Fleiri Evrópuríki auka eftirlit á landamærum

Bretar hyggj­ast ætla að koma í veg fyrir að ólög­legir inn­flytj­endur kom­ist yfir Ermasund með því að setja upp sér­stakt örygg­is­svæði í frönsku borg­inni Calais þar sem flutn­inga­bílar geta stöðvað án þess að eiga hættu á að fólk fari um borð. Þetta til­kynnti Theresa May, inn­an­rík­is­ráð­herra Breta, í breska þing­inu í dag.

Flutn­inga­bílum frá meg­in­landi Evrópu á leið til Bret­lands er lang flestum ekið um borð í ferju í Calais og þaðan silgt til Dover í Bret­landi. Á meðan bíl­stjórar flutn­inga­bíl­anna bíða eftir að kom­ast um borð hafa ólög­legir inn­flytj­endur freistað þess að kom­ast í gáma eða í far­ang­urs­rými flutn­inga­bíl­anna.

Talið er að um 3.000 manns haldi sig í Calais og reyni dag­lega að kom­ast yfir Ermasund með þessum hætti. Vandinn hefur auk­ist und­an­farnar vikur á meðan verk­fall franskra ferju­starfs­manna stendur en það hefur tafið ferðir flutn­inga­bíl­anna enn frekar.

Örygg­is­svæðið, sem fjár­magnað verður af breskum stjórn­völdum en undir eft­ir­liti franskra yfir­valda, mun geta annað 230 flutn­inga­bílum eða jafn mörgum og ann­ars myndu skapa fjög­urra kíló­metra langa röð á þjóð­veg­unum. Vonast er til þess að svæðið verði opnað fyrir 1. des­em­ber.

„Þetta mun auka öryggi flutn­inga­bíla og öku­manna þeirra; koma þeim af þjóð­veg­unum þar sem ólög­legir inn­flytj­endur reyna sífellt að kom­ast um borð,“ sagði May í breska þing­inu. Hún sagði einnig að yfir­völd hefðu komið í veg fyrir 8.000 til­raunir inn­flytj­enda til að kom­ast til Bret­lands síð­ustu þrjár vikur.

Straumur ólöglegra innflytjenda hefur 60-faldast á þremur árum


[caption id="" align="alignnone" width="800"] Ung­verjar hófu í dag að reisa girð­ingu á landa­mærum sínum við Serbíu. Þannig á stöðva straum ólög­legra inn­flytj­enda.[/caption]

Til að reyna að mæta sama vanda­máli og Bretar hafa Ung­verjar lokað landa­mærum sínum að Serbíu til að koma í veg fyrir straum inn­flytj­enda þaðan. Í gær hófust Ung­verjar handa við að reisa fjög­urra metra háa girð­ingu á landa­mær­unum til að varna því að inn­flytj­endur kom­ist á milli land­anna.

Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu frá inn­an­ríkis- og varn­ar­mála­ráðu­neyti Ung­verja­lands segir að dag­lega kom­ist að með­al­tali þús­und manns ólög­lega yfir landa­mærin. „Ólög­legir inn­flytj­endur eru því orðnir að alvar­legu vanda­máli og það er mik­il­vægt að koma böndum á þetta.“

Fjöldi inn­flytj­enda í Ung­verja­landi á síð­asta ári var meiri en í nokkru öðru Evr­ópu­landi, fyrir utan Svþjóð, eða 43.000 manns. Árið 2012 var fjöldi inn­flytj­enda aðeins 2.000 manns. 95 pró­sent þeirra sem komu í fyrra komu yfir landa­mærin frá Serbíu.

Landa­mæri Ung­verja­lands og Serbíu eru um 175 kíló­metra löng en girð­ing verður fyrst reist á þeim stöðum þar sem auð­veld­ast er að kom­ast yfir. Á vef breska dag­blaðs­ins The Guardian er greint frá því að þegar hafi um 80.000 inn­flytj­endur og flótta­fólk kom­ist yfir landa­mærin á þessu ári, um 80 pró­sent þeirra frá Sýrlandi, Írak og Afganistan.

Ung­verja­land er aðili Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) og þar af leið­andi hluti af Schengen-sátt­mál­anum um ytri landa­mæri Evrópu. Þannig er vega­bréfa­eft­ir­lit fellt niður á landa­mærum aðild­ar­ríkja að Schengen-svæð­inu. Ísland er til dæmis aðili að því.

Landa­mærin við Serbíu eru dæmi um ytri landa­mæri Evrópu, þar sem Serbía er hvorki hluti af Evr­ópu­sam­band­inu eða Schengen. Komist fólk yfir landa­mærin þar getur það ferð­ast um nær öll ríki Evrópu án þess að fram­vísa skil­ríkjum.

Evrópuríki hefja landamæraeftirlit á ný


[caption id="" align="alignnone" width="640"] Kristian Jensen, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, hitti Frank-Walter Stein­meier, kollega sinn í Þýska­landi, og kynnti honum áform um aukið landamæra­eft­ir­lit. (Mynd: Utan­rík­is­ráðu­neyti Þýska­lands)[/caption]

Danir hyggj­ast setja upp eins­konar landamæra­eft­ir­lit á landa­mærum sínum við Þýska­land. Kjarninn greindi frá því á dög­unum að Kristian Jensen, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, hafi kynnt þýskum kollega sínum á fundi þeirra Berlín að landamæra­eft­ir­lit verði end­ur­vakið.

Landamæra­eft­ir­litið mun að sögn utan­rík­is­ráðu­neytis Dan­merkur miða að því að hamla för ólög­legra inn­flytj­enda og smygl­ara. Því verði ekki sett upp landamæra­hlið heldur sér­stakar eft­ir­lits­stöðvar reistar í nágrenni landamær­anna.

Danmörk er, rétt eins og Þýska­land, aðili að ESB og þar af leið­andi Schengen-sátt­mál­anum um ytri landa­mæri Evrópu. Danir segj­ast ætla að fram­kvæma eft­ir­litið innan þeirra reglna sem sátt­mál­inn kveður á um.

Bretar og Írar ákváðu að taka ekki þátt í sam­starf­inu um ytri landa­mæri Evrópu þegar það var gert að hluta Evr­ópu­lög­gjaf­ar­innar í Amster­d­amsátt­mála ESB árið 1999.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár