Ráðþrota gagnvart flóttamannavandanum

Evr­ópu­sam­bands­ríkin standa ráð­þrota frammi fyrir flótta­manna­straumnum frá Afríku og löndum fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs og tókst ekki að ná sam­komu­lagi um aðgerðir á átaka­fundi í Brussel fyrir helgi. Angela Merkel kansl­ari Þýska­lands segir þetta erf­ið­asta úrlausn­ar­efni sem hún hafi staðið frammi fyrir síðan hún tók við kansl­ara­emb­ætt­inu fyrir tíu árum. Vandi ESB-ríkj­anna virð­ist þó lít­ill sam­an­borið við Tyrkland en þar eru nú um þrjár millj­ónir flótta­fólks.

Í maí lagði Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins það til, með óform­legum hætti að aðild­ar­ríki ESB myndu taka á móti 20 þús­und manns sem dvelja í flótta­manna­búðum Sam­ein­uðu Þjóðanna utan Evrópu og að ESB ríkin myndu jafn­framt skuld­binda sig til að taka á móti, eftir eins konar kvóta­kerfi, þeim 40 þús­und flótta­mönnum frá Sýrlandi og Eritreu sem haf­ast við á Ítalíu og í Grikk­landi. Þessi óform­lega til­laga Fram­kvæmda­stjórn­ar­innar féll í grýttan jarð­veg, full­trúar marga aðild­ar­ríkja ESB höfðu í apríl, þegar hug­myndin var fyrst rædd, sagt að ekki kæmi til greina að fall­ast á slíkt fyr­ir­komu­lag. Löndin yrðu að sjálf að ráða hve mörgu fólki þau gætu, og vildu, taka á móti.

Átakafundur


Fram­kvæmda­stjórnin sat þó við sinn keip og til­lagan var rædd á fundi leið­toga Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna á fundi sem hald­inn var í Brussel á fimmtu­dag­inn og stóð fram á nótt. Þótt þjóð­ar­leið­tog­arnir séu alla jafna orð­varir og gæti fyllstu kurt­eisi i sam­skiptum sínum var þó annað upp á ten­ingnum að þessu sinni. Hörð orð voru látin falla og meðal ann­ars hafði ítalski for­sæt­is­ráð­herr­ann Matteo Rensi harð­lega gagn­rýnt það sam­stöðu­leysi sem ein­kenndi fund­inn og spurði hvort þetta væri sú Evrópa sem alla dreymdi um. „Hver höndin upp á móti annarri og hver og einn hugsar bara um sig,“ sagði ítalski for­sæt­is­ráð­herr­ann og var heitt í hamsi. Aðrir lýstu óánægju sinni með að fram­kvæmda­stjórnin kæmi fram með til­lögu sem vitað væri að ekki yrði sam­þykkt. Meðal þeirra landa sem ekki vildu fall­ast á að taka á móti til­teknum fjölda flótta­fólks (kvóta­kerfi) voru Bretland, Tékkland, Litháen og Spánn. Í hópi þeirra sem gjarna vildu slíka skuld­bind­ingu voru Ítalía, Svíþjóð, Aust­ur­ríki, Belgía og Holland. Danir eru með fyr­ir­vara varð­andi mál flótta­fólks og taka því ekki afstöðu í málum af þessu tagi.

Hvert land fyrir sig ákveður fjöldann


Nið­ur­staða fund­ar­ins varð sú að hvert land fyrir sig ákveður fjölda þess flótta­fólks sem tekið verður á móti. Leið­tog­arnir sam­þykktu að þeir 40 þús­und flótta­menn (hæl­is­leit­endur) sem nú eru á Ítalíu og í Grikk­landi ásamt 20 þús­und manns sem dvelja í flótta­manna­búðum Sam­ein­uðu þjóð­anna fái leyfi til að setj­ast að í löndum Evr­ópu­sam­bands­ins en nán­ari útfærsla var ekki ákveðin. Þetta á að ger­ast á næstu tveimur árum. Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar­innar, kall­aði þessa nið­ur­stöðu „tak­mark­aðan árangur“ þegar hann ræddi við frétta­menn eftir fund­inn.

Ungverjar hafa í hótunum


Fyrr í vik­unni hót­uðu Ung­verjar að hætta skrán­ingu flótta­fólks sem þangað kæmi en þeir myndu ein­fald­lega senda það áfram til ann­arra Evr­ópu­landa. Þegar þessar fréttir bár­ust reidd­ust Aust­ur­rík­is­menn og hót­uðu að þeir myndu þá gera slíkt hið sama. Ung­verjar til­kynntu þá að þeir sem ESB ríki myndu í einu og öllu fylgja reglum Evr­ópu­sam­bands­ins en greindu hins­vegar frá því að þeir myndu reisa fjög­urra metra háan vegg á landa­mær­unum að Serbíu.„Við getum ekki beðið eftir að Evr­ópu­sam­bandið finni lausnir“ sagði ung­verski utan­ríksi­ráð­herr­ann Péter Szijjártó þegar hann til­kynnti þessa ákvörðun. Frakkar hafa lokað landa­mærum sínum að Ítalíu, þeir saka Ítali um að senda flótta­fólk til Frakk­lands án þess að skrá það eins og reglur ESB gera ráð fyrir.

ESB frétta­maður Danska útvarps­ins sagði í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske að sann­leik­ur­inn væri sá að leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins vissu ekki sitt rjúk­andi ráð og stæðu nán­ast ráð­þrota frammi fyrir vand­anum. Það segði allt um ástandið að Angela Merkel Þýska­landskansl­ari hefði sagt við frétta­menn að þetta verk­efni væri það erf­ið­asta sem hún hafi staðið frammi fyrir á þeim tíu árum sem hún hefur gegnt kansl­ara­emb­ætt­inu. „Erfiðara en efna­hag­skreppan“ spurði þýskur frétta­maður. „Miklu erf­ið­ara“ var svar kanslar­ans.

Þrjár milljónir flóttafólks í Tyrklandi


Flótta­manna­vandi Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna bliknar þó í sam­an­burði við Tyrkland. Skrif­stofu­stjóri í tyrk­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu sem var í Kaup­manna­höfn fyrir nokkrum dögum sagði frétta­mönnum að í Tyrk­landi væru tvær millj­ónir flótta­fólks frá Sýrlandi og mörg hund­ruð þús­und til við­bótar frá Írak, Afganistan og fleiri löndum. Samtals um þrjár millj­ónir.

„Við erum í stand­andi vand­ræðum og vitum ekk­ert hvað við eigum að gera og getum gert“ sagði skrif­stofu­stjór­inn. Hann full­yrti að kostn­aður Tyrkja vegna flótta­fólks­ins næmi 42 millj­örðum danskra króna (833 millj­örðum íslenskum) og sú aðstoð sem Tyrkir hafa fengið frá öðrum ríkjum næmi aðeins fimm til sex pró­sentum af þeim kostn­aði. „Við Tyrkir viljum auð­vitað gera allt sem við getum fyrir þetta fólk, sem leitar hingað en getum ekki einir og óstuddir tek­ist á við þetta gríð­ar­mikla verk­efni“ sagði skrif­stofu­stjór­inn. Hann benti jafn­framt á að rík­is­stjórnir í Evrópu hefðu mörg orð um nauð­syn þess að flótta­fólk dvelji sem næst heima­land­inu og auk þess sé það ódýr­ara.

„Þetta er gott og blessað en þá þurfa líka þær þjóðir sem fjær búa að aðstoða þær þjóðir sem tak­ist á hendur það erf­iða hlut­verk að skjóta skjóls­húsi yfir flótta­fólkið. Það hefur bara ekki gerst, við sitjum uppi með vand­ann“ sagði tyrk­neski skrif­stofu­stjór­inn. Hann benti líka á að í Sýrlandi hefðu um sjö millj­ónir fólks, fyrir utan þá sem hafa flúið land, hrak­ist frá heim­ilum sínum og væri á ver­gangi. Ekki væri ósenni­legt að stór hluti þessa hóps myndi reyna að kom­ast til Tyrk­lands. „Slíkt yrði okkur Tyrkjum algjör­lega ofviða“ sagði skrif­stofu­stjór­inn og bætti við „Því miður hillir ekki undir neina lausn í Sýrlandi og við Tyrkir getum ekki annað en biðlað til ann­arra ríkja um aðstoð. Öðruvísi getum við ekki risið undir ábyrgð­inni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár