Skrifstofa forsetans greiddi einnig fyrir ferð embættismanns með Elizu

For­seta­skrif­stofan greiddi fyrir annan emb­ætt­is­mann sem fór með Elizu Reid for­seta­frú í ferð hennar til Rúss­lands á heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu þar sem hún fylgd­ist með leik íslenska lands­liðs­ins til Argent­ínu.

For­seta­skrif­stofan greiddi fyrir emb­ætt­is­mann með Elizu Reid for­seta­frú í ferð hennar til Rúss­lands á heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu þar sem hún fylgd­ist með leik íslenska lands­liðs­ins til Argent­ínu. Þetta kemur fram í svari for­seta­skrif­stof­unnar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

[links]Greint var frá því í síð­ustu viku að ferð Elizu, þar sem hún fór með sonum sínum og Guðna Th. Jóhann­es­sonar eig­in­manns hennar og for­seta Íslands, hafi verið kostuð af emb­ætti for­seta Íslands. Þrátt fyrir það leit for­seta­emb­ættið ekki svo á að hún hafi verið á leiknum sem opin­ber emb­ætt­is­maður.

Í til­kynn­ingu frá rík­is­stjórn Íslands þann 26. mars var því lýst yfir að íslenskir ráða­menn yrðu ekki við­staddir HM í Rúss­landi til að mót­mæla meintri efna­vopna­árás Rússa í breska bænum Salisburygegn Sergei Skrípal, rúss­neskum njó­sn­ara, og dóttur hans. Þessar aðgerðir stjórn­valda voru liður í þátt­töku í sam­stilltum aðgerðum vest­rænna ríkja vegna árás­ar­innar sem talin er alvar­legt brot á alþjóða­lögum og ógn við öryggi og frið í Evrópu.

„Eliza Reid er ekki emb­ætt­is­maður, fer ekki til Rúss­lands í opin­berum erinda­gjörðum og mun ekki eiga fundi með þar­lendum ráða­mönnum. Ferð hennar fellur hins vegar undir verk­efni hennar og verk­svið sem for­seta­frú, meðal ann­ars átakið “Team Iceland”. För hennar er því greidd af skrif­stofu for­seta Íslands eins og gildir um aðrar utan­lands­ferðir af svip­uðu tagi,“ sagði í svari skrif­stofu for­seta við fyr­ir­spurn Vísis.

Verksvið maka forsetans hvergi skilgreint

Kjarninn spurði for­seta­skrif­stof­una um hvort verk­efni og/eða verk­svið maka for­seta Íslands væri skil­greind ein­hvers staðar form­lega? Í svari kom fram að staða maka for­seta Íslands sé hvergi skil­greind form­lega, „og rétt að hafa í huga að ekki hafa allir for­setar átt maka. Eigi for­seti maka er jafnan til þess ætl­ast að hann taki eftir föngum þátt í við­burðum og verk­efnum sem lúta að störfum for­seta Íslands. Um líf og hlut­verk maka for­seta á síð­ustu öld, og verk þeirra og verk­svið um þá daga, má m.a. fræð­ast um í ævi­sögum for­set­anna og BA-rit­gerð­inni „Bankað upp á að Bessa­stöðum“.“

Kjarninn spurði einnig að því hvernig það sam­rým­ist það að mati emb­ættis for­seta Íslands þeirri ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar frá 26. mars síð­ast­liðnum,. að íslenskir ráða­menn sæki ekki heims­meist­ara­mótið í Rúss­landi, að for­seta­frúin fari á kostnað rík­is­ins á mótið? Sú afstaða emb­ætt­is­ins að maki for­seta Íslands sé ekki emb­ætt­is­maður var ítrekuð í svari skrif­stof­unnar.

„Ákvörðun rík­is­stjórnar 26. mars s.l. nær ekki til maka for­seta enda hefur maki for­seta enga stjórn­skipu­lega stöðu. Þá eru það engin tíð­indi að for­seta­frú sé við­stödd við­burði, sem emb­ætti for­seta Íslands stendur straum af kostn­aði við, án þess að for­seti sé með í för. Má þar nefna Eyr­ar­rós­ina, við­ur­kenn­ingu sem veitt er menn­ing­ar­stofnun eða -starfi ár hvert á lands­byggð­inni, ráð­stefnu á Ísafirði um tungu­mál og fjöl­menn­ingu, útskrift á Akureyri og þar fram eftir göt­unum. Erlendis má til dæmis nefna ráð­stefnu í Kanada um rík­is­borg­ara­rétt, ferða­lag til flótta­manna­búða í Jórdaníu og ráð­stefnu á vegum UNESCO í Óman. Til fróð­leiks mætti nefna að frá síð­ustu mán­aða­mótum hefur Eliza í krafti sinnar óform­legu en aug­ljósu stöðu á Bessa­stöðum verið við­stödd setn­ingu Lista­há­tíðar í Reykja­vík, setið styrkt­ar­kvöld­verð á vegum Barna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna, verið við minn­ing­ar­at­höfn og messu á Sjó­manna­degi, flutt opn­unará­varp á tungu­mála­ráð­stefnu í Veröld – húsi Vigdísar og annað ávarp á nor­rænu geð­lækna­þingi, lesið inn á fræðslu­mynd­band fyrir Norræna húsið, átt fund með Kokka­lands­liði Íslands sem vernd­ari þess, sótt verð­launa­há­tíð­ina Grímuna og flutt ávörp við útskrift í skólum. Er þá ekki allt talið og nán­ari upp­lýs­ingar má sjá á heima­síðu for­seta­emb­ætt­is­ins, www.forseti.is.,“ segir í svari for­seta­skrif­stof­unnar. Þá segir að allir þessir við­burði falli undir verk­svið og verk­efni for­seta­frúar, á sama hátt og hún hafi haldið til Moskvu og sýnt þannig í verki nú sem endranær „stuðn­ing for­seta­emb­ætt­is­ins við lands­lið Íslands í knatt­spyrnu karla og frá­bæra frammi­stöðu þess, án þess að gengið hafi verið á svig við þá ákvörðun og ósk rík­is­stjórn­ar­innar að hátt­settir ráða­menn sæki ekki Heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu og leiki Íslands þar.“

Þá spurði Kjarninn að því hvort aðrir emb­ætt­is­menn hefðu farið með for­seta­frúnni í ferð­ina til Moskvu, í hvaða erinda­gjörðum og með hvaða hætti þeirra ferða­lag hafi verið greitt. Fram kom í svar­inu að einn starfs­maður skrif­stofu for­seta Íslands hafi verið í för með for­seta­frúnni, „ eins og venja er í ferðum for­seta­frúar af þessu tagi. Í þetta sinn var Árni Sig­ur­jóns­son skrif­stofu­stjóri með í för og stóð skrif­stofan að sjálf­sögðu straum af kostn­aði við för hans.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár