Hvalár­foss Er ein af þeim nátt­úruperlum sem munu hverfa verði af virkj­un­ar­fram­kvæmdum

Ýktur ávinningur af virkjun: „Það þarf að fórna einhverju“

Fram­kvæmdir við virkjun Hvalár á Ófeigs­fjarð­ar­heiði hefj­ast innan skamms. Með bygg­ingu virkj­un­ar­innar verður raskað ósnortnu landi, „sem eng­inn er að skoða“ að mati sveit­ar­stjór­ans í Árnes­hreppi, Evu Sig­ur­björns­dóttur. Íbúar á svæð­inu, Umhverf­is­stofnun og for­maður Land­verndar hafa hins vegar gagn­rýnt þau rök sem færð eru fyrir fram­kvæmd­unum, sem og að áhrif þeirra á umhverfið séu virt að vettugi.

Að óbreyttu mun fram­kvæmdir sem miða að virkjun Hvalár í Ófeigs­firði á Ströndum hefj­ast innan skamms. Helstu rökin sem færð eru fyrir því að þarna skuli rísa virkjun eru að ork­una megi nýta við upp­bygg­ingu atvinnu­starf­semi og tryggja öryggi raf­orku­dreif­ingar á Vest­fjörðum. Auk þessa standa vonir til þess að vega­fram­kvæmdir í tengslum við upp­bygg­ingu virkj­un­ar­innar muni bæta sam­göngur á svæð­inu. Einnig myndu fast­eigna­gjöld vegna þeirra mann­virkja sem rísa koma fámennri byggð á svæð­inu vel.

Ekki eru þó allir sann­færðir um ágæti þess­ara áforma. Snorri Bald­urs­son, for­maður Land­verndar, skrif­aði nýverið tveir greinar í Kjarnann þar sem hann gagn­rýndi harð­lega þær rök­semdir sem færðar eru fyrir fram­kvæmd­unum. Þar bendir hann á að fyrir lá að virkj­unin sé ein­ungis arð­bær kostur fyrir einka­að­ila vegna þess að iðn­að­ar­ráð­herra hefur ákveðið að nið­ur­greiða skuli flutn­ing raf­orku.

„Ekki er ljóst  nú til hvaða atvinnu­starf­semi orkan verður einkum seld.“

Áætluð stærð virkj­un­ar­innar er 55 MW. Í mats­skýrslu sem verk­fræði­stofan Ver­kís gerði fyrir Vest­ur­verk, sem mun sjá um fram­kvæmdir, er til­gang­ur­inn „að virkja rennsli ánna Hvalár, Rjúkanda og Eyvind­ar­fjarð­arár til að fram­leiða orku til nota við upp­bygg­ingu atvinnu­starf­semi sem nýtir orku við fram­leiðslu.“ Síðar í sömu skýrslu segir hins vegar: „Ekki er ljóst nú til hvaða atvinnu­starf­semi orkan verður einkum seld.“

Leysir fortíðarvandann um raforkuöryggi

Þeim rökum hefur einnig verið haldið fram að með virkj­un­inni megi auka öryggi raf­orku­dreif­ingar á Vest­fjörðum. Í fyrr­nefndri mats­skýrslu Verkís kemur hins vegar fram að það sé ein­ungis mögu­legt vegna fyr­ir­ætl­ana iðn­að­ar­ráð­herra um að ríkið leggi fram fé til þess að setja upp tengi­virki við Nauteyri í Ísa­fjarð­ar­djúpi og línu þaðan í Geiradal í Króks­firði á Ströndum. Fé einka­að­ila kemur því ekki þar að, ein­ungis rík­is­fram­kvæmdir sem, óháð virkj­un­ar­fram­kvæmdum, gætu aukið öryggi raf­orku­dreif­ingar á Vest­fjörðum.

Því hefur einnig verið haldið fram að með tengi­virk­inu sé verið að leysa for­tíð­ar­vanda. Landsnet birti árið 2009 skýrslu sem ber heitið „Bætt afhend­ingar­ör­yggi raf­orku á Vest­fjörðum.“ Í henni gerði fyr­ir­tækið grein fyrir mögu­legum úrbótum og í kjöl­far hennar var komið upp sjálf­virkri vara­afls­stöð á Bol­ung­ar­vík, til þess að koma í veg fyrir straum­leysi þar og á Ísafirði.

Í árs­skýrslu Orkubús Vest­fjarða fyrir árið 2015 má svo lesa um árang­ur­inn: „Nokkrar óveð­urslægðir fóru yfir Vest­firði á síð­asta ári og sú versta í byrjun des­em­ber. Þetta óveður grand­aði tæp­lega 200 staurum í loft­línu­kerfi OV og rúm­lega 20 tví­stæðum í flutn­ings­kerfi Lands­nets á Vest­fjörð­um. Fyrr á árum hefðu þessir atburðir valdið fleiri sóla­hringa raf­magns­leysi í þétt­býli og dreif­býli en með varafls­stöð Lands­nets í Bol­ung­ar­vík, strenglögnum OV á liðnum árum og auknum við­bún­aði með vara­afls­vélum varð straum­leysi hjá not­endum í lág­marki þrátt fyrir mestu línu­brot í sögu OV.“ Mætti af þessu leiða þær líkur að öryggi raf­orku­dreif­ingar á Vest­fjörðum sé tryggt og að óþarfi sé að fara í virkj­un­ar­fram­kvæmdir til þess eins að leysa vanda­mál sem ekki sé til staðar.

Vill vegi og fasteignagjöld

Eva Sig­ur­björns­dóttir er sveita­stjóri Árness­hrepps, en fram­kvæmd­ar­leyfi þeirra er eitt mik­il­væg­asta skrefið í því ferli að virkj­unin rísi. Samkvæmt 13. gr. Skipu­lags­laga nr. 123/2010 skal hrepp­ur­inn veita það leyfi að teknu til­liti til álits Skipu­lags­stofn­unar um mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmd­anna.

Í sam­tali við Stundina gaf Eva ekki mikið fyrir nið­ur­stöður skýrslu Verkís um umhverf­is­á­hrif virkj­un­ar­innar. Aðspurð um hvort hún væri til­búin í þess­ari miklu rask­anir til þess að fá lóða­gjöld af mann­virkjum tengd virkj­un­inni spurði Eva blaða­mann:

„Hvaðan hefur þú það að þetta séu mjög miklar rask­anir?“

Þegar blaða­maður vís­aði í umhverf­is­skýrsl­una, hvar nið­ur­stöð­urnar eru á þá leið að áhrif virkj­un­ar­innar og fram­kvæmda hennum tengdum á umhverfið séu umtals­verð sagði Eva: „Já, já, ég veit það, já, já. Þessi umhverf­is­skýrsla, þeim ber að vera nei­kvæðir. Þeim ber að taka upp hansk­ann fyrir nátt­úr­una og það er bara gott og gilt. En þú átt ekki að vitna enda­laust í hana sko.“

Á framkvæmdartíma
Á fram­kvæmd­ar­tíma eru áhrif fram­kvæmd­anna óveru­leg, nokkuð eða tals­vert nei­kvæð, nema á mann­virkja­gerð í flokknum sam­fé­lag.

„Það er ekki hægt að horfa ein­göngu á ein­hverjar stað­reyndir.“

Sagðist hún vita hvað væri í húfi, en einnig vita að margt af þeim áhrifum sem fram­kvæmd­irnar myndu hafa væru aft­ur­kræfar. „Þannig það er ekki hægt að horfa ein­göngu á ein­hverjar stað­reyndir, sem að auð­vita eru stað­reyndir, en þetta er að miklum hluta til aft­ur­kræft, það sem verður gert þarna.“

Í umhverf­is­skýrsl­unni er reglu­lega minnst á að fjöl­mörg áhrif fram­kvæmd­ar­innar séu nei­kvæð, en aft­ur­kræf. Þegar betur er skoðað hvað liggi að baki þessu orði, „aft­ur­kræf“ kemur í ljós að þar er um mjög sér­staka túlkun að ræða. Reglu­lega er tekið fram að áhrif virkj­un­ar­innar eru ein­ungis „aft­ur­kræf ef mann­virki yrðu fjar­lægð.“ Skýrslan gerir því ein­ungis ráð fyrir því að áhrif virkj­un­ar­innar á umhverfið séu aft­ur­kræf, ef virkj­unin sjálf og öll mann­virki henni tengd séu fjar­lægð.

Einnig seg­ist Eva ekki gefa mikið fyrir þau rök að þarna sé verið að raska ósnortnu landi. „Já, sem eng­inn er að skoða. Mjög, mjög fáir, sko.“ Segir hún að þeir sem fari á þetta svæði gangi yfir­leitt með­fram strönd­inni úr einum firði í annan og engar skipu­lagðar ferðir séu á svæðið. „Ég bara hlusta ekki á svona. Þú veist, það þarf að fórna ein­hverju.“

Á rekstrartíma
Á rekstr­ar­tíma Áhrif virkj­un­ar­innar verða óveru­leg, nokkuð eða tals­vert nei­kvæð, nema á mann­virki og mann­virkja­gerð í flokknum sam­fé­lag og ferða­mennska og úti­vist.

Samgöngur áfram í ólestri

Eitt af þeim atriðum sem Eva lagði hvað mesta áherslu á var að með virkj­un­inni myndu sam­göngur á svæð­inu batna til muna. „Það er það sem við teljum að sé að ger­ast núna, ekki bara með þess­ari virkjun, heldur ýmsu öðru sem að leiðir af, eins og til dæmis bættar sam­göngur. Það er komið inn á sam­göngu­á­ætlun að klára Veiði­leysu­háls og því verður frekar flýtt heldur en hitt, vegna þess­ara áætl­anna.“

Segir hún að beðið hafi verið um bættar sam­göngur í ára­tugi án þess að nokkuð hafi gerst. „Það hafa komið lof­orð af og til og svo hafa þau flosnað upp og verið svikin jafn­vel. Núna erum við komin með eitt tromp á hendi sem getur hjálpað okkur.“

Í frum­mats­skýrslu Verkís er þó tal­vert var­legar stigið til jarðar í til­lögum að því hvernig bæta þurfi vega­kerfið til þess að fram­kvæmdir geti gengið eðli­lega fyrir sig. Af þeim 36,3 kíló­metrum vega sem leggja á eða lag­færa sam­kvæmt skýrsl­unni eru 24,9 kíló­metrar aðkomu­vegir innan virkj­un­ar­svæðis. Hinir 11,4 kíló­metr­arnir sem ráð­ast á í fram­kvæmdir á verða byggðir upp þannig þeir geti borið umferð þunga­vinnu­véla, en verða ekki mal­bik­aðir. Í skýrsl­unni kemur fram: „Ekki er gert ráð fyrir að veg­ur­inn muni upp­fylla staðla Vega­gerð­ar­innar og verður hann lag­aður og end­ur­bættur á fram­kvæmd­ar­tíma eins og nauð­syn­legt og hag­kvæmt verður talið. Ekki verður lagt bundið slit­lag á veg­inn.“

Þrátt fyrir þetta full­yrðir Eva að fram­kvæmd­irnar myndu „hafa mikil áhrif á betrun til bættra sam­gangna.“

Drangamenn vilja ekki virkjun á sitt land

Sveinn Krist­ins­son, einn eig­enda jarð­ar­innar Dranga á Ströndum er ekki eins sann­færður. „Það er full ástæða til að skoða þessi mál öll með opnum huga út frá nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­miðum. Þarna eru margar stórar spurn­ingar uppi,“ sagði hann um þau virkj­un­ar­á­form sem eru á Ófeigs­fjarð­ar­heiði, sunnan við jörð hans.

Ljóst er að virkj­unin og uppi­stöðu­lón hennar munu skerða mjög víð­erni sem nær af þessu svæði og norður á Horn­strandir. Undir uppi­stöðu­lónið munu hverfa vötn. Þá þurrkast Eyvind­ar­fjarð­ará upp.

„Við Dranga­menn látum ekki bera á okkur fé.”

„Þetta þarf allt að vega og meta. Þá þarf að taka inn í myndin að tæp­lega tveir millj­arðar króna af almannafé fara í að byggja tengi­virki til að koma raf­magn­inu inn á lands­netið.  Það liggur einnig fyrir að þessi virkjun skiptir engu í því sam­hengi að tryggja raf­orku­ör­yggi Vest­firð­inga,” segir Sveinn.  

Sveinn Kristinsson
Sveinn Krist­ins­son Sveinn frá Dröngum vill að menn staldri við og skoði gaum­gæfi­lega hvort virkjun á Ófeigs­fjarð­ar­heiði eigi rétt á sér.

Hann seg­ist ekki vilja kveða upp úr um það hvort þessi virkjun eigi rétt á á sér. Almennt sé hann þó á móti því að ganga í ber­högg við nátt­úr­una. Dranga­menn hafa aldrei ljáð máls á því að leyfa virkjun á sínu landi. „Við fengum fyr­ir­spurn um það hvort við vildum láta af hendi vatns­rétt­indi. Því var umsvifa­laust hafnað. Í land Dranga kemur ekk­ert slíkt. Við Dranga­menn látum ekki bera á okkur fé,“ segir Sveinn. 

Skerða óbyggðir um allt að 40%

Í sept­em­ber 2009 skil­aði Umhverf­is­stofnun umsögn um til­lögu að aðall­skipu­lagi Árness­hrepps vegna Hval­ár­virkj­unar. Að mati stofn­un­ar­innar er full­yrð­ingin um tak­mörkuð sjón­ræn áhrif fram­kvæmd­ar­innar ekki á rökum reist. „Umhverf­is­stofnun telur að áætl­aðir fram­ræslu­skurðir og flutn­ings­línur hafa mikil nei­kvæð sjón­ræn áhrif í órösk­uðu lands­svæði. Umhverf­is­stofnun tekur ekki undir að 30 m[etra] há jarð­vegs­stífla hafi í reynd litla sjón­mengun í för með sér.“ Einnig segir stofn­unin eða skurð­irnir og lín­urnar geti haft veru­lega nei­kvæð áhrif á ferða­mennsku.

Óbyggt víðerni minnkar
Óbyggt víð­erni minnkar Víðerni mun skerð­ast um allt að 40% við virkj­un­ina, að mati for­manns Land­verndar.

Ófeigs­fjarð­ar­heiðin er hluti af stærsta sam­fellda óbyggða víð­erni Vest­fjarða, alls um 1635 km2, sem nær suður frá Stein­gríms­fjarð­ar­heiði um Dranga­jök­ul, allt norður um Horn­stranda­friðland. Veitu- og vega­fram­kvæmdir á Ófeigs­fjarð­ar­heiði munu að mati Ver­kís skerða þetta víð­erni um 14% en 21% þegar lína yfir Ófeigs­fjarð­ar­heiði niður að Naut­eyri á Langa­dals­strönd við Ísa­fjarð­ar­djúp er tekin með í dæm­ið.

Pró­sentu­töl­urnar segja þó ekki alla sög­una, því virkj­un­ar­fram­kvæmdir ásamt línu yfir að Naut­eyri við Ísa­fjarð­ar­djúp munu brjóta ofan­greint víð­erni upp í tvo mis­stóra hluta. Segir Snorri Bald­urs­son að syðri hlut­inn sem eftir verður sé það lít­ill að hann nái vart máli sem óbyggt víð­erni. „Því má vel rök­styðja að virkj­un­ar­fram­kvæmdir skerði víð­erni á aust­an­verðum Vest­fjörðum um allt að 40%.“

Að auki er áætlað að vatns­magn í vatns­mesta fossi Stranda, Hvalár­fossi, minnki um tvo þriðju hluta og hann því hverfa að mestu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Virkjanir

GreiningVirkjanir

Bjarni gerði ekki „nokkra til­raun“ til sátta

Ráðherra orku- og umhverf­is­mála ætl­aði ekki að ganga gegn til­lögum verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sinni að flokkun átta virkj­un­ar­kosta. Tillagan var ekki afgreidd úr rík­is­stjórn þar sem ráð­herrar Vinstri grænna töldu að afmarka þyrfti virkj­ana­kosti sem lagt var til að vernda. Í stað þess að leiða ráð­herra flokk­anna til sam­ráðs um málið sleit for­sæt­is­ráð­herra rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.
FréttirVirkjanir

Leggja Zephyr skýrar línur varð­andi áform um risa­vaxið vind­orku­ver

Vind­orku­ver sem áformað er á Fljóts­dals­heiði yrði líkt og aðrar slíkar virkj­anir án for­dæma á Íslandi en sker sig að auki úr að því leyti að upp­sett afl þess yrði tvö­falt meira en í öðrum fyr­ir­hug­uðum vind­orku­verum. „Hér er því um að ræða mjög umfangs­mikla fram­kvæmd sem krefst mik­ils fjölda vind­mylla og getur haft mikil umhverf­is­á­hrif í för með sér,“ segir í áliti Skipu­lags­stofn­unar á verk­efn­inu.

Mest lesið undanfarið ár