Fjöldi Airbnb-íbúða tvöfaldaðist síðastliðið ár

Tæplega 4.000 íslenskar aug­lýs­ingar má nú finna á Airbnb.com. Það er tæp­lega 400 aug­lýs­ingum meira en í októ­ber 2015.

Þrátt fyrir aukin fjölda gistirýma á Íslandi hefur nýting hótelherbergja aukist og jafnast yfir árið.
Þrátt fyrir aukin fjölda gisti­rýma á Íslandi hefur nýt­ing hót­el­her­bergja auk­ist og jafn­ast yfir árið. Mynd: Birgir Þór

Fjöldi her­bergja sem aug­lýst eru til leigu á Íslandi á vef Airbnb.com hefur tvö­fald­ast á und­an­förnu ári. Í svari Airbnb-leigu­vefs­ins til Túrista.is segir að nú sé þar að finna 3.903 aug­lýs­ingar fyrir íslensk gisti­rými. Sam­an­borið við sama tíma í fyrra þá er um að ræða 124 pró­sent aukn­ingu en þá voru aug­lýs­ing­arnar rúm­lega 1.700. Mikil aukn­ing hefur orðið í vetur því í októ­ber voru aug­lýs­ing­arnar aðeins 3.547 á vef Airbnb.

Fjöldi hót­el­her­bergja hefur einnig auk­ist en þó ekki eins hratt. Á síð­asta ári opn­aði til dæmis stærsta hótel lands­ins, Foss­hótel í Þór­unn­ar­túni en þar eru 320 her­bergi. Alls bjóst Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri, við að um 800 hót­el­her­bergi yrðu tekin í notkun á árinu 2015. Þá standa enn yfir fram­kvæmdir við nokkur stór hótel í mið­borg Reykja­víkur. Þar má til dæmis nefna Icelandair Hotel á Hljóma­lind­ar­reitnum svo­kall­aða þar sem verða 142 her­bergi. Fleiri stórar hót­el­bygg­ingar eru áætl­aðar. Á reitnum vestan við Hörpu á til dæmis að byggja 250 her­bergja Marriot-hótel sem á að opna árið 2019.

Þrátt fyrir þessa miklu aukn­ingu á fram­boði hót­el­her­bergja benda hag­tölur hins vegar til þess að nýt­ing þeirra sé að aukast. Á árunum 2010 til 2014 óx fram­boð hót­el­her­bergja um 28 pró­sent miðað við 111 pró­sent aukn­ingu ferða­manna sem komu hingað til lands. Nýt­ing­ingin er einnig að verða jafn­ari yfir árið, sam­kvæmt umfjöllun Grein­ing­ar­deildar Arion banka síðan í ágúst í fyrra.

Kannanir sýna að ekki er rétt að bera saman fjölda aug­lýs­inga á Airbnb og fjölda hót­el­her­bergja. Nýting hót­el­her­bergja er mun meiri en gisti­rýma á gist­inga­vefjum á borð við Airbnb sem eru jafn­vel í útlegu aðeins fáeina daga á ári. Í Danmörku hefur Airbnb til dæmis kom­ist að því að hver gisti­kostur er aðeins í boði í um 22 daga á ári. Þá eru leigu­mögu­leik­arnir ekki endi­lega sam­bæri­legir; á Airbnb má finna heilar íbúðir, sum­ar­hús eða stök her­bergi til leigu.

Engar sér­stakar reglur gilda um Airbnb-íbúðir og her­bergi á Íslandi en frum­varp til laga um þessa gerð ferða­þjón­ustu hefur verið í und­ir­bún­ingi í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu síð­ustu miss­eri og er búist við að það verði lagt fram á Alþingi á yfir­stand­andi þingi. Í skýrslu sem gerð var fyrir ráðu­neytið um deili­hag­kerfi um gisti­rými kemur fram að tæp­lega 90 pró­sent allra þeirra sem leigja út íbúðir eða her­bergi í Reykja­vík geri það án til­skil­inna leyfa. Tekjutap Reykja­vík­ur­borgar vegna þessa hleypur á um 600 millj­ónum króna því sam­kvæmt lögum þarf að greiða átt­föld fast­eigna­gjöld af heimagist­ingum.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, hefur áður lagt fram frum­varp um breyt­ingar á lögum sem varða gisti­þjón­ustur á borð við þá sem veitt er á Airbnb.com. Það frum­varp náði ekki fram að ganga en þar var lagt til að heimagist­ingar yrðu flokk­aðar öðru­vísi og leyf­is­veit­ingar ein­fald­aðar svo fólk geti leigt eignir sínar í allt að átta vikur án þess að afla við­ur­kenn­ingar frá stjórn­völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár