Konur í Sádi-Arabíu undirbúa sig undir að mega taka þátt í kosningum í fyrsta sinn

Konur í Sádí-Arabíu munu fá að kjósa og bjóða sig fram til kosn­inga í fyrsta sinn í des­em­ber næst­kom­andi. Þá fara fram sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í land­inu. Kjós­endur þurfa að skrá sig til að kom­ast á kjör­skrána, og skrán­ingin hófst víð­ast hvar í gær.

Tvær konur, þær Safinaz Abu al-Shamat og Jamal al-Saadi, urðu fyrstar kvenna í sögu rík­is­ins til þess að kom­ast inn á kjör­skrána. Þetta gerð­ist reyndar um síð­ustu helgi, en skrán­ing hófst þá í Mekka og Medínu.

Búist er við því að um 70 konur muni bjóða sig fram í kosn­ing­unum, og að um 80 konur til við­bótar muni skrá sig sem kosn­inga­stjóra. Hvorki karlar né konur munu mega nota myndir af sér til að aug­lýsa sig. Á kjör­dag verða svo aðskildir kjör­staðir fyrir kynin.

Kosn­inga­réttur kvenna hefur lengi verið bar­áttu­mál í þessu mjög íhalds­sama ríki, þar sem konum er enn bannað að keyra og þar sem kerfið geri ráð fyrir því að þær séu undir for­sjá karla, og þurfi leyfi slíks ef þær vilja fara í háskóla, vinna, ferð­ast, höfða mál á hendur ein­hverjum og í ein­hverjum til­vikum einnig ef þær þurfa að gang­ast undir lækn­is­hendur.

Þátttaka kvenna í kosn­ingum er því mik­il­vægt skref í átt að auk­inni sam­fé­lags­þátt­töku kvenna, að mati Nouf al-Sadiq, meist­ara­nema í Mið­aust­ur­landa­fræðum við George Washington háskól­ann. Hún telur það einnig mik­il­vægt skref í átt að hóf­sam­ara sam­fé­lagi. Fawzia Abu Khalid, stjórn­mála­fé­lags­fræð­ingur við King Saud háskóla, segir svo við Al Jazeera að sú ákvörðun að heim­ila konum að kjósa end­ur­spegli víð­tæk­ari breyt­ingar sem muni verða á sam­fé­lag­inu.

Þó benda aðrir á að kynja­mis­rétti sé svo inn­gróið í rík­inu að það þurfi alls­herj­ar­yf­ir­haln­ingu til þess að raun­veru­legar breyt­ingar verði. Þrátt fyrir þennan kosn­inga­rétt og kjör­gengi í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum verði sýni­leiki kvenna og völd lítil. Sveita­stjórnir hafi lítil völd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár