Alhliða rafvæðing möguleg í Noregi innan ársins 2050

Noregur gæti orðið fyrsta raf­vædda landið í heimi innan þriggja ára­tuga, sam­kvæmt nýrri skýrslu Orku­veitu Noregs.

Lofoten í Noregi.
Lofoten í Noregi. Mynd: Pexels

Noregur gæti raf­vætt allt sam­fé­lagið sitt á næstu þrjá­tíu árum, fyrst allra landa, sam­kvæmt nýrri skýrslu Norsku orku­veit­unnar. Frétta­stofan NRK greindi fyrst frá.

Í skýrslu sem Norska orku­veitan (Energi Norge) afhenti umhverf­is­ráð­herra lands­ins í dag segir að tvær af stærstu áskor­unum sem landið standi frammi fyrir séu lofts­lags­breyt­ingar og færri störf í olíu­geir­anum. Að sögn Oluf Ulseth, fram­kvæmda­stjóra Norsku orku­veit­unnar, er aukin áhersla á end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa lausn við báðum vanda­mál­unum.

„Okkar mark­mið er að Noregur, með áherslu á vatns­afls­virkjun og betra sam­ráðs milli atvinnu­lífs og stjórn­valda, muni verða heims­ins fyrsta raf­vædda sam­fé­lag innan árs­ins 2050. Á þann hátt getum við styrkt leið­toga­hlut­verk okkar í lofts­lags­málum og sam­keppn­is­hæfni á sama tíma,“ segir Ulseth.

Samkvæmt frétt NRK kemur 96% allrar raf­orku­fram­leiðslu frá vatns­afls­virkj­unum í Noregi. Þar að auki er stór hluti hús­hit­unar raf­væddur og hlut­fall raf­bíla af bíla­flota lands­ins það hæsta í heimi. Ulseth segir góða stöðu Noregs gefa orku­veit­unni ein­stakan grunn til þess að raf­væða aðra þætti sam­fé­lags­ins og skrúfa þannig fyrir útblástur jarð­efna­elds­neytis.

110.000 raf­bílar eru skráðir í Noregi núna, en norska þingið hefur sam­þykkt frum­varp þess efnis að einka­bílar knúnir áfram af sprengi­hreyfli muni ekki vera seldir eftir árið 2025. Samkvæmt Ulseth mun raf­væð­ing lands­ins krefj­ast stórra breyt­inga innan alls sam­göngu­kerf­is­ins auk olíu-og jarð­gas­geirans.

Samkvæmt skýrsl­unni mun átakið færa Noreg í átt að sjálf­bær­ari orku­gjöfum, en landið er 15. stærsti olíu­fram­leið­andi heims. Olíu­fram­leiðsla lands­ins náði 1,64 milljón tunna á dag í fyrra, en til sam­an­burðar var fram­leiðsla fursta­rík­is­ins Katar 1,52 milljón olíu­tunna á dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár