Mynd: Kristinn Magnússon / Stundin

Sjá möguleikana í Hafnarfirðinum

Hjónin Ýr Kára­dóttir og Anthony Bacigalupo búa í gömlu, töfr­andi húsi í Hafn­ar­firði, ásamt dóttur sinni, Míu Ísabellu. Heimilið er sveipað róm­an­tískum sveita­blæ sem er undir sterkum áhrifum frá bæði Kali­forníu og Íslandi.

Ýr og Anthony byrja á því að bjóða blaða­manni og ljós­mynd­ara upp á ilm­andi gott kaffi og nýbakað bakk­elsi úr nálægu bak­aríi. „Það eru bæði kostir og gallar við að hafa bak­arí hérna á horn­inu,“ segir Ýr. „Þetta er æðis­legt bak­arí, þannig að við förum mjög oft þangað og náum okkur í eitt­hvað með kaff­inu. Stundum förum við meira að segja og sækjum okkur anda­brauð, löbbum niður að læk og gefum önd­unum.“ 

Mía, þriggja ára, felur sig inni í tjaldi fyrstu mín­út­urnar eftir að okkur ber að garði, en læð­ist ber­fætt fram þegar líður á heim­sókn­ina. „Hún er á ákveðnu tíma­bili núna þar sem hún harð­neitar að fara í buxur eða sokka­buxur,“ segir Ýr hlæj­andi og tekur dóttur sína í fangið.

Einstakur sveitastíll

Anthony kemur frá Kali­forníu í Banda­ríkj­unum og heim­ilið ber þess merki. „Við ferð­umst mjög oft til Kali­forníu til þess að heim­sækja fjöl­skyldu hans og nýtum oft ferð­irnar til þess að kaupa okkur eitt­hvað á heim­ilið,“ segir Ýr. 

Heimilið er í óhefð­bundnum sveita­stíl undir sterkum áhrifum bæði frá frá Kali­forníu og Íslandi, blanda sem ekki hefur örugg­lega ekki sést 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár