„Fór þessa leið í stað­inn fyrir að svelta“

Kona sem neydd­ist til að selja vændi til margra ára stígur fram og segir sína sögu. Hún er mjög gagn­rýnin á þau úrræði sem standa fátæku fólki til boða hér á landi. „Ég sá enga aðra leið til að láta þessa hluti ganga upp.“

„Ég var bara í mjög erf­iðum aðstæðum – og ég veit ekki einu sinni hvort hægt sé að kalla þetta val. En ég fór þessa leið í stað­inn fyrir að svelta.“

Þetta segir kona í sam­tali við Kjarnann en í ítar­legu við­tali við mið­il­inn greinir hún frá afleið­ingum þess að selja vændi og þeim erf­iðu fjár­hags­legu aðstæðum sem hún var í þegar hún tók ákvörð­un­ina – ef ákvörðun skyldi kalla. Hún vill ekki láta nafns síns getið.

Heilsu­leysi, fátækt og brotin sjálfs­mynd spil­uðu stóra rullu í því að hún leidd­ist út í vændi á sínum tíma. Hún segir frá því að hún hafi misst heils­una í banka­hrun­inu 2008 og í kjöl­farið hafi hún farið í end­ur­hæf­ingu. Biðin á þeim tíma hafi verið 3 til 12 mán­uðir en konan bendir á að nú sé biðin enn lengri.

„Á meðan þú ert að bíða eftir end­ur­hæf­ing­ar­úr­ræði þá er engin önnur inn­koma í boði nema félags­þjón­ustan ef þú átt ekki maka. Og þar er fjár­hags­að­stoðin naumt skor­in; þetta er neyð­ar­að­stoð og ekki hugsuð þannig að hún eigi að duga í marga mán­uði. Þetta er hugsað sem tíma­bundið úrræð­i,“ segir hún og bætir því við að kerfið sé því miður þannig að margir þurfi að reiða sig á þetta neyð­ar­úr­ræði í hálft ár, ár eða jafn­vel leng­ur.

[links]Konan segir að lítið sé eftir þegar búið er að borga húsa­leigu en í hennar til­felli hafi hún átt með­lag og húsa­leigu­bætur eft­ir. Með­lagið hafi þó farið í aðra reikn­inga og hluti af húsa­leigu­bót­unum einnig. „Þá átti ég eftir ein­hverja tíu þús­und kalla til að lifa en þeir gátu verið fljótir að fara því á þessum tíma kost­aði tíu þús­und krónur að fylla á ísskáp­inn.“

Sérstaklega erfitt fyrir fólk með lítið bakland

Konan var með barn á fram­færi sínu og bendir hún á að hún hafi þurft að kaupa skóla­mál­tíð­ir, aðgang að frí­stund og tóm­stundum – og fleira fyrir barn­ið.

„Það er ekk­ert sjálf­sagt að félags­þjón­ustan aðstoði með það og í mínu til­felli var það þannig að ég þurfti að lesa mér til um allan minn rétt, um allt sem mér var ekki sagt að fyrra bragði að ég gæti feng­ið.“

Hún segir að aðstæður sem þessar séu sér­stak­lega erf­iðar fyrir þau sem hafa lítið bak­land eða mæta skiln­ings­leysi fjöl­skyldu sinn­ar. Hún greinir frá því að hún hafi skamm­ast sín fyrir stöðu sína og að stundum hafi hún þurft að betla frá fjöl­skyldu sinni 500 krónur í lán ef ein­hver átti til dæmis afmæli. „Þetta var mjög nið­ur­lægj­and­i,“ segir hún.

„Ég sá enga aðra leið til að láta þessa hluti ganga upp“

Konan er mjög gagn­rýnin á þau úrræði sem standa fátæku fólki til boða. „Kerfið er þannig byggt upp að ef ég vinn mér fyrir einni krónu þá er sú króna dregin af mér. Kerfið leyfir mér ekki að vinna þó ég myndi hafa pínu­litla orku til þess. Þannig heldur kerfið manni niðri í sára­fá­tækt og barn­anna þá í leið­inn­i.“

Hún seg­ist enga lausn hafa séð út úr þessum aðstæð­um. Hún var ekki að fara á aftur á vinnu­mark­að­inn í bráð og heilsan var ekki að lag­ast. Því hafi hún enga aðra leið séð út úr fjár­hags­vand­ræð­unum nema að selja vændi. „Ég sá enga aðra leið til að láta þessa hluti ganga upp.“

Þá hafi hún jafn­framt haft mikla áfalla­sögu að baki áður en hún varð óvinnu­fær. „Ég hafði meðal ann­ars orðið fyrir nauðgun sem ung­lingur og bjó við heim­il­is­of­beldi bæði sem barn og full­orð­in. Þannig var ég mjög brot­in, með lága eða enga sjálfs­mynd og ekki með get­una til að setja mörk í sam­skiptum við hitt kyn­ið.“

Gat ekki ímyndað sér afleiðingarnar

Konan segir að hún hefði aftur á móti ekki getað ímyndað sér afleið­ing­arnar af því að stunda vændi. „Ég gat ekki ímyndað mér að vændi myndi valda mér þeim skaða sem það gerði. Þess vegna ákvað ég frekar að fara í vændi frekar en að selja til dæmis dóp,“ segir hún.

Fólk kann að hafa ákveðnar hug­myndir um „vænd­is­kon­una“ – hvernig henni líður og hvað hún gengur í gegn­um. Konan seg­ist vera af þeirri kyn­slóð sem ólst upp við kvik­mynd­ina Pretty Woman með Juliu Roberts og Ric­hard Gere í aðal­hlut­verk­um. Þar segir frá ríkum við­skipta­jöfri sem kaupir vænd­is­þjón­ustu frá ungri konu og fella þau hugi saman á end­an­um. Hann verður í raun hvíti prins­inn á hest­inum sem bjargar henni úr aðstæð­un­um.

Þessi heimur er fegraður gríð­ar­lega í kvik­mynd­inni, að mati kon­unn­ar, og þrátt fyrir að hún hafi gert sér grein fyrir því áður en hún fór að stunda vændi þá óraði hana ekki fyrir afleið­ing­unum á sínum tíma.

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár