Tíu staðreyndir um ferðamenn á Íslandi

1. Árið 1950 komu 4.400 ferða­menn til Íslands. Árið 1960 voru þeir 12.800, árið 1970 voru þeir 60.000 og tíu árum síðar, 1980 var fjöld­inn 65.000, en þeim hafði þá fækkað um 14 pró­sent frá árinu áður. Fjöldi ferða­manna meira en tvö­fald­að­ist á milli næstu tíu ára, sam­kvæmt tölum Ferða­mála­stofu, en árið 1990 komu yfir 140.000 ferða­menn til lands­ins. Og þannig varð þró­unin. Árið 2000 komu yfir 300.000 ferða­menn, árið 2010 voru þeir tæp­lega 500.000 og fimm árum síðar, 2015, kom ein milljón og 300.000 manns til að ferð­ast um Ísland.

2. Hver erlendur ferða­maður eyðir að með­al­tali 160.000 krónum á dvöl sinni á Íslandi. Á síð­asta ári nam eyðsla allra ferða­manna hér um 210 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar nam eyðslan tæpum 70 millj­örðum árið 2010 og hefur hún því þre­fald­ast á fimm árum. Erlend korta­velta jókst um 72 pró­sent á milli áranna 2012 og 2015.

3. Alls var 1.831 gisti­staður með leyfi frá sýslu­manni árið 2015 og þar af voru 480 með veit­inga­leyfi. Flest voru leyfin fyrir gisti­stöðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Norð­ur­landi, eða 465 á hvoru svæði. 303 gisti­staðir voru á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum, 318 á Suð­ur­landi, 205 á Aust­ur­landi og 75 á Suð­ur­nesjum, sam­kvæmt tölum Ferða­mála­stofu.

Fjöldi íbúða og her­bergja á vef Air­bn­b.com á Íslandi tvö­fald­að­ist á milli áranna 2014 og 2015. Í jan­úar síð­ast­liðnum voru 3.903 aug­lýs­ingar fyrir íslensk gisti­rými og gera má fast­lega ráð fyrir að þau séu komin yfir 4.000 í dag. Fjöldinn jókst um 124 pró­sent á milli ára, en í jan­úar 2015 voru rúm­lega 1.700 aug­lýs­ingar á AirBnB. Fjöldi hót­el­her­bergja hefur ekki auk­ist jafn hratt og AirBnB, þó að það rísi hér nú hótel nán­ast mán­að­ar­lega. Í fyrra opn­aði til dæmis stærsta hótel lands­ins, Foss­hótel í Þór­unn­ar­túni, með 320 her­bergi. Hilton Canopy Hotel hefur opnað í gamla Hjarta­garð­inum með 142 her­bergi. Fleiri stórar hót­el­bygg­ingar eru áætl­að­ar. Á reitnum vestan við Hörpu á til dæmis að byggja 250 her­bergja Marriot-hótel sem á að opna árið 2019.

4. Velta í virð­is­auka­skyldri starf­semi hefur auk­ist um 272 millj­arða króna á síð­ustu tólf mán­uð­um. Frá byrjun maí til apr­íll­oka 2015 til 2016 var hún tæpir fjórir millj­arðar króna. Ferða­þjón­usta og breyt­ingar á lögum um virð­is­auka­skatt eru meg­in­á­stæður aukn­ing­ar­innar. Virð­is­auka­skatt­skyld velta í rekstri gisti­staða og veit­inga­rekstri jókst um 23 pró­sent á milli ára, í flokknum sem far­þega­flutn­ingar heyra undir jókst veltan um 17 pró­sent og í flokknum sem þjón­usta ferða­skrif­stofa heyrir undir jókst hún um 39 pró­sent. Fjöldi ferða­manna hefur líka marg­fald­ast. Auknar tekjur rík­is­ins vegna þessa hlaupa á tugum millj­arða.

5. Heild­ar­fjöldi gistin­átta hefur meira en tvö­fald­ast á síð­ustu fimm árum. Árið 2010 var fjöldi gistin­átta hjá útlend­ingum 2.144 en 2015 var hann kom­inn upp í 5.606. Fjöldi gistin­átta meðal Íslend­inga hefur að sama skapi auk­ist, en þó ekki eins mikið. Þær voru 855 árið 2010 og í fyrra voru þær 931, sem er fækkun frá árinu 2014 þegar þær voru 1.085. Rúmur helm­ingur gistinótta árið 2015 voru að sum­ar­lagi, fjórð­ungur að vori eða hausti og tæpur fjórð­ungur að vetri til.

6. Þotur á vegum 18 erlendra flug­fé­laga flugu reglu­lega til og frá land­inu í júní. Þrátt fyrir það stóðu íslensku flug­fé­lögin WOW Air og Icelandair undir nærri átta af hverjum tíu ferðum, er fram kemur á vef Túrista.

7. Síðasta haust voru skráðir bíla­leigu­bílar á land­inu í kring um 18.000 og hafði fjöld­inn fimm­fald­ast á síð­ustu tíu árum. Árið 2005 voru tæp­lega 3.900 bíla­leigu­bílar skráðir á land­inu. Erlendir ferða­menn greiddu 1,1 millj­arð í bíla­leigur og bensín í apríl 2014.

8. Um 97 pró­sent erlendra ferða­manna koma hingað til lands í gegn um Leifs­stöð. Hin þrjú pró­sentin koma hingað í gegn um aðra flug­velli eða með skipum, til dæmis Norrænu. Í fyrra fóru tæp­lega 1,3 milljón erlendra ferða­manna í gegn um Leifs­stöð.

9. Samkvæmt tölum Ferða­mála­stofu eru lang­flestir annað hvort Bretar eða Banda­ríkja­menn. Fleiri Bretar koma hingað í jan­úar og Banda­ríkja­menn um sum­arið. Ferða­mála­stofa heldur utan um 17 þjóð­erni ferða­manna og eru þau flokkuð eftir fjölda. Banda­ríkja­menn eru í fyrsta sæti, svo Bretar, Danir eru í þriðja sæti, svo eru það Finnar, Frakkar, Hol­lend­ingar, Ítalir, Japanir, Kana­da­búar, Kín­verjar, Norðmenn, Spán­verjar, Sviss­lend­ingar og Þjóð­verjar. Önnur þjóð­erni eru flokkuð undir „Annað“ og er það langstærsti flokk­ur­inn, með um 30 pró­senta hlut­deild.

10. 85 pró­sent Íslend­inga ferð­uð­ust inn­an­lands í fyrra og voru júlí og ágúst langstærstu ferða­mán­uð­irnir. Rúmlega 70 pró­sent fóru til útlanda á árinu. Þetta eru nið­ur­stöður könn­unar sem Ferða­mála­stofa lét gera í byrjun þessa árs. Þar kom einnig fram að 90 pró­sent aðspurðra höfðu áform um ferða­lög í ár, 2016. Helm­ingur ætl­aði í sum­ar­bú­staða­ferð inn­an­lands og um 42 pró­sent í borg­ar­ferð erlendis. Tæp 30 pró­sent ætl­uðu í sól­ar­landa­ferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár