Umami pizza

Óskar Ericsson sýnir okkur hvernig búa má til góm­sætar eld­bökur með lít­illi fyr­ir­höfn.

Sagt er að þegar fyrstu pizzurnar komu til Íslands hafi íslenskar fjöl­skyldur drukkið mjólk með pizzu, enda van­inn að drekka mjólk með brauði. Síðan fyrstu „pressu­gerskökur með áleggi“ voru snæddar hér á landi hefur mikið vatn runnið til sjávar. Í lok síð­ustu aldar dúkk­uðu pizzustaðir upp eins og sól­bað­stofur, og pizzan varð sá matur sem var hvað mest fram­andi og vin­sælastur á íslenskum heim­ilum. Gömlu pizzastaðirnir eru nú jafn miklir forn­munir og hverf­is­sjoppan eða víd­eó­leigan, þótt mér skilst reyndar að Hrói Höttur lifi enn ein­hvers staðar góðu lífi og að Pizza 67 hafi verið að opna aftur á Grens­ás­vegi fyrir stuttu.

Ein 16 tommu pizza með þremur álegg­s­teg­undum kostar nú hátt í 3000-4000 kr., sem er að mati grein­ar­höf­undar aðeins of mikið, ekki síst í ljósi þess að hrá­efnið kostar kannski um 300-400 kr. á pizzu. Heima getur þú auð­veld­lega búið til frá­bæra pizzu sem bragð­ast betur en aðkeypt pizza.

Gott deig

Grunn­ur­inn að góðri pizzu er gott deig. Til þess að deigið verði gott þarf að nota gott hveiti og hnoða deigið vel og lengi. Eft­ir­far­andi upp­skrift dugir í fjórar 12-16 tommu pizzur. Það fer eftir því hversu þunnur botn­inn er hversu stórar þær eru. Gott er að gera stóran skammt af deigi, bæði vegna þess að einn þurr­ger­s­poki dugir í akkúrat eitt kíló af hveiti og þá fer ekk­ert til spillis, en eins vegna þess að þótt fyr­ir­höfnin sé ekki mjög mikil þá er fínt að eiga 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár