Frændurnir í lykilhlutverkum – Peningastefnan endurskoðuð

Ný rík­is­stjórn hyggst koma marg­vís­legum breyt­ingum á gegnum, en nýr stjórn­ar­sátt­máli verður kynntur í dag.

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar er nú að mynd­ast eftir að þing­flokkar og trún­að­ar­menn Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins sam­þykktu stjórn­ar­sátt­mála flokk­ana í gær­kvöldi. Eftir stjórn­ar­kreppu síð­ustu mán­aða, frá kjör­degi 29. októ­ber, sér nú loks til lands við myndun nýrrar rík­is­stjórnar.

Frænd­urnir Bjarni og Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, verða í lyk­il­hlut­verkum í stjórn­inni. Bjarni verður for­sæt­is­ráð­herra en Benedikt fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Reiknað er með því að til­kynnt verði um aðra ráð­herra­skipan í dag og stjórn­ar­sátt­mál­ann sjálfan sömu­leiðis.

Fyrsta til­raun þess­ara flokka til að mynda rík­is­stjórn gekk ekki upp. Það sama átti við um tvær til­raunir flokk­anna fimm, Vinstri grænna, Pírata, Bjartrar fram­tíðar, Við­reisnar og Sam­fylk­ing­ar­innar, en þær fóru út um þúfur.

Við erum HAM!

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar og söngv­ari í hinni goð­sagn­ar­kenndu þung­arokks­sveit HAM, leiddi við­ræð­urnar fyrir hönd Bjartrar fram­tíðar

Eins og við­ræð­urnar hafa verið til þessa, þá er gert ráð fyrir að Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn fái, auk for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, inn­an­rík­is­ráðu­neytið, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið, ut­an­rík­is­ráðu­neytið og ráð­herra iðn­aðar- og við­skipta­mála í at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Fastlega má búast við því að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þing­maður um ára­bil, verði ráð­herra í rík­is­stjórn­inni, sem og Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Auk efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins fær Viðreisn ráð­herra sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­aðar­mála í at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, og ráðu­neyti fé­lags- og hús­næð­is­mála í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu. Björt fram­tíð mun hins veg­ar skipa ráð­herra heil­brigð­is­mála í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu ásamt um­hverf­is- og auð­linda­ráðu­neyti.

Greint var frá þess­ari skipan í Morg­un­blað­inu í gær, en und­an­farnar vikur hafa flokk­arnir rætt það sína á milli hvernig verka­skipt­ingin skuli vera við rík­is­stjórn­ar­borðið.

Meiri­hluti flokk­anna mun í reynd hanga á blá­þræði frá fyrsta degi þar sem flokk­arnir eru með 32 þing­menn af 63, eða aðeins eins manns meiri­hluta í þing­inu. Mikið mun því reyna á trúnað og sam­heldni í sam­starf­inu. Sjálf­stæð­is­flokkur er með 21 þing­mann, Viðreisn sjö og Björt fram­tíð fjóra.

Peningastefnan, jafnlaunavottun og sjávarútvegur

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans kemur fram í stjórn­ar­sátt­mála flokk­anna að pen­inga­stefnan verði end­ur­skoðuð og nið­ur­staða í þeirri vinnu liggi fyrir innan árs. Þá verða búvöru­samn­ingar end­ur­skoð­aðir og miðað við að það verði gert á næstu tveimur árum, eða fyrir lok árs 2019.

Þá stefnir rík­is­stjórnin að jafn­launa­vottun og verður hún lög­fest, og miðað þar við fyr­ir­tæki með 25 starfs­menn og fleiri. Í því felst rót­tækt breyt­ing sem á að miða að því að jafna út óút­skýrðan launa­mun kynj­anna á vinnu­mark­aði.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans verður unnið að því að koma á náms­styrkja­kerfi að nor­rænni fyr­ir­mynd. Þá verður horft til þess að breyta sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu. Í stað ótíma­bund­ins af­nota­rétt­ar auð­lind­ar­innar verður skoðað að taka upp leigu á afla­heim­ild­um til langs tíma, og þá horft til þess að afkomu­tengja breyt­ing­una eins og frekast er unnt, til að tryggja stöðugra rekstr­ar­um­hverfi.

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum er síðan gert ráð fyrir að þingið muni ráða því hvort aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið eigi að halda áfram, og verður þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis lögð fram á síð­ari hluta kjör­tíma­bils­ins.

Frekar upp­lýs­ingar um stjórn­ar­sátt­mál­ann munu koma fram í dag, eins og áður segir, og munu þær birt­ast hér á vef Kjarnans jafn óðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár