Mynd: Stundin / Óscar Ericsson

Svona getur þú gert þitt eigið pasta

Óskar Ericsson skrifar um kosti þess að hægja á líf­inu og gera hluti vand­lega, en hann lítur svo á að hægt sé að eyða tím­anum í ómerki­legri hluti en að elda mat frá grunni og vanda sig vel við verkið.

Samkvæmt nýlegri skýrslu Hag­stof­unnar vinna Íslend­ingar að með­al­tali 45,5 tíma á viku. Þetta þýðir sem sagt að heila vinnu­viku og hálfan laug­ar­dag sitja Íslend­ingar á bak­við skrif­borð og svara e-mailum og klára excel-skjöl. Á Íslandi þykir aðdá­un­ar­vert að vera dug­legur. Hvort sem það þýðir að vera dug­legur að vakna snemma, dug­legur í rækt­inni, dug­legur að hjóla til eða frá vinnu eða baka sautján sortir. Það skiptir máli að vera ekki álit­inn latur. Sam­visku­bitið og með­virknin fylgir okkur frá blautu barns­beini og er að mörgu leiti ein­hvers konar drif­kraftur fyrir Íslend­inga. Sem er svo sem engin furða þegar maður skoðar sögu þjóð­ar­innar og áttar sig á því að fólk þurfti ein­fald­lega að vera dug­legt til að lifa af. Ef þú lagðir ekki hönd á plóg eða rerir til sjós voru góðar líkur á því að þú og þínir myndu ein­fald­lega ekki lifa vet­ur­inn af. Þetta frum­stæða sur­vi­val-instinct ríkir enn í okkur Íslend­ingum og fyrir vikið vinnum við allt of mikið. Sam­fé­lagið ætl­ast líka til þess að hér sé unnið mikið og því miður tíðkast það á sumum vinnu­stöðum að sam­visku­samt og dug­legt fólk, eða með­virkt, sé notað til þess að bjarga málum og halda öllu gang­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár