Konan sem dreifði nektarmyndum greiði miskabætur

Mál sem varð­aði „lostugt athæfi“ konu sem dreifði nekt­ar­myndum af eig­in­manni sínum og annarri konu hefur farið fram og til baka í dóms­kerf­inu. Hér­aðs­dómur Reykja­ness ákvarð­aði í dag miska­bætur til manns­ins.

Héraðsdómur Reykjaness
Hér­aðs­dómur Reykja­ness Hluti máls­ins fór aftur fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­ness eftir að konan var dæmd fyrir kyn­ferð­is­brot í Hæsta­rétti. Mynd: Byggingar.is

Konu sem dreifði nekt­ar­myndum af þáver­andi eig­in­manni sínum og annarri konu árið 2020 var í dag gert að greiða mann­inum miska­bætur sam­kvæmt nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­ness.

Málið hefur komið víða við í dóms­kerf­inu síðan það kom upp fyrir tæpum fimm árum. Forsaga þess er að konan hafði farið fram á skilnað í júlí 2020 eftir 16 ára hjóna­band með mann­inum. Fann hún í fram­hald­inu nekt­ar­myndir af honum og annarri konu á Facebook Messen­ger aðgangi manns­ins og sendi þær á mann­inn, mág­konu hans og vin­konu sína með tölvu­pósti með yfir­skrift­inni „Þú ert við­bjóður“.

Konan vildi fyrir dóm­stólum meina að til­gang­ur­inn með tölvu­póst­inum hefði verið að sýna við­tak­endum að sam­skipti eig­in­manns­ins og kon­unnar hafi falið í sér lít­ils­virð­ingu við syni þeirra. Þarna hafi ekki verið um „lostugt athæfi“ að ræða af hennar hálfu og því ekki um brot af kyn­ferð­is­legum toga að ræða.

Hæsti­réttur stað­festi í jan­úar dóm Lands­réttar þess efnis að konan hefði gerst sek um kyn­ferð­is­brot með dreif­ingu mynd­anna enda hafi verið um „lostugt athæfi“ að ræða. Var hún dæmd í þriggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi. Lands­réttur hafði hins vegar ómerkt fyrri dóm Hér­aðs­dóms Reykja­ness hvað varðar einka­rétt­ar­kröfur brota­þola og fór málið því aftur í hérað.

Konan hafði þegar náð dómsátt við hina kon­una um greiðslu á 680.000 kr. í miska­bætur og vexti, en brjóst kon­unnar höfðu sést á tveimur nekt­ar­myndum sem fylgdu tölvu­póst­inum.

Hér­aðs­dómur ákvarð­aði því nú aðeins miska­bætur vegna dreif­ingar kon­unnar á nekt­ar­mynd af eig­in­manni sínum sem sýndi getn­að­ar­lim hans. Ákvarð­aði Hér­aðs­dómur að konan skyldi greiða mann­inum 486.500 kr. með vöxtum vegna athæf­is­ins.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár