Ný dönsk stjórn vill herða landamæraeftirlit

Kristian Jensen, nýr utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, kynnti þýskum kollega sínum á fundi þeirra í Berlín í morgun að Danmörk vilji end­ur­vekja landamæra­eft­ir­lit á sam­eig­in­legum landa­mærum land­anna. Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Berl­inske.

Danmörk er, rétt eins og Þýska­land, aðili að Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) og þar af leið­andi Schengen-sátt­mál­anum um ytri landa­mæri Evrópu. Þar er kveðið á um frelsi allra til að ferð­ast yfir­landa­mæri aðild­ar­ríkja án þess að fram­vísa leyfum. Slíkt þarf aðeins að gera á ytri landa­mærum álf­unnar.

Jensen segir ný stjórn­völd vilja útfæra landamæra­eft­ir­lit innan Schengen-regl­anna. „Við munum eiga sam­tal við Brussel og fram­kvæmd­stjórn ESB, en einnig nágranna­lönd okkar,“ sagði hann eftir fund sinn við Frank-Walter Stein­meier, utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands, í dag.

Hert landamæra­eft­ir­lit mun að sögn utan­rík­is­ráðu­neytis Dan­merkur miða að því að hamla för ólög­legra inn­flytj­enda og smygl­ara. Því verði ekki sett upp landamæra­hlið heldur sér­stakar eft­ir­lits­stöðvar reistar í nágrenni landamær­anna.

Síðast þegar hægri­st­jórn var við völd í Danmörku árið 2011 voru sett upp toll­hlið á landa­mærum til Dan­merkur. Vinstri­st­jórn Helle Thorning-Schmidt felldi lög um þau úr gildi þegar hún komst til valda síðla árs 2011.

Ný rík­is­stjórn bláu fylk­ing­ar­innar tók við í Danmörku á sunnu­dag eftir að rík­is­stjórn vinstri­flokk­anna í rauðu fylk­ing­unni féll í þing­kosn­ingum á dög­unum. Hægri­flokk­ur­inn Venstre er nú í minni­hluta­stjórn eftir að við­ræður við danska Þjóð­ar­flokk­inn runnu út í sand­inn. Lars Løkke Rasmus­sen, for­maður Venstre og for­sæt­is­ráð­herra, þarf þó á stuðn­ingi Þjóð­ar­flokks­ins að halda til að stjórn hans haldi í þing­inu.

Þjóð­ar­flokk­ur­inn, sem nú er stærsti flokkur bláu blokk­ar­innar, vill stöðva flæði inn­flytj­enda til Dan­merkur.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Minni­hluta­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen er sú minnsta í ára­tugi í Danmörku. Flokkur hans Venstre þarf að reiða sig á stuðn­ing danska Þjóð­ar­flokks­ins til að koma lögum í gegnum þingið. (Mynd: EPA)[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár