Umdeildur ferill nýs forsætisráðherraefnis

Dýra­lækn­ir­inn fyrr­ver­andi Sigurður Ingi Jóhanns­son er nýtt for­sæt­is­ráð­herra­efni Fram­sókn­ar­flokks­ins. Ferill hans á ráð­herra­stóli hefur verið umdeildur. Hann studdi Sigmund ein­dregið í skatta­skjóls­mál­inu og kvart­aði undan því að flókið væri að eiga pen­inga á Íslandi.

Umdeildur ferill nýs forsætisráðherraefnis
Sigurður Ingi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn býður hann fram sem nýjan for­sæt­is­ráð­herra, en ekki er ljóst hvort Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sam­þykki það. Mynd: Pressphotos

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur teflt fram sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­anum Sigurði Inga Jóhanns­syni sem nýjum for­sæt­is­ráð­herra, í kjöl­far þess að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son féllst á að stíga til hliðar vegna skatta­skjóls­máls­ins og við­bragða hans við því.

Sigurður Ingi hefur hins vegar langt því frá verið óum­deildur frá því hann tók við ráð­herra­stóli árið 2013. Hann hefur meðal ann­ars verið gagn­rýndur fyrir að stíga út fyrir vald­svið sitt og sýna óvand­aða stjórn­sýslu­hætti. Í máli Sig­mundar Davíðs studdi hann for­sæt­is­ráð­herra, féllst á skýr­ingar hans og sýndi því skiln­ing, að erfitt væri að eiga pen­inga á Íslandi.

Studdi Sigmund Davíð eindregið

Í við­tölum eftir Kast­ljóss­þátt, þar sem Sig­mundur sagði ósatt og fram kom að hann hefði selt eig­in­konu sinni sinn hlut í skatta­skjóls­fé­lagi þeirra hjóna á einn dollar dag­inn áður en laga­breyt­ingar tóku gildi sem breytti stöðu skatta­skjóls­fé­laga, sagði Sigurður Ingi að ekk­ert nýtt hefði komið fram í mál­inu í Kast­ljóss­þætt­inum.

Hér má lesa um 17 rang­færslur og til­raunir til afvega­leið­ingar í máli Sig­mundar.

Sigurður sagði að „full­kom­lega eðli­leg atburð­ar­rás“ hefði verið í mál­inu. „Ja, ég átti í sjálfu sér aðeins von á kannski ann­ars konar fram­setn­ingu heldur en kom fram en þarna sem þarna kom fram er í sjálfu sér ekk­ert nýtt sem að Sig­mundur Davíð, hvað varðar hann og for­sæt­is­ráð­herra­hjónin, sem þau, hann hefur ekki lýst yfir í greina­gerðum eða við­tölum.“

„Það er auð­vitað aug­ljós­lega tals­vert  flókið að eiga pen­inga á Íslandi.“

 

Þá sagði Sigurður Ingi að það væri flókið að eiga fé á Íslandi. „Það er auð­vitað aug­ljós­lega tals­vert  flókið að eiga pen­inga á Íslandi. Það er ekk­ert að því að fólk sé efnað á Íslandi,“ sagði hann. „Einhvers staðar verða pen­ing­arnir að vera,“ svar­aði hann þegar hann var spurður hvort eðli­legt væri að for­sæt­is­ráð­herra ætti pen­inga á Tortóla. „Og tals­verður mis­skiln­ingur að um sé að ræða skatta­skjól eða aflands­fé­lög eins og menn hafa greint frá.“

Stóryrtur vegna umræðu um hagsmuni Sigmundar

Sigurður Ingi lét stór orð falla vegna þess að þing­menn leyfðu sér að ræða um hags­muni Sig­mundar Davíðs í gegnum aflands­fé­lag eig­in­konu hans, en þing­menn höfðu gert athuga­semdir við að Sig­mundur lét ekki vita af því að eig­in­kona hans ætti félag sem gert hefði hálfs millj­arðs króna kröfur í slitabú íslensku bank­anna.

„Mér er nán­ast orða­vant yfir því sem er borið á borð í þing­inu. Ég hélt við værum komin yfir þann lág­kúru­lega kafla að draga hér fjöl­skyldur þing­manna og kjör­inna manna hér inn í ræðu­stól Alþingis. Ég hélt við værum komin lengra á sviði jafn­réttis og skiln­ings á því að við séum öll ein­stak­lingar. Ég trúi því varla að við ætlum aftur niður á það lág­kúru­stig sem við vorum á fyrir nokkrum árum þar sem það var hefð­bundið að stunda hér aur­kast á hvern og einn ein­stak­ling úti í bæ héðan úr ræðu­stól Alþingis.“

Hætti við friðlýsingu í skyndi

Sigurður Ingi hóf feril sinn innan nýrrar rík­is­stjórnar sem umhverf­is­ráð­herra með því að segja frá þeirri skoðun sinni að leggja ætti niður umhverf­is­ráðu­neytið. 

Sumarið 2013 hætti Sigurður Ingi, sem var umhverf­is­ráð­herra, við að und­ir­rita frið­lýs­ing­ar­skil­mála fyrir Þjórs­ár­ver sama dag og til hafði staðið að gera það. Bæði umhverf­is­ráðu­neytið og Umhverf­is­stofnun höfðu sent út boðskort vegna atburð­ar­ins. Ákvörð­unin var gagn­rýnd harð­lega af umhverf­is­vernd­ar­sinnum og stjórn­ar­and­stöð­unni. Skýr­ingar Sigurðar Inga voru þær að odd­viti Rangár­þings ytra hefði gert athuga­semdir við frið­lýs­ing­una, en það reynd­ist hafa verið rangt.

Sigurður Ingi var því gagn­rýndur fyrir að gefa mis­vísandi skýr­ingar og svo fyrir að hætta við frið­lýs­ing­una á síð­ustu stundu. Aðrar skýr­ingar voru þær að Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra og Lands­virkjun hefðu gert athuga­semdir við frið­lýs­ing­una.

Forsætisráðherraefni og þingflokksformaður
For­sæt­is­ráð­herra­efni og þing­flokks­for­maður Sigurður Ingi Jóhanns­son með Ásmundi Einari Daðasyni.

Umdeild stjórnsýsla

Aðstoð­ar­maður Sigurðar Inga boð­aði bloggar­ann Agnar Kristján Þor­steins­son á fund vegna und­ir­skrift­ar­söfn­unar hans gegn lækkun veiði­gjalda og var sent afrit af fund­ar­boð­inu á yfir­mann Agnars hjá Háskóla Íslands. Agnar kvart­aði undan því að verið væri að ógna atvinnu­ör­yggi hans með því að blanda yfir­manni hans inn í það sem hann gerði í frí­tíma sínum.

Þá vakti athygli þegar Sigurður Ingi til­kynnti á vef umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins að hann hefði ákveðið að aft­ur­kalla lög um nátt­úru­vernd, sem taka áttu gildi hálfu ári síðar. Hann árétt­aði síðar að hann hyggð­ist leggja fram laga­frum­varp um að nátt­úru­vernd­ar­lögin yrðu felld úr gildi, fremur en að aft­ur­kalla þau, enda hefur ráð­herra ekki vald til slíks.

Leyfði saurmengaðan bjór

Sigurður Ingi virti álit heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins að vettugi þegar hann heim­il­aði sölu og dreif­ingu á hvala­bjór. Heil­brigð­is­eft­ir­lit Vest­ur­lands og Mat­væla­stofnun höfðu kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hvala­mjölið, sem notað var í bjór­inn, stæð­ist ekki skil­yrði mat­væla­laga. Sigurður greip fram fyrir hend­urnar á heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu og leyfði söl­una. Ákvörðun ráð­herra var ekki til­kynnt form­lega, heldur var sagt frá henni í frétta­miðl­inum Skessu­horni. Mjölið í bjórnum var unnið úr „þarma­inni­haldi“ hval­anna og var því saur­mengað, auk þess að vera allt að fimm ára gam­alt.

Starfsmenn Fiskistofu mótmæltu

Ein umdeildasta ákvörðun Sigurðar Inga var að flytja Fiski­stofu út á land með skömmum fyr­ir­vara. Ætlast var til þess að starfs­menn­irnir flyttu til Akur­eyrar. Starfs­menn Fiski­stofu sendu frá sér yfir­lýs­ingu í sept­em­ber 2014 þar sem þeir kvört­uðu undan því að flutn­ing­ur­inn væri ólög­legur og ófag­legur.

Sigurður Ingi leit­aði ekki til Alþingis áður en hann tók ákvörð­un­ina, og því taldi starfs­fólkið flutn­ing­inn vera ólög­legan.

Í skýr­ingum sínum til Umboðs­manns Alþingis dró Sigurður Ingi í land og kvaðst hafa talað um „áform“, en ekki ákvörðun. Hljóð­upp­tökur og ummæli í fjöl­miðlum sýndu hins vegar fram á að vissu­lega hefði orðið „ákvörðun“ verið notað í umræðu gagn­vart starfs­mönnum.

„Vinnu­brögð af þessu tagi ættu ekki að tíðkast í sið­uðu sam­fé­lagi.“

Starfs­menn­irnir sögðu í yfir­lýs­ingu að vinnu­brögð Sigurðar Inga væru ekki boð­leg í sið­uðu sam­fé­lagi og sök­uðu hann um rang­færslur: „Vinnu­brögð af þessu tagi ættu ekki að tíðkast í sið­uðu sam­fé­lagi. Und­an­farna daga hefur ráð­herra ítrekað látið í veðri vaka í við­tölum við fjöl­miðla að unnið sé að verk­efn­inu í sam­ráði við starfs­menn stofn­un­ar­innar. Starfs­fólk Fiski­stofu vísar þessu alfarið á bug.“

Starfs­menn­irnir fjöl­menntu tugum saman í ráðunu­eyti Sigurðar Inga og mót­mæltu þar. Starfs­fólkið sagði að það hefði reynt að ná í Sigurð í þrjár vikur og því ákveðið að mæta í ráðu­neytið. 

Um 15 til 20 manns sögðu upp störfum á Fiski­stofu, en á end­anum var ákveðið að fiski­stofu­stjór­inn sjálfur flytti norður en starfs­menn­irnir ekki. Þeir fögn­uðu „fulln­að­ar­sigri“.

Fyrrverandi dýralæknir

Sigurður Ingi er fyrr­ver­andi bóndi og hér­aðs­dýra­læknir. Hann fædd­ist 20. apríl 1962 og er því að verða 54 ára gam­all. 

Árin 1987 til 1994 var hann bóndi í Dalbæ í Hruna­manna­hreppi. Þá starf­aði hann sam­hliða bústörfum sem sjálf­stætt starf­andi dýra­læknir árin 1990 til 1995. Hann var dýra­læknir hjá Dýra­lækna­þjón­ustu Suð­ur­lands árin 1996 til 2009 og odd­viti Hruna­manna­hrepps frá 2002, allt þar til hann sett­ist á þing árið 2009 í kosn­ing­unum í kjöl­far efna­hags­hruns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár