Skiptar skoðanir þingmanna um nám: Of mikið álag eða eðlilegt áhugamál?

Mjög skiptar skoð­anir eru um það meðal þing­manna hvort eðli­legt sé að stunda nám með­fram þing­störfum eða ekki. Þetta kemur fram í svörum við fyr­ir­spurn sem Kjarninn sendi á alla alþing­is­menn um það hvort þeir stundi nám með­fram þing­störfum og hvort þeim þykja nám og þing­störf fara vel saman. 44 þing­menn hafa svarað fyr­ir­spurn­inni.

Af þessum 44 þing­mönnum eru þrír í námi, þau Silja Dögg Gunn­ars­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Róbert Marshall þing­maður Bjartrar fram­tíðar og Katrín Júl­í­us­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Silja er í fjar­námi við Háskól­ann á Bifröst þar sem hún stundar nám á meist­ara­stigi í alþjóða­við­skiptum, „sem rímar ein­stak­lega vel við störf mín á Alþingi þar sem ég á sæti í utan­rík­is­mála­nefnd. Námið er skipu­lagt fyrir fólk í fullu starfi, það er því mjög sveigj­an­legt og hentar vel með þing­störfum sem og öðrum störfum,“ segir Silja Dögg. Hún segir námið vera hennar eina áhuga­mál, og nauð­syn­legt sé að eiga áhuga­mál til að hvíla hug­ann á póli­tík­inni.

Róbert er einnig í fjar­námi, sem hann segir að sé lík­lega um 20% nám. Hann skráði sig í kúrsa í nátt­úru- og umhverf­is­fræði við Land­bún­að­ar­há­skól­ann á Hvann­eyri í haust, eftir að hann lét af þing­flokks­for­mennsku fyrir Bjarta fram­tíð. „Kúrs­arnir sem um ræðir tengj­ast með beinum hætti störfum mínum sem þing­maður. Í umhverf­is­nefnd, Þing­valla­nefnd og stjórn­ar­skrár­nefnd hefur nám í sið­fræði nátt­úr­unnar og land­nýt­ingu dýpkað skiln­ing minn á við­fangs­efn­inu. Ég hef litið á þetta sem hluta af minni vinnu og þetta hefur gagn­ast mér þar.“ Hann segir að hann hafi enn sem komið er aðeins lokið einu prófi, enda hafi frí­tími hans ekki boðið upp á meira. Hann seg­ist eiga erfitt með að ímynda sér að nokkur vinnu­veit­andi geri annað en að fagna því að starfs­menn reyni að gera sig betri í starfi.

Katrín Júl­í­us­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar er í MBA námi við Háskól­ann í Reykja­vík og hyggst ljúka því í vor. Hún segir skipu­lag náms­ins henta ágæt­lega með þing­störfum, þar sem kennt sé aðra hverja helgi og annir séu í styttra lagi. „Þannig er skól­inn t.d. yfir­leitt búinn þegar des­em­ber- og vor­hasar­inn hefst með til­heyr­andi þing­fundum um kvöld og helgar. Í þau skipti sem árekstur hefur orðið hefur vinnan gengið fyrir og það mætt skiln­ingi í nám­inu. Svo læri ég á kvöldin og áður en han­inn galar á morgn­ana! Nýti sumsé drjúgan hluta frí­tíma míns í að auðga and­ann og sé ekki eftir því.“

Elsa Lára hætti vegna álags og Karl lauk meistaranámi meðfram þingstörfum

Elsa Lára Arn­ar­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins var í námi í eina önn sam­hliða þing­störfum, „en hætti því því mér fannst þetta of mikið álag sam­hliða vinn­unni.“ Hún var að læra stjórnun og for­ystu í fjar­námi frá Háskól­anum á Bifröst. Hún segir að hennar mati fari þing­störf og nám ekki vel saman, „þess vegna hætti ég.“

Vil­hjálmur Árnason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins lauk meist­ara­námi í lög­fræði í vor með­fram þing­störfum. Hann telur að þing­mönnum geti verið það hollt að stunda nám sam­hliða þing­störfum.

Karl Garð­ar­son þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins er ekki í námi núna en lauk hins vegar ML gráðu í lög­fræði um mitt síð­asta ár frá Háskól­anum í Reykja­vík. „Slíkt nám fór vel saman við þing­störfin, þar sem síð­asta hálfa árið var ég fyrst og fremst í rit­gerða­smíð. Lög­fræðin nýt­ist þing­mönnum afar vel, enda er laga­setn­ing hlut­verk okkar.“

Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins var einmitt leið­bein­andi Karls í meist­ara­rit­gerð­ar­skrifum hans. Brynjar er ekki í námi en er stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands. Hann segir að þing­störf og nám geti farið vel saman og sé í raun æski­legt að stundað sé nám með vinnu ef því verði við­komið, þótt tak­mörk séu fyrir því. „Mér sýn­ist að þeir þing­menn sem hafa stundað nám með þing­starf­inu hafi staðið vel við sínar skyldur sem þing­menn og ekk­ert síður en aðrir,“ segir hann.

Þingstörf sólarhringsstarf ef vel á að vera

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir það meira en fullt starf að sinna þing­stör­f­unum „eins og ég reyni að gera sem best.“ „Ég stunda ekk­ert nám með þing­mennsk­unni enda er mér ómögu­legt að skilja hvernig það er ger­legt,“ segir Páll Valur Björns­son þing­maður Bjartrar fram­tíðar. Birgitta Jóns­dóttir þing­maður Pírata tekur í sama streng og segir „þing­störf hafa alltaf verið síðan ég fór á þing meira en 100% vinna.“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­maður VG seg­ist telja þing­störfin taka allan hennar tíma og Willum Þór Þórsson þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins seg­ist ekki geta ímyndað sér að þing­störf og nám fari vel saman „án þess að það komi niður á öðru hvoru námi eða starfi.“ Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir þing­mennsk­una nán­ast sól­ar­hrings­starf ef vel á að vera og í sama streng tekur Kristján Möller flokks­bróðir hennar, sem segir þing­störf fullt starf „og stundum meira en það.“

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir sam­flokks­kona Sigríðar og Krist­jáns seg­ist vita af eigin reynslu að það sé erfitt að stunda nám með annarri vinnu. Sér­stak­lega hljóti svo að vera með þing­störf, sem séu mjög tíma­frek og krefj­andi. „Ég hef þó engar athuga­semdir við það að fólk stundi nám með þing­störfum, ef það treystir sér til, og svo fram­ar­lega sem það sinnir sinni vinnu eins og til er ætl­ast.“

Enginn hneykslast á líkamsrækt eða fjölskyldulífi

Í sama streng taka fleiri þing­menn, sem telja ekk­ert athuga­vert við að stunda nám eins og önnur áhuga­mál.

Guð­mundur Stein­gríms­son þing­maður Bjartrar fram­tíðar seg­ist hafa haft meist­ara­nám sitt í hag­fræði „á pásu“ síðan hann var kjör­inn á þing. Hins vegar geti nám og þing­störf farið vel saman ef fólk er skipu­lagt. „Ég held að það sé mjög af hinu góða ef þing­menn sækja sér fróð­leik og menntun sam­hliða þing­störfum, svo lengi sem það bitnar ekki á þing­stör­f­unum. Held raunar að nám geti fremur bætt þau.“

Stein­grímur J. Sig­fús­son þing­maður VG segir að þing­mennska hafi reynst honum fullt starf. „En með því er ég ekki að for­dæma að aðrir þing­menn noti lausar stundir, ef þeir finna þær ein­hverjar, til að auka við menntun sína.“

Helgi Hrafn Gunn­ars­son þing­maður Pírata seg­ist leggja eins mikla stund á óform­legt nám og hann geti þótt hann sé ekki í neinu form­legu námi. „Þing­störf fara almennt illa með öllu,“ segir hann um það hvort nám og þing­störf fari saman. Þó megi haga form­legu og óform­legu námi með mjög sveigj­an­legum hætti og því sé ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að fólk stundi nám með­fram þing­störfum. „Enginn virð­ist hneyksl­ast á því að þing­menn geti stundað lík­ams­rækt, áhuga­mál eða fjöl­skyldu­líf með­fram þing­störfum og því átta ég mig ekki alveg á því hvers vegna fólk er hneykslað yfir námi með­fram þing­störfum, sér­stak­lega vegna þess að nám er ekki tíma­sóun heldur þekk­ingaröflun sem ég hefði haldið að myndi hjálpa til við þing­störfin heldur en hitt. Það eru mörg vanda­mál á Alþingi, en það að þing­menn eyði of miklum tíma í að leita sér þekk­ingar er ekki eitt af þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár