SÞ krefst þess að konur í Zika-löndum fái aðgang að fóstureyðingum

Mann­rétt­inda­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur kallað eftir því að ríki í Rómönsku-Ameríku, sem hafa orðið hvað verst úti vegna Zika-veirunnar, veiti konum aðgang að bæði fóst­ur­eyð­ingum og getn­að­ar­vörnum. Veiran, sem breið­ist nú hratt út, er talin valda alvar­legum fæð­ing­argalla, höf­uðs­mæð­ar­heil­kenni.

Í mörgum þeirra ríkja þar sem hvað flestir hafa smit­ast er aðgangur að getn­að­ar­vörnum lít­ill og fóst­ur­eyð­ingar bann­aðar. Til dæmis eru dæmi þess í El Salvador, sem hefur orðið illa úti, að konur séu dæmdar fyrir morð þegar þær missa fóstur.

Víða í Rómönsku-Ameríku hefur verið gripið til þess ráðs að hvetja konur til þess að verða ekki þung­aðar.

Mann­rétt­inda­stofn­unin hefur hins vegar farið fram á það við stjórn­völd í löndum sem glíma við veiruna að hverfa frá stefnum sínum þegar kemur að fóst­ur­eyð­ingum og aðgangi að getn­að­ar­vörnum. Zeid Ra'ad Al Hussein, yfir­maður Mann­rétt­inda­stofn­unar SÞ, segir að það sé nauð­syn­legt að virða kven­rétt­indi ef takast á að stemma stigu við veirunni. Lög í mörgum ríkj­anna sem um ræðir brjóti í bága við alþjóð­lega staðla. Það verði að tryggja að konur fái upp­lýs­ingar, stuðn­ing og þjón­ustu sem þær þurfa til að fá að áða því hvort og hvenær þær verði þung­aðar.

„Ráðin sem sum stjórn­völd gefa konum, um að fresta barn­eignum, lítur fram­hjá þeim raun­veru­leika að margar konur og stúlkur geta ekki stjórnað því hvort, hvenær eða undir hvaða kring­um­stæðum þær verða þung­aðar, sér­stak­lega í umhverfi þar sem kyn­ferð­is­of­beldi er svo algengt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár