyrir hvatn­ingu stjórn­valda,“ sagði Kristrún og bætti því við að þessi við­bót­ar­skuld­setn­ing hefði gert heim­ilin í land­inu ber­skjölduð fyrir hertu aðhalds­stigi í pen­inga­stjórnun sem nú blasi við.

„Mik­il­vægt er að rík­is­stjórnin verði ekki of sein að bregð­ast við þessum seinni fasa af efna­hags­á­hrifum kór­ónu­krepp­unnar þar sem vand­inn er fyrst og fremst verð­bólga og ójafn­vægi í þjóð­ar­bú­skapnum. Þessar mót­væg­is­að­gerðir þurfa að vera klárar þegar og ef kallið kemur,“ sagði Kristrún.

Heimili eigi ekki að þurfa að vera með greiningardeildir

Sigmar sagði grein­endur á mark­aði sam­mála um að vaxta­hækkun Seðla­bank­ans á morgun yrði umtals­verð og það myndi hafa mikil áhrif á heim­ilin í land­inu.

„Staðan er ein­fald­lega sú að vaxta­hækk­anir á Íslandi á til­tölu­lega stuttu tíma­bili eru að þurrka út meira en útborguð mán­að­ar­laun yfir árið hjá mann­eskju með með­al­tekjur og algengt hús­næð­is­lána­form. Þetta á við um þús­undir heim­ila,“ sagði þing­mað­ur­inn og bætti við að þau skila­boð sem Bjarni Bene­dikts­son hefði fært fram í sér­stökum umræðum um efna­hags­mál í þing­inu í gær hefðu verið þau að það væri orðið auð­veld­ara fyrir fólk að end­ur­fjár­magna hús­næð­is­lánin sín.

„Hvers konar kerfi er það sem krefst þess af venju­legum fjöl­skyldum að þær nán­ast þurfi að halda úti sinni eigin grein­ing­ar­deild eins og bank­arnir til að lág­marka tjón í vaxtaum­hverfi krónu­hag­kerf­is­ins? Er það sann­gjarnt að heim­ilin í land­inu þurfi að vera með virka áhættu­stýr­ingu árið um kring til að verja sína verð­mæt­ustu eign?“ spurði Sigmar og gaf síðan lítið fyrir þau orð fjár­mála­ráð­herra að hann teldi raun­hæft að vaxtaum­hverfið á Íslandi gæti orðið svipað og í nágranna­lönd­unum.

„Þessi sami fjár­mála­ráð­herra hefur stýrt efna­hags­málum þjóð­ar­innar sam­fellt frá árinu 2013. Flokkur hans hefur stýrt efna­hags­málum þjóð­ar­innar nán­ast allan lýð­veld­is­tím­ann. Með sama áfram­haldi, með sama hraða og sömu vaxta­þróun og sama gjald­miðil og und­an­farna ára­tugi má gera ráð fyrir að draumur ráð­herr­ans verði orð­inn að veru­leika löngu eftir að við öll verðum komin undir græna torfu. Heimilin í land­inu þola ekki þá bið,“ sagði Sigmar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár