Virðisaukaskattur á ferðaþjónustu eykur tekjur ríkisins um milljarða

Velta í virð­is­auka­skyldri starf­semi hefur auk­ist um 272 millj­arða króna á síð­ustu tólf mán­uðum. Frá byrjun maí til apr­íll­oka 2014-2015 var hún 3.615 millj­arðar króna en á sama tím­an­bili 2015-2016 var veltan orðin 3.887 millj­arðar króna. Frá þessu er greint í nýjum tölum Hagstofu Íslands. Ljóst er að auknar tekjur rík­is­ins vegna þessa hlaupa á tugum millj­arða króna.

Tvær meg­in­á­stæður eru fyrir aukn­ing­unni. Í fyrsta lagi tóku breyt­ingar á lögum um virð­is­auka­skatt gildi um síð­ustu ára­mót og nokkrar atvinnu­greinar sem áður voru und­an­þegnar virð­is­auka­skatti gerðar skatt­skyldar. Þar ber helst að nefna far­þega­flutn­inga aðra en áætl­un­ar­flutn­inga og þjón­usta ferða­skrif­stofa. Í öðru lagi hafa umsvif þess­ara atvinnu­greina auk­ist mikið und­an­farin ár.

Skatt­þrepin i virð­is­auka­skatti eru tvö, ell­efu pró­sent og 24 pró­sent. Ferða­þjón­ustan dreif­ist á bæði skatt­þrepin eftir eðli. Útleiga á hótel- og gisti­her­bergjum og fólks­flutn­ingar er þannig í lægra skatt­þrep­inu og það er sala veit­inga­húsa á til­reiddum mat líka, þar með talin sala áfengis og áfengra drykkja. Velta vegna fólks­flutn­inga á milli landa eru hins vegar und­an­þegin virð­is­auka­skatti en þóknun ferða­skrif­stofa, ferða­skipu­leggj­enda og ferða­fé­laga fellur undir hærra skatt­þrepið.

Virð­is­auka­skatt­skyld velta í rekstri gisti­staða og veit­inga­rekstri jókst um 23 pró­sent á milli ára, í flokknum sem far­þega­flutn­ingar heyra undir jókst veltan um 17 pró­sent og í flokknum sem þjón­usta ferða­skrif­stofa heyrir undir jókst hún um 39 pró­sent.

Fjöldi ferða­manna sem heim­sækir Ísland ár hvert hefur auk­ist gríð­ar­lega hratt á und­an­förnum árum. Árið 2010 var heild­ar­fjöldi erlendra gesta 489 þús­und en í fyrra var hann 1.289 þús­und. Spár gera ráð fyrir að fjölgun þeirra haldi áfram og að þeir verði rúm­lega 1,6 millj­ónir í ár. Verði það raunin liggur fyrir að fjöldi ferða­manna sem heim­sækir Ísland hafi rúm­lega þre­fald­ast á sjö árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár