Mat­væla­stofnun getur veitt svína­bændum frest allt fram til 1. jan­úar 2025 til fylgni við ákvæði er varða hreyf­ingu, hvíld og aðrar þarfir dýr­anna. Mynd: Shutterstock

Telur nauðsynlegt að koma á fót dýralögreglu

Frestir til að fram­fylgja lögum um vel­ferð dýra geta tak­markað virkni þeirra í fjölda ára eða jafn­vel ára­tugi. Þeir vinna gegn til­gangi lag­anna, oft með hrika­legum afleið­ingum fyrir dýrin sem þeim er ætlað að vernda. Þetta segir Alex­andra Jóhann­es­dóttir lög­fræð­ingur, sem skoðað hefur lögin og eft­ir­fylgni með þeim ofan í kjöl­inn.

Meist­ara­rit­gerð Alexöndru Jóhann­es­dóttur í lög­fræði við laga­deild HÍ fjallar um brot á lögum um vel­ferð dýra nr. 55/2013 en í henni er lög­gjöfin skoðuð út frá brotum og eft­ir­fylgni með henni. Alex­andra hlaut 9 í ein­kunn fyrir rit­gerð­ina, þá hæstu sem gefin var í lög­fræði á þess­ari önn.

Eitt af því sem fylgdi hinum nýjum lögum um vel­ferð dýra er að fram­kvæmd þeirra var ein­földuð til muna og hún var öll færð undir hatt Mat­væla­stofn­unar. Alex­andra segir að þó það hafi verið til bóta að ein­falda fram­kvæmd lag­anna hafi skrif hennar sýnt fram á að margt sé að athuga við starfs­hætti Mat­væla­stofn­unar.

Það fyrsta sem hún varð vör við var að Mat­væla­stofnun sinnti ekki upp­lýs­inga­skyldu sinni sem skyldi. „Það tók mig um eitt og hálft ár að skrifa rit­gerð­ina. Það hefði verið mun styttri tími ef Mat­væla­stofnun hefði sinnt upp­lýs­inga­skyldu sinni. Ég sendi inn margar fyr­ir­spurnir. Sumum var svarað neit­andi, í ein­hverjum til­fellum fékk ég tak­mark­aðar upp­lýs­ingar um mál en í öllum til­fellum vörð­uðu þau gælu­dýr. Í lang­flestum til­fellum var engu svarað. Nú er reyndar búið að breyta upp­lýs­inga­stefnu stofn­un­ar­innar og von­andi hefur það skilað sér í bættu upp­lýs­inga­flæði. Ég hef samt engin svör fengið.“

Henni reynd­ist auð­veld­ast að fá upp­lýs­ingar um brot gegn gælu­dýrum en þegar kom að brotum gegn hús­dýrum eða nytja­dýrum varð fátt um svör. Hún fékk þær skýr­ingar að málin væru álitin einka­mál aðila, að þau vörð­uðu ekki almanna­hags­muni. „Auðvitað varða þessi mál almanna­hags­muni. Ef bændur brjóta lög með því að fara illa með dýrin sín er það ekki þeirra einka­mál.“

Á end­anum þurfti hún að fara í gegnum lög­reglu­emb­ætti um allt land til að afla sér upp­lýs­inga, sem gekk betur og gerði henni kleift að ljúka verk­inu. „Ég fékk mjög grein­ar­góð svör frá lög­regl­unni. Það var greini­legt á sam­tölum mínum við lög­reglu­menn víða um land að þeim þótti óþægi­legt að geta ekki að eigin frum­kvæði rann­sakað mál, án milli­göngu Mat­væla­stofn­unar.“

Ekki farið fram á rannsókn á háalvarlegum málum

Ef brotið er gegn dýrum og það er til­kynnt lög­reglu þarf hún að bera undir Mat­væla­stofnun hvort eigi að fara í rann­sókn. Hafni Mat­væla­stofnun því aðhefst lög­regla ekk­ert. Það telur Alex­andra stóran og alvar­legan galla á lög­gjöf­inni. „Þetta verk­lag er ekki í lögum ann­ars staðar á Norð­ur­löndum. Þar er ekki ein­hver eft­ir­lits­að­ili – sem er ekki óháður – sem hefur ákvörð­un­ar­valdið um það hvort farið er í sak­sókn í svona málum.“

Stund­ar­innar hafði sam­band við Mat­væla­stofnun og óskaði eftir mati á fyr­ir­komu­lag­inu. Í svar­inu segir: „Mat­væla­stofnun hefur ekki athuga­semdir við þetta fyr­ir­komu­lag. Hafa verður í huga að skv. 8. og 9. gr. laga um vel­ferð dýra skal til­kynna illa með­ferð á dýrum eða slæman aðbúnað til MAST eða lög­reglu, ef lög­reglu berst til­kynn­ing skal hún til­kynna slík mál til MAST. MAST hefur skyldur og heim­ildir til að kanna hvort slíkar til­kynn­ingar séu á rökum reistar. Jafn­framt sinnir MAST reglu­bundnu eft­ir­liti með dýra­haldi og hefur yfir að ráða eft­ir­lits­kerfi og sér­þekk­ingu á þessu sviði. Með lög­unum var reynt að skil­greina betur verka­skipt­ingu milli MAST og lög­reglu­yf­ir­valda og ein­skorða hlut­verk lög­regl­unnar við að aðstoða starfs­menn MAST þegar slíkt er nauð­syn­legt vegna almennra vald­heim­ilda lög­regl­unnar.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dýraníð

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár