Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum og þeir verða því áfram 9,25 prósent. Fyrir vaxtaákvörðun nefndarinnar í morgun hafði hún hækkað vexti fjórtán sinnum í röð. Stýrivextir hafa ekki verið hærri síðan í desember 2009, eða í næstum 14 ár.
Ákvörðun nefndarinnar var í andstöðu við spá greiningaraðila bankanna, sem höfðu spáð 0,25 til 0,5 prósentustiga stýrivaxtahækkun.
Í yfirlýsingu Peningastefnunefndar, þar sem hún rökstyður ákvörðun sína, segir að á heildina litið hafi þróun efnahagsmála verið í samræmi við mat nefndarinnar á síðasta fundi, sem fram fór í ágúst. Verðbólga hafi aukist á ný og mældist átta prósent í september. Verðbólga án húsnæðis hafi einnig aukist en undirliggjandi verðbólga hefur hjaðnað lítillega. „Vísbendingar eru um að heldur hafi dregið úr tíðni verðhækkana og að þær séu ekki á eins breiðum grunni og áður. Þótt verðbólguvæntingar séu áfram of háar hafa þær lækkað á suma mælikvarða.“
Það hafi einnig hægt á vexti efnahagsumsvifa. Það sjáist á því að hagvöxtur hafi verið 5,8 prósent á fyrri hluta ársins 2023 en var ríflega sjö prósent í fyrra. Auk þess séu til staðar vísbendingar um að það hafi hægt enn frekar á eftirspurn á þriðja fjórðungi ársins. „Aftur á móti er enn nokkur spenna á vinnumarkaði og í þjóðarbúskapnum í heild. Raunvextir bankans hafa hins vegar hækkað það sem af er ári og áhrif vaxtahækkana bankans eru farin að koma fram í meira mæli.“
Á þessum tímapunkti sé nokkur óvissa um efnahagsframvinduna og hvort núverandi taumhald sé nægjanlegt. „Nefndin hefur því ákveðið að staldra við en á næsta fundi mun liggja fyrir ný þjóðhags- og verðbólguspá bankans. Peningastefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“
Sá fundur fer fram 22. nóvember næstkomandi.
Vaxtagreiðslur aukist um 62 prósent milli ára
Stýrivextir náðu sögulegu lágmarki í maí 2021, áður en að yfirstandandi vaxtahækkunarferli hófst, en þá voru þeir 0,75 prósent. Stýrivextir voru síðast svona háir í janúar 2010, rúmlega einu ári eftir bankahrunið.
Nefndin hækkaði síðast vexti í ágúst, þá um 0,5 prósentustig, og alls hafa þeir hækkað um, 3,25 prósentustig frá áramótum. Ástæða þessa er einföld: verðbólga hefur verið gríðarhá í lengri tíma og stýrivextir Seðlabanka Íslands hafa verið hækkaðir skarpt til að berjast við hana.
Hækkanirnar, sem eru til þess gerðar að draga úr eftirspurn í hagkerfinu, hafa mikil áhrif á lánakjör margra íslenskra heimila. Þannig borguðu þau um 58,8 milljarða króna í vaxtagjöld á fyrri hluta árs 2023. Á sama tímabili í fyrra greiddu þau 36,3 milljarða króna. Þar skeikar 22,5 milljörðum króna sem heimili landsins hafa þurft að reiða fram í vexti af lánum sem þau hafa tekið sem þau þurftu ekki að greiða á fyrri hluta árs í fyrra, en vextir á breytilegum óverðtryggðum íbúðalánum hjá bönkum eru nú í kringum ellefu prósent.
Þessar miklu hækkanir á vaxtagjöldum – 62 prósent á milli ára –er lykilbreyta í þvík að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila á mann dróst saman um 5,2 prósent á öðrum ársfjórðungi ársins 2023, þrátt fyrir að tekjur þeirra hafi hækkað umtalsvert. Það þýðir að hann hefur lækkað fjóra ársfjórðunga í röð samkvæmt endurskoðum tölum Hagstofunnar. Kaupmátturinn hefur ekki lækkað svona mikið innan ársfjórðungs síðan undir lok árs 2010, þegar hann lækkaði um sjö prósent.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir