Könnun PwC: Forstjórar á Norðurlöndum líklegri til að segja upp fólki

For­stjórar á Norð­ur­lönd­unum, þar á meðal Íslandi, eru miklu lík­legri til að segja upp starfs­fólki á árinu 2015 en for­stjórar á flestum öðrum stöðum í heim­inum. Alls segj­ast fjórir af hverjum tíu for­stjórum á Norð­ur­löndum að það sé senni­legt að þeir fækki starfs­fólki sínu á árinu á meðan að heims­með­al­tal þeirra for­stjóra sem búast við að reka fólk á árinu 2015 er 21 pró­sent. Einungis 36 pró­sent Norð­ur­landa­for­stjór­anna segja að það sé lík­legt að þeir fjölgi starfs­fólki á árinu á meðan að heims­með­al­talið fyrir jákvætt svar við þeirri spurn­ingu er 50 pró­sent.

Þetta kemur fram í nýrri alþjóð­legri stjórn­enda­rann­sókn PwC sem kynnt var á árlegri ráð­stefnu sam­tak­anna World Economic Forum, sem haldin er í Davos í Sviss, í dag. Hægt er að fylgj­ast með kynn­ing­unni í beinni útsend­ingu frá klukkan 18:45 hér.

Á Davos ráð­stefn­unni hitt­ast þjóð­ar­leið­togar, áhrifa­mestu seðla­banka­stjórar heims, fjöldi emb­ætt­is­manna og for­stjórar margra af stærstu fyr­ir­tækjum heims auk ann­arra áhrifa­manna til að ræða ástandið í efna­hags­málum heims­ins.

PwC hefur árum saman fram­kvæmt alþjóð­lega stjórn­enda­könnun þar sem for­stjórar fyr­ir­tækja all­staðar að úr heim­inum svara spurn­inga­listum og eru teknir í við­töl til að meta hvað þeir telji að sé framundan í efna­hags­málum heims­ins. Sú nýjasta er númer 18 í röð­inni. Alls voru tekin 1.322 við­töl við for­stjóra frá 77 löndum fyrir stjórn­enda­könn­un­ina. 93 pró­sent þeirra sem rætt var við eru karlar en ein­ungis sjö pró­sent konur. Alls voru tíu við­töl tekin við íslenska for­stjóra.

Minni bjartsýni en í fyrra


For­stjórar heims­ins eru ekki jafn bjart­sýnir á vöxt í alþjóð­lega hag­kerf­inu og þeir voru í lok árs 2013. Þá töldu 44 pró­sent þeirra að það yrði alþjóð­legur vöxtur á árinu sem var framundan en nú segj­ast ein­ungis 37 pró­sent þeirra telja að bjart sé framundan árið 2015.

[quote font="0" align="right"]For­stjórar heims­ins eru ekki jafn bjart­sýnir á vöxt í alþjóð­lega hag­kerf­inu og þeir voru í lok árs 2013. Þá töldu 44 pró­sent þeirra að það yrði alþjóð­legur vöxtur á árinu sem var framundan en nú segj­ast ein­ungis 37 pró­sent þeirra telja að bjart sé framundan árið 2015.[/quote]

Tölu­verður munur er á sýn for­stjóra á árið 2015 eftir heims­hlutum. Þannig eru for­stjórar í Asíu, Mið­aust­ur­löndum og Norður-Ameríku bjart­sýn­astir en for­stjórar frá löndum í Mið- og Austur Evrópu svart­sýn­astir. Einungis 16 pró­sent þeirra telja að það verði vöxtur í efna­hagi heims­byggð­ar­innar á árinu sem er ný gengið í garð.

Þegar nið­ur­stöður könn­un­ar­innar eru brotnar niður á lönd kemur í ljós að for­stjórar á í nýmark­aðs­ríkjum á borð við Indland (59 pró­sent jákvæðir), Kína (46 pró­sent jákvæðir) og Mexíkó (42 pró­sent jákvæðir) eru mun bjart­sýnni á að hag­kerfi heims­ins muni blómstra á árinu en for­stjórar í löndum þar sem mark­aðir eru þró­aðri. Í Banda­ríkj­unum eru til dæmis ein­ungis 29 pró­sent for­stjóra bjart­sýnir á árið 2015 og í Þýska­landi er það hlut­fall 33 pró­sent.

Líkt og alltaf eru for­stjór­arnir bjart­sýnni á að fyr­ir­tækin sem þeir stýra muni hagn­ast vel á árinu sem var að ganga í garð en þegar spurt er um afkomu hag­kerf­is­ins í heild. Alls segj­ast 39 pró­sent þeirra búast við því að fyr­ir­tækin þeirra skili hagn­aði á árinu 2015. Það er nán­ast sama hlut­fall og í fyrra og aðeins hærra en í könn­un­inni fyrir árið 2013.

[caption id="attachment_17618" align="alignnone" width="1024"] Alþjóð­legur for­stjóri PwC, Dennis Nally, kynnti nið­ur­stöður úr stjórn­enda­könn­un­inni á Davos ráð­stefn­unni í dag.[/caption]

Bandaríkin mikilvægari en Kína


Það vekur athygli að í könn­un­inni í ár svara fleiri for­stjórar því til að Banda­ríkja­mark­aður verði þeim mik­il­væg­ari næsta árið en Kína­mark­aður. Alls svör­uðu 38 pró­sent for­stjór­anna því til að Banda­ríkin væru á meðal þriggja mik­il­væg­ustu mark­aða þeirra á árinu 2015 á meðan að 34 pró­sent sögðu Kína. Það er í fyrsta sinn síðan að PwC hóf að spyrja um mik­il­væg­ustu mark­að­ina í huga for­stjór­anna fyrir fimm árum sem Kína trónir ekki á toppnum.

Alþjóðlegur forstjóri PwC, Dennis Nally, kynnti niðurstöður úr stjórnendakönnuninni á Davos ráðstefnunni í dag.
Alþjóð­legur for­stjóri PwC, Dennis Nally, kynnti nið­ur­stöður úr stjórn­enda­könn­un­inni á Davos ráð­stefn­unni í dag.

Alls settu 19 pró­sent aðspurðra Þýska­land í efstu þrjú sætin yfir mik­il­væg­ustu mark­að­ina og ell­efu pró­sent nefndu Bretland.

For­stjórar hjá fyr­ir­tækjum á Norð­ur­lönd­unum voru mun svart­sýnni á gott gengi á árinu 2015 en for­stjórar heims­ins voru að með­al­tali. Alls sögð­ust 26 pró­sent þeirra mjög bjart­sýnir á vöxt á árinu, sem er þrettán pró­sent lægra en heims­með­al­talið. Norð­ur­landa­for­stjór­arnir eru hins vegar bjart­sýnni en aðrir þegar horft er til langs­tíma. Um 54 pró­sent þeirra sögð­ust horfa björtum augum á næstu fimm ár í heims­bú­skapnum á meðan að heims­með­al­talið í lang­tíma­bjart­sýni var 49 pró­sent.

84 pró­sent for­stjóra á Norð­ur­lönd­unum sáu fyrir sér að gripið yrði til sparn­að­ar­að­gerða hjá þeim á árinu 2015, sem er langt yfir heims­með­al­tal­inu, 71 pró­sent. Fjórir af hverjum tíu sögð­ust búast við því að fækka fólki á árinu og ein­ungis 36 pró­sent sögð­ust lík­legir til að fjölga starfs­fólki. Í heim­inum öllum var hlut­fall þeirra f0rstjóra sem bjugg­ust við því að þurfa að fækka fólki 21 pró­sent og helm­ingur þeirra bjóst við því að ráða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár