Stjórnmálaflokkarnir sýna á spilin í upphafi kosningabaráttu

Í gær hófst síð­asta þing yfir­stand­andi kjör­tíma­bils, og með því kosn­inga­bar­átta sem mun fara fram við óvenju­legar aðstæður vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs sem ógnar heil­brigði og efna­hag þjóð­ar­innar.

Katrín Jakobsdóttir: Hugmyndir það sem gerir samfélagið að því sem það er

Stefnuræða for­sæt­is­ráð­herra var kosn­inga­bar­átturæða. Eðlilega varði hún umtals­verðum tíma í að ræða kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, afleið­ingar hans og það sem stjórn­völd hafi gert til að stemma stigu við þeim afleið­ingum, jafn heilsu­fars­legum og efna­hags­legum.

Í ræð­unni varði hún líka þann árangur sem rík­is­stjórnin telur sig hafa náð á ýmsum öðrum sviðum, og lagði sér­stak­lega áherslu á þá mála­flokka sem Vinstri græn hafa skil­greint sig út frá, en hafa verið gagn­rýnd fyrir að sinna ekki af festu í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk.

Katrín sagði að fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem kynnt hafði verið þá um morg­un­inn, sýndi „stað­fastan vilja stjórn­valda til að verja þann árangur sem náðst hefur í upp­bygg­ingu heil­brigðis- og vel­ferð­ar­kerfis og nýja sókn í menntun, rann­sóknum og nýsköpun. Í fjár­fest­inga­átaki stjórn­valda eru fjöl­breyttar fjár­fest­ingar; sam­göngu­mann­virki, bygg­ingar, þekk­ing­ar­greinar, skap­andi greinar og grænar fjár­fest­ingar. Rík­is­sjóði verður beitt af fullum þunga til að skapa við­spyrnu fyrir almenn­ing og atvinnu­líf í land­inu. Þetta verður græn við­spyrna.“

Mikil umræða hefur verið um það á meðal umhverf­is­vernd­ar­sinna sem taka virkan þátt í starf­semi þrýsti­hópa um aðgerðir til að takast á við loft­lags­vand­ann og frek­ari verndun nátt­úru Íslands að Vinstri græn standi ekki undir græna hluta nafns síns. Andrés Ingi Jónsson, fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna, greindi til að mynda frá því í vik­unni að hann og fleiri fyrr­ver­andi flokks­menn væru að kanna grund­völl fyrir nýjum fram­boði þar sem kallað yrði eftir „rót­tækum breyt­ingum í umhverfis- og jafn­rétt­is­málum.“

Katrín tal­aði þess vegna um að „metn­að­ar­full aðgerð­ar­á­ætlun“ í loft­lags­málum stjórn­valda hefði verið kynnt í sumar sem muni skila „meiri árangri en alþjóð­legar skuld­bind­ingar okkar krefj­ast af okkur sam­kvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.“ Hún sló fleiri tóna fyrir þá kjós­endur Vinstri grænna sem flestar kann­anir á kjör­tíma­bil­inu sýna að ætli sér ekki að kjósa flokk­inn aftur. Mið­há­lend­is­þjóð­garður, rétt­lát­ara skatt­kerfi, jafn­rétt­is­mál og félags­legar hús­næð­is­á­herslur, nýsköpun og stjórn­ar­skrár­breyt­ingar eru allt mál sem bar á góma.

Í nið­ur­lagi stefnu­ræðu sinnar beindi for­sæt­is­ráð­herra sjónum sínum að kom­andi kosn­ingum, sem fara fram eftir tæpt ár og sagði að lesa mættu kunn­ug­lega spá­dóma um að allt muni nú leys­ast upp í karp um keis­ar­ans skegg. „Allt verði hér und­ir­lagt í hefð­bundnum átökum um völd undir nei­kvæð­ustu for­merkjum stjórn­mála­á­taka. En gleymum því ekki heldur að á bak við átökin og skoð­ana­skiptin eru ólíkar stefnur og hug­myndir. Þessar ólíku hug­myndir geta styrkt hver aðra eða kveikt nýjar. Hug­mynd­irnar eru það sem gerir sam­fé­lagið okkar að því sem það er.“

Bjarni Benediktsson: Vill opna landið fyrir ákveðnum hópi fólks

Líkt og kannski er hægt að búast við, þegar flokkar sem eru afar ólíkir í orði sitja saman í rík­is­stjórn, voru áherslur í ræðu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, tölu­vert aðrar en hjá for­sæt­is­ráð­herra. Hann ræddi ekk­ert um umhverfis- og loft­lags­mál, jafn­rétt­is­mál, stjórn­ar­skrá eða félags­legar áherslur.

Öll hans ræða sner­ist með einum eða öðrum hætti um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, að mestu um efna­hags­legar afleið­ingar hans og þær leiðir sem Bjarni vill fara til að koma efna­hag lands­ins aftur í gang. Þótt að um tíma­bundið ástand væri að ræða þá væri ekki þar með sagt að sá veru­leiki sem myndi blasa við eftir það yrði sá sami sem var áður. „Mig langar til að segja hér að hann eigi bein­línis ekki að verða það. Það sem ég vil fá aftur er næg vinna, óheft sam­skipti og heilsu­fars­legt öryggi.[...]það sem ég vil að breyt­ist er fjöl­breytni atvinnu­lífs­ins. Fleiri stoðir, áhersla á þekk­ingu og atvinnu­greinar sem eru ekki eins við­kvæmar fyrir sveiflum nátt­úr­unnar — jafn­vel dyntum nátt­úr­unnar — og þær sem við treystum svo mjög á nú. Ég vil sjá veg rót­gró­inna stoða sem mestan, að ferða­þjón­usta blóm­stri, útveg­ur­inn afli vel og álf­ram­leiðslan verði greidd sann­gjörnu eins og allt sem kemur úr orku­frekum iðn­aði og stand­ist um leið alþjóð­lega sam­keppni. Við viljum að allt þetta verði aftur eins og það hefur verið og geti orðið til fram­tíðar.“

Bjarni tal­aði líka um að vilja opna landið fyrir ákveðnum hópi fólks. Þeir sem hann vill laða til lands­ins eru sér­fræð­ingar sem vilji „gjarnan koma, búa hér, deila þekk­ingu sinni með sam­fé­lag­inu, fá þá hingað til að vinna með okkur að fram­tíð lands­ins.“

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins eyddi stórum hluta ræðu sinnar í að ræða erf­iða stöðu fyrir atvinnu­rek­endur. Fólk sem hefði verið lengi í rekstri en sjái far­ald­ur­inn kippa fót­unum undan sér. „Það er mik­il­vægt að taka þannig utan um sam­fé­lagið, bæði fólk og fyr­ir­tæki, að þau kom­ist hratt á fæt­urna aftur þegar glaðnar til.[...]Án atvinnu­lífs­ins verður engin við­spyrna. Án atvinnu­lífs­ins eru engin störf, hvorki núna né til að snúa aftur í.“Bjarni lagði í máli sinu áherslu á að rík­is­stjórnin væri að lækka skatta og tryggja skatta­legar íviln­anir til að örva fjár­fest­ingu. „Þetta gerum við best með beinum stuðn­ingi, með lægri álögum, með því að láta rík­is­sjóð bera auknar byrðar, með grænum lausnum, nýjum hug­myndum og með því að taka höndum saman um að koma sterk­ari út úr vand­anum.“

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur áður talað um að það verði að líta á kór­ónu­veiru­krepp­una sem tæki­færi til að upp­færa Ísland. Hann hélt sig við það þema í ræðu sinni í gær og lauk henni með því að segja að sú upp­færsla þyrfti að skila tækni­vædd­ara, skil­virkara, grænna, sann­gjarn­ara og kraft­meira sam­fé­lagi. „Það verður Ísland í upp­færslu 2.0.“

Sigurður Ingi Jóhannsson: „Ræðan mín er ónýt“

Staða Fram­sókn­ar­flokks­ins sam­kvæmt könn­unum er slæm. Raun­veru­leg hætta er á að flokk­ur­inn gæti verið í bar­áttu um að halda sér inni á þingi. Í síð­ustu birtu könnun mæld­ist flokk­ur­inn með næst minnsta fylgi sem hann hefur mælst með í könnun Gallup, eða 6,7 pró­sent.

Orðrómur hefur verið um það lengi að Lilja Alfreðs­dóttir ætli sér að gera atlögu að for­mennsku í flokknum á kom­andi flokks­þingi, en Sigurður Ingi hefur þegar gefið það út að hann ætli sér að leiða flokk­inn í gegnum næstu kosn­ingar. Nýleg könnun Zenter, sem sýndi að traust á Sigurð Inga sé að aukast á meðal kjós­enda á meðan að sá hópur sem treysti Lilju best allra ráð­herra hefur helm­ing­ast, þótt hún njóti enn meira trausts en Sigurður Ingi, dregur enn úr líkum á for­manns­slag.

Sigurður Ingi flutti eft­ir­minni­leg­ustu ræðu gær­kvölds­ins. Í henni voru ekki settar fram skýrar hug­mynda­fræði­legar áherslur eða ítar­legur veg­vísir að þeim áfanga­stað sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stefnir að. Þess í stað nýtti Sigurður Ingi hana til að skerpa á stað­setn­ingu flokks­ins í hinu póli­tíska lit­rófi, sem stjórn­tækur og miðju­sækin flokk mála­miðl­ana.

Ræðan hófst með eft­ir­far­andi hætti: „Virðu­legi for­seti. Formaður Mið­flokks­ins fór í ræðu sinni yfir að stefna rík­is­stjórn­ar­innar væri stefna Vinstri grænna. Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar kom svo upp og sagði að þessi stefna væri hægri stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Svarið liggur auð­vitað í augum uppi: Stefna þess­arar rík­is­stjórnar er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins.“ Hann upp­skar hlátur í þing­sal og gott veður á sam­fé­lags­miðlum.

Sigurður Ingi hélt áfram og sagði að for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hefði sagt í sinni ræðu: vinna, vöxtur, vel­ferð. „Þetta eru kjör­orð fram­sókn­ar­stefn­unnar og Sam­fylk­ingin er að taka þau upp. Þegar hann lýsti síðan hvaða áform þyrfti að fara í í fjár­fest­ing­ar­átak­inu var hann lýsa fjár­fest­ing­ar­átaki rík­is­stjórn­ar­innar. Það er rétt hjá for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar að allur heim­ur­inn er að fara í þá átt. Ræða mín er ónýt því að ég þurfti að byrja á þessu.“

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins fór síðan yfir aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins með jákvæðum for­merkjum og sendi ein­föld skila­boð um hvert verk­efni eft­ir­stand­andi kjör­tíma­bils væri. „Það er atvinna, atvinna, atvinna sem málið snýst um.“

Í kjöl­farið sló hann tóna sem hljóma vel á lands­byggð­inni, þar sem Framsókn sækir sinn styrk að uppi­stöðu. Hann fagn­aði fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum við veg­inn um Teigskóg og öðrum stór­fram­kvæmdum, tal­aði um lamba­kjöt og mik­il­vægi íslenskra vara.

Sigurður Ingi end­aði ræð­una á að verja rík­is­stjórn­ina sem hann situr í og sagði hana breiða í eðli sínu. „Þar koma saman ólíkir kraftar sem end­ur­spegla að miklu leyti skoð­anir þjóð­ar­innar. Hún hefur verið ein­beitt í því að horfa á sam­eig­in­lega hags­muni þjóð­ar­innar og vinna að sátt í sam­fé­lag­inu. Hún er á réttum tíma á réttum stað.“

Logi Einarsson: Boðaði teikningar að nýrri ríkisstjórn

Það ætti ekki að hafa farið fram­hjá neinum hvert for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar stefnir þegar kemur að myndun rík­is­stjórnar eftir næstu kosn­ingar. Sér­stak­lega þar sem hann hefur ítrekað verið mjög opin­skár um það á opin­berum vett­vangi. Logi Ein­ars­son ætlar ekki í stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokki og hann vill að Sam­fylk­ingin myndi rík­is­stjórn með öðrum umbóta­flokkum sem ráð­ist í kerf­is­breyt­ingar á íslensku sam­fé­lagi. Hryggjar­stykkið í þeirri hug­mynd eru, auk Sam­fylk­ing­ar­innar, Píratar og Viðreisn en annað hvort Vinstri græn eða Framsókn þyrftu lík­ast til að vera með til að draum­sýnin gæti gengið upp. Jafnvel báðir flokk­arnir.

Ræða Loga í gær var ítrekun á þess­ari sýn. Þar sagð­ist hann líta á það sem hlut­verk Sam­fylk­ing­ar­innar að leiða saman þau öfl sem væru til­búin að fylkja sér um vinnu, vel­ferð og græna fram­tíð „og mynda græna félags­hyggju­stjórn að ári, sem getur varðað nýja leið[...]Átök íslenskra stjórn­mála næsta árið munu og þurfa að snú­ast um hvert skal stefna. Rétta leiðin , ábyrga leið­in, felst í því að ráð­ast strax í kraft­mikla græna fjár­fest­ing­ar­á­ætl­un, aðgerðir sem vinna gegn ham­fara­hlýnun en skapa um leið atvinnu og verð­mæta­sköpun fyrir okkur öll.“

Logi sagði að hann væri sann­færður um að hægt væri að skapa betra og sterkara vel­ferð­ar­sam­fé­lag á Íslandi þar sem ekk­ert barn færi svangt að sofa, hús­næð­isör­uggi væri jafn sjálf­sagt og aðgangur að vatni eða lofti, þar sem gjald­mið­ill­inn væri stöðugri og mat­ar­k­arfan ódýr­ari. „Þar sem atvinnu­laus­ir, öryrkjar og fátækt fólk búa ekki við nístandi óvissu frá degi til dags. Þar sem hvers kyns mis­munun er hafn­að, vel­ferð inn­flytj­enda tryggð og börnum á flótta veitt skjól. Sam­fé­lag sem ein­kenn­ist af mannúð og sjálf­bærni, jöfn­uði og frelsi. Þannig sam­fé­lag sköpum við ekki nema með rétt­lát­ari skatt­byrði, minni ójöfn­uði, heil­brigð­ari og fjöl­breytt­ari vinnu­mark­að­i.“

Á tímum lofts­lags­ham­fara og heims­far­ald­urs hafi Íslend­ingar ekki efni á því að leyfa hug­mynda­fræði Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­stefnu hægri­manna að ráða för, Það væri ein­fald­lega of mikið í húfi.

Í ræðu sinni sagði Logi einnig að sjaldan eða aldrei hefði mik­il­vægi rík­is­valds­ins og sterkrar almanna­þjón­ustu birst jafn skýrt og í kór­ónu­veiru­far­aldr­in­um. „Full­yrð­ingar hægri­manna um að reglu­lít­ill mark­aður greiði sjálfur úr öllum vanda­málum og skili rétt­mætum gæðum til almenn­ings dæma sig nú end­an­lega sjálf­ar.“

Íslend­ingar stæðu and­spænis gríð­ar­lega flóknum verk­efnum sem yrðu ekki öll leyst á stuttum tíma. „En fyrsta skrefið er að skipta um kúrs, snúa skút­unni frá hægri og hrista af okkur gam­al­dags kreddur um það hvernig rík­is­fjár­mál virka og hvernig verð­mæti verða til.“

Lausnir jafn­að­ar­stefn­unn­ar, sem byggja á sam­spili opin­berra umsvifa og einka­fram­taks, væru mik­il­vægastar í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn. Hann boð­aði svo að Sam­fylk­ingin myndi leggja fram, á næstu dög­um, heild­stæða áætlun um hvernig Ísland getur brot­ist út úr atvinnu­leysiskrepp­unn­i.

Á meðal meg­in­á­hersla þar yrðu stór­auknar aðgerðir í bar­átt­unni gegn ham­fara­hlýnun. „Við núver­andi aðstæður dugar nefni­lega ekk­ert minna en raun­veru­leg græn atvinnu­bylt­ing.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Úrslitabarátta í einu stærsta deilumáli stjórnmála

Formaður Við­reisnar, sem var nýlega end­ur­kjörin í emb­ætti og örugg á fleti innan síns flokks, byrj­aði ræðu sína á því að kalla stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra varn­ar­ræðu rík­is­stjórn­ar­innar upp­fulla af rétt­læt­ingu yfir því að ráð­herr­arnir fóru þvert gegn eigin yfir­lýs­ingum í upp­hafi far­ald­urs­ins, um að gera meira en minna.

Hún sagði að bráða­vandi heim­ila og lít­illa fyr­ir­tækja væri núna. „Við upp­lifum að allt sam­ræmi vantar á milli sótt­varna­ráð­staf­ana og efna­hags­ráð­staf­ana. Ef stóru skrefin verða ekki stigin strax þá er rík­is­stjórnin að bjóða þjóð­inni upp á langvar­andi kreppu. Það er óboð­leg for­gangs­röðun. Þótt rík­is­stjórnin telji það lög­mál að vera alltaf einu skrefi á eftir veirunni þarf það ekki að vera svo. Í þess­ari, nú þriðju bylgju er enn skortur á plani og sam­tali, skýrri sýn sem þjóðin öll skilur. Veik­leikar stjórn­ar­innar, sem reist var á þeirri einu hugsun að halda hlutum óbreyttum, verða aug­ljósir þegar óvæntar aðstæður og áskor­anir koma upp. Rík­is­stjórn kyrr­stöð­unnar, rík­is­stjórn lægsta sam­nefn­ar­ans er ekki best til þess fallin að bregð­ast hratt og örugg­lega við. Hvað þá stíga stór skref.“

Allt þetta er í takti við áður spiluð stef Við­reisnar, sem skil­greinir sig sem kerf­is­breyt­inga­flokk sem geti dregið íslenskt sam­fé­lag inn í frjáls­lynd­ari, alþjóð­legri og sann­gjarn­ari fram­tíð.

Hún þrengdi svo stefið í bar­áttu milli sér­hags­muna, sem Þor­gerður Katrín segir rík­is­stjórn­ina og önnur aft­ur­halds­öfl standa fyrir, og almanna­hags­muna, sem hún segir Viðreisn standa fyrir. „Við blasir úrslita­bar­átta í einu stærsta deilu­máli stjórn­mál­anna. Hvernig á auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá að líta út? Stjórn­ar­flokk­arnir og Mið­flokk­ur­inn hafa lofað útgerð­inni að koma ákvæði án tíma­bind­ingar veiði­réttar í gegn. Tillagan sem nú liggur fyrir er merk­ing­ar­laus, breytir engu, hún tryggir ekki þjóð­ar­eign­ina. Ef eitt­hvað er eykur hún líkur á að sam­eign þjóðar verði sér­eign fárra.“

Þor­gerður Katrín sagði að það þyrfti að ræða gjald­miðla­mál og það að íslenska krónan væri bara fyrir suma, en ekki alla. Hún tal­aði afláts­bréfa­skrif þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins í „rík­is­styrkt Morg­un­út­gerða­blað til að firra sig ábyrgð á útgjalda­þenslu síð­ustu ára“, gagn­rýndi Vinstri græn fyrir að standa ekki í lapp­irnar í hval­veiði-, sjáv­ar­út­vegs­kerfis- og flótta­manna­málum og sagði að þeim sýnd­ar­veru­leika um að breyt­ingar væru að eiga sér stað á vakt sitj­andi rík­is­stjórnar yrði að ljúka. „Að ári getur þjóðin valið að fram­lengja í lífi rík­is­stjórnar kyrr­stöð­unnar, hugs­an­lega með stuðn­ingi Mið­flokks­ins. Eða að mynda rík­is­stjórn fyrir fjöld­ann þar sem miðja stjórn­mál­anna verður kjöl­festan og frjáls­lyndið þráð­ur­inn. Og skilin eru skörp á milli for­tíð­ar­flokk­anna sem engu vilja breyta og þeirra flokka sem þora að fara í umbætur á íslensku stjórn­kerfi, íslensku sam­fé­lagi, flokka sem eru engum háðir, eru frjálsir.“

Halldóra Mogensen: Ríkisstjórnin skilur ekki framtíðina

Píratar eru ekki með flokks­for­mann og því skipta þeir með sér verkum með öðrum hætti en hinir flokk­arnir. Af þeim átta sem töl­uðu fyrir hönd flokka í fyrstu umferð­inni í gær var Halldóra Mogensen sú eina sem er ekki for­maður síns flokks.

Ræða hennar átti margt sam­eig­in­legt með því sem for­menn Sam­fylk­ingar og Við­reisnar töl­uðu um í sínum ræðum, að það þyrfti að horfa til breyttrar fram­tíðar. Ráð­herrar og þing­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna tali hins vegar helst um það hvernig skuli halda sem fast­ast í for­tíð­ina og úrelta hug­mynda­fræði. „Ástæðan fyrir því að flokk­arnir sem mynda rík­is­stjórn­ina vilja frekar ræða for­tíð­ina en fram­tíð­ina er ein­föld, þau skilja ekki fram­tíð­ina.“

Halldóra lagði svo fram póli­tíska sýn Píratar á kosn­inga­vetri. meg­in­stefið þar er að hug­mynda­fræði flokks­ins grund­vall­ist á því að valdið eigi heima hjá almenn­ingi. Þær snú­ast um að und­ir­búa þjóð­fé­lagið fyrir tækni­fram­farir sem munu hafa gríð­ar­leg áhrif á líf allra. „Við þurfum því í alvöru að fara að ræða lausnir eins og borg­ara­laun, sem eru ekki bara svarið við óstöð­ugu efna­hags­á­standi og vél­væð­ingu starfa, heldur efna­hags­legt lof­orð stjórn­valda um að öllum skuli tryggð afkoma, skil­yrð­is­laus grunn­fram­færsla, til að vaxa og dafna á eigin for­sendum.“

Hún sagði Pírata líka skilja að áskor­anir í lofts­lags­málum krefj­ast metn­að­ar­fullra aðgerða og hug­rekkis til að fram­kvæma þær og fjár­magna að fullu. „Sam­fé­lags­leg ábyrgð og sjálf­bærni fyr­ir­tækja verða aldrei leið­ar­stef án þess að umhverfis- og sam­fé­lags­skaði þeirra verði met­inn til fjár. Ef þú mengar þá borgar þú. Ný hag­ræn hugsun og sjálf­bærni­hvatar í stað for­tíð­ar­þrár meng­andi stór­fyr­ir­tækja eru lyk­ill­inn að því að koma hér á alvöru­vel­sæld­ar­hag­kerfi.“

Píratar hafa lagt mikla áherslu á að ákvörð­unum og hegðun í stjórn­sýslu og stjórn­málum fylgi ábyrgð. Sú afstaða hefur oft leitt til mik­illa átaka á þing­inu. Halldóra dró sann­ar­lega ekki úr þeim áherslum í ræðu sinni í gær. Hún sagði að vald­hafar þyrftu að sæta ábyrgð, að styrkja þyrfti rétt ein­stak­linga gegn vald­beit­ingu stjórn­valda og auka þarf aðkomu fólks að ákvörð­un­ar­töku. „Án slíks aðhalds er leiðin greið fyrir alls konar litla ein­ræð­is­herra í bún­ingi sterkra leið­toga til að fóta sig, eins og sjá má víða í kringum okkur. Þess vegna berj­umst við fyrir nýrri stjórn­ar­skrá.

Halldóra gagn­rýndi svo rík­is­stjórn­ina fyrir við­brögð hennar við efna­hags­legum afleið­ingum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og sagði að í þeim hafi falist að leita til pen­inga­afl­anna í land­inu. „Helstu ráð­gjafar rík­is­stjórn­ar­innar voru ýmist full­trúar stór­fyr­ir­tækja eða full­trúar sam­taka stór­fyr­ir­tækja, lobbí­istar sem geta með dags fyr­ir­vara bara pantað blaða­manna­fund við ráð­herra­bú­stað­inn og 25 millj­arða úr rík­is­sjóði. Lobbí­istar sem hafa selt stjórn­völdum skað­lega vúdú-hag­fræði þar sem fyr­ir­tæki eru alltaf í for­grunni, aldrei fólk.“

Lokaorð Halldóru voru ákall til kjós­enda um að velja flokka sem setja hags­muni almenn­ings ofar hags­munum stór­fyr­ir­tækja, sem gera fólki kleift að grípa tæki­færin og skapa sína eigin fram­tíð. „Velja flokka sem bera virð­ingu fyrir þjóð­inni og veita henni stjórn­ar­skrána sem hún valdi sér sjálf, flokka sem skilja fram­tíð­ina og vilja fram­tíð­ina.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson: „Líklega óhugnanlegasta þingmál sem ég man eftir í seinni tíð“

Mið­flokk­ur­inn sker sig úr þeim flokkum sem mæl­ast í skoð­ana­könn­unum með nægj­an­legt fylgi til að fá full­trúa á Alþingi í næstu kosn­ingum. Flokk­ur­inn er að móta sér nokkuð skýra sýn ýmsum mála­flokkum sem á sér ekki hlið­stæðu í stefnu­skrám ann­arra stærri flokka.

Hún snýst meðal ann­ars um að ráð­ast gegn útþenslu kerf­is­ins, gegn sér­fræð­inga­veldi þess og gegn Borg­ar­línu­verk­efn­inu.

Í ræðu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns flokks­ins, voru ýmis menn­ing­ar­mál í for­grunni og þar virt­ist hann vera að biðla til Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en gagn­rýna bæði Vinstri græn og sinn gamla flokk, Fram­sókn­ar­flokk­inn. Hann gagn­rýndi harka­lega þær póli­tísku áherslur sem rík­is­stjórnin væri að sýna við lok kjör­tíma­bils­ins og sagð­ist skorta orð til að lýsa undrun á því hvert hún væri að stefna.

Síðan hófst upp­taln­ing.

Hún hófst á því að hann tók fyrir frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um kyn­rænt sjálf­ræði, þar sem til stendur að æta við ákvæði sem fjallar um breyt­ingar á kynein­kennum barna með ódæmi­gerð kynein­kenni. Sig­mundur Davíð var myrkur í máli og sagði þetta „lík­lega óhugn­an­leg­asta þing­mál sem ég man eftir í seinni tíð.“ Sig­mundur Davíð sagði að í mál­inu ætl­aði rík­is­stjórnin að banna for­eldrum og læknum að nýta nútíma­lækn­ingar. Það væri aðför að fram­förum og vís­indum. „Þetta er aðför að frelsi for­eldra. Þetta er aðför að frelsi heil­brigð­is­starfs­fólks og þetta er aðför að rétt­indum barna. Ég trúi því ekki að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hleypi þessu máli í gegn. Það hafa reyndar verið mörg mál sem ég hélt að sá flokkur gæti ekki sam­þykkt en hann gerði það nú samt. Þriðji flokk­ur­inn mun svo vænt­an­lega gera það sem ætl­ast er til af honum.“

Því næst tók hann fyrir mót­töku fylgd­ar­lausra barna úr hópi þeirra sem sækja um vernd á Íslandi. Sig­mundur Davíð sagði að þegar hann hefði verið for­sæt­is­ráð­herra, á árunum 2013-2016, hefði hann kynnt sér þessi mál mjög vel með sam­tölum við þá sem störf­uðu á vett­vangi. „Það sem stóð upp úr í ráð­gjöf þessa fólks var að alls ekki mætti setja sér­reglur um fylgd­ar­laus börn vegna þess að með því væri verið að stuðla að því að börn yrðu send ein af stað í hættu­för. Hér sem fyrr bygg­ist stefnan bara á orð­anna hljóða, ímynd en ekki raun­veru­legum afleið­ingum. Staða inn­flytj­enda­mála er raunar í algjörum ólestri af sömu ástæðum.“

Í kjöl­farið gerði gagn­rýndi hann stjórn­ar­frum­vörp um lög­leið­ingu fíkni­efna, því sem hann kall­aði „til­raun til að vega að starfi íslenskrar leigu­bíl­stjóra á sama tíma og þeir hafa orðið fyrir veru­legri tekju­skerð­ingu“ og að nú ætti að „rústa íslenskri nafna­hefð sem hefur varð­veist frá land­námi.“ Sig­mundur Davíð ítrek­aði einnig and­stöðu sína gagn­vart lög­þving­aðri sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga. Undir lok ræðu sinnar sneri Sig­mundur Davíð sér að loft­lags­málum og sagði að iðn­að­ur­inn sem rek­inn væri hér á landi með umhverf­is­vænni orku væri langstærsta fram­lag Íslands í þeim mála­flokki. „Þrátt fyrir það er íslensk stór­iðja í upp­námi og engin merki um að rík­is­stjórnin ætli að bregð­ast við. Vandinn er enn meiri í land­bún­aði. Sótt er að grein­inni úr mörgum áttum og atvinnu­grein sem hefur verið und­ir­staða byggðar á Íslandi frá land­námi er í veru­legri hættu. Á sama tíma eyðir rík­is­stjórnin tugum millj­arða í verk­efni á borð við borg­ar­línu og stofn­ana­væð­ingu lofts­lags­mála.“

Inga Sæland: Fátækt og grímulaus hagsmunagæsla

Formaður Flokks fólks­ins hélt sig við vera málsvari þeirra sem verst hafa það í sam­fé­lag­inu. Fátækt var meg­in­n­tak ræðu hennar og Inga Sæland sagði að gjáin milli ríkra og fátækra væri sífellt að verða gleið­ari.

Það væri í boði rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur og Vinstri grænna sem Inga sagði að stund­aði grímu­laus­ari hags­muna­gæslu en nokkur önnur rík­is­stjórn hefði nokkru sinni gert. „Við erum nýbúin að horfa upp á það að um hábjartan dag tókst á sek­úndu­broti að slengja fram 25 millj­arða kr. lof­orði þegar Samtök atvinnu­lífs­ins fóru í fýlu og kreistu rík­is­stjórn­ina. Ég veit ekki hvernig þeir fóru að því, kannski þurftu þeir ekki einu sinni að hafa fyrir því. Kannski eru þeir bara allir svona rosa­lega nánir, 25 millj­arðar á einum degi. En það kost­aði blóð, svita og tár að draga fram 25 millj­arða kr. sem var skipt á níu hjálp­ar­stofn­anir til að gefa fátæku fólki að borða.“

Inga sagði að henni væri virki­lega mis­boðið. „Hér kemur hver silki­húfan, með fullri virð­ingu, fram á fætur annarri og talar um kom­andi kosn­ingar og hér er haldin hver kosn­inga­ræðan á fætur annarri. Ég ótt­ast að það sem kemur upp úr kjör­köss­unum í sept­em­ber að ári liðnu komi til með að gefa lands­mönnum nákvæm­lega það sama, þessum hópi sem Flokkur fólks­ins er að berj­ast fyrir, og við höfum séð kjör­tíma­bil eftir kjör­tíma­bil: Fátækt.“

For­mað­ur­inn lauk ræðu sinni á því að rifja upp þing­ræðu Katrínar Jak­obs­dóttur frá 13. sept­em­ber 2017, þar sem hún, þá óbreyttur þing­maður og ekki orðin for­sæt­is­ráð­herra, að það að láta fátækt fólk bíða eftir rétt­læti, það þýddi það sama og að neita því um rétt­læti.„ Og hvað er það sem við horfum upp á í dag? Við horfum upp á nákvæm­lega það að þegar þessi ágæti þing­maður situr nú við stýri for­sæt­is­ráð­herra í þess­ari rík­is­stjórn þá láta þau fátækt fólk bíða eftir rétt­læti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár