Hanna Birna: Stjórnmál verða að breytast og við verðum að breytast

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vara­for­maður flokks­ins og fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, hélt sína fyrstu ræðu á þing­inu í dag eftir að hún snéri til baka úr leyfi í síð­asta mán­uði.

Hanna Birna hélt ræðu undir liðnum störf þings­ins, eftir að Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, spurði um álit hennar á því sem er að ger­ast í þing­inu, þar sem deilt hefur verið um ramma­á­ætlun og margt fleira und­an­farna daga. Birgitta sagð­ist vilja vita álit vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þing­manns­ins Hönnu Birnu. Það væri mik­il­vægt, og hún vissi til þess að Hanna Birna hefði verið mik­ill tals­maður sam­vinnu­stjórn­mála þegar hún var í borg­ar­stjórn.

„Hvað varðar afstöðu mína til þess sem er að ger­ast á þing­inu núna þá held ég að ég sé á sama stað og við öll sem sitjum í þessum sal. Ég verð að við­ur­kenna það, ég hef ekki setið áður sem óbreyttur þing­maður og ég er hálf miður mín yfir því að upp­lifa það sem ég upp­lifi hér á hverjum ein­asta degi,“ sagði Hanna Birna. Hún sagð­ist telja vanda­málið miklu stærra en þetta eina mál, ramma­á­ætlun, sem nú hefðu farið margir dagar í að ræða. Ramma­á­ætlun end­ur­spegl­aði ákveðna átaka­menn­ingu, sem yrði að hverfa. „Stjórn­málin verða að breyt­ast, og þau breyt­ast ekki nema við breyt­umst hér.“

Hún sagð­ist hafa talað fyrir breyttum stjórn­málum í mörg ár, en gæti við­ur­kennt það að „vonir mínar og vænt­ingar til þess að ná árangri í þeirri bar­áttu, þær hafa ekki auk­ist að und­an­förnu.“ Hún hefði rekið sig á að „raun­veru­leik­inn er flókn­ari en draum­ur­inn um það að gera hlut­ina öðru­vísi.“ Til þess að breyta menn­ing­unni á þing­inu verði eitt­hvað að breyt­ast í hugs­un­ar­hætti þing­manna. Það væri ekki við meiri­hluta eða minni­hluta að sakast, heldur alla. „Þess vegna stöndum við frammi fyrir þeirri stað­reynd, ágætu félagar, að þjóðin skilur ekki þingið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár