Fermetraverðið lægra á stúdentagörðunum borið saman við íbúðir í sambærilegri stærð

Nýleg könnun sýndi að fer­metra­verð leigu­í­búða var hæst á stúd­enta­görð­unum. Þær íbúðir eru 48 fer­metrar að jafn­aði en íbúðir á öðrum sam­an­burð­ar­mörk­uðum um 80 fer­metrar. Í sam­an­burði við sam­bæri­legar íbúðir eru stúd­enta­garðar mun ódýr­ari kostur.

Stúdentagarðar.
Stúd­enta­garðar. Mynd: Félagsstofnun stúdenta

Í nýlegri leigu­mark­aðs­könnun Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) kom fram að með­al­fer­metra­verð leigu­í­búða á stúd­enta­görðum væri hærra en á nokkrum öðrum leigu­mark­aði hér­lendis. Með­al­fer­metra­verð þeirra var 2.545 krónur í sept­em­ber.

Þrátt fyrir hátt fer­metra­verð greiða leigj­endur á stúd­enta­görðum lægstu upp­hæð­ina í leigu, sökum þess hversu litlar íbúðir þeirra eru. Með­al­stærð íbúða á stúd­enta­görð­unum er 48 fer­metr­ar, á meðan stærð íbúða á öðrum leigu­mörk­uðum er vana­lega í kringum 80 fer­metra.

Í kjöl­far þess að nið­ur­stöður könn­un­ar­innar voru birtar kall­aði Félags­stofnun stúd­enta, sem rekur stúd­enta­garð­anna, eftir upp­lýs­ingum frá HMS um með­alleigu­verð á íbúðum í sam­bæri­legri stærð og þær sem í boði eru á stúd­enta­görðum.

[adspot]Í svari stofn­un­ar­innar kemur fram að hún hafi fundið til tölur um þing­lýsta leigu­samn­inga á íbúðum af slíkri stærð (á bil­inu 40 til 55 fer­metrar) í póst­núm­erum 101, 102, 103 og 105. Þar sé með­alleigu­verð per fer­metra 3.496 krónur.

Því er með­al­fer­metra­verð leigu­í­búða á stúd­enta­görðum rúm­lega fjórð­ungi lægra en það er á almenna mark­aðnum í þeim póst­núm­erum sem stúd­enta­garða er að finna.

Leigan lægst á stúdentagörðunum

Í könnun HMS, sem birt var í lok síð­ustu viku, kom fram að leigj­endur sem eru búsettir í stúd­enta­görðum greiði 17 pró­sent hærri leigu fyrir hvern fer­metra heldur en þeir sem leigja af ein­stak­lingi á almennum leigu­mark­aði. Verð­mun­ur­inn er 18 pró­sent ef leigt er af einka­reknu leigu­fé­lagi, en 37 pró­sent ef leigt er af óhagn­að­ar­drifnu leigu­fé­lagi.

Þeir sem leigja af ætt­ingjum og vinum greiða svo 38 pró­sent minna fyrir fer­metr­ann heldur en leigj­endur á stúd­enta­görð­um, á meðan þeir sem leigja af sveit­ar­fé­lagi greiða rúm­lega helm­ingi minna.

líkt og kemur fram að ofan er þó mik­ill munur á stærðum þeirra íbúða sem verið er að bera saman. Með­al­stærðin á stúd­enta­görðum er 48 fer­metrar á meðan að stærð íbúða á öðrum leigu­mörk­uðum er almennt í kringum 80 fer­metra.

Heild­ar­upp­hæðin sem greidd er í leigu er mest hjá þeim sem leigja hjá einka­reknu leigu­fé­lagi, en þeir greiddu að með­al­tali tæpar 200 þús­und krónur í leigu í sept­em­ber. Leigj­endur á almennum leigu­mark­aði greiddu aftur á móti að með­al­tali 178 þús­und krónur í leigu og þeir sem leigðu hjá óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum eða hjá ætt­ingjum og vinum gátu vænst þess að greiða um 140 þús­und krónur í leigu. Leigj­endur á stúd­enta­görð­unum greiddu hins vegar að með­al­tali 122 þús­und krónur í leigu í sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár