Sigmundur, Vigdís og Ásmundur greiddu öll atkvæði með 110 ára reglunni

Þingmenn Fram­sókn­ar­flokks­ins kalla eftir afnámi regl­unnar, en henni hefur aldrei verið beitt.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, Vigdís Hauks­dóttir for­maður fjár­laga­nefndar og Ásmundur Einar Daðason þing­flokks­for­maður studdu öll frum­varpið til laga um opin­ber skjala­söfn sem festi 110 ára regl­una svo­nefndu í sessi. 

Eyjan greindi frá því í gær að þing­flokkur fram­sókn­ar­manna hefði ákveðið að leggja fram frum­varp sem miðar að því að fella regl­una úr gildi. Er full­yrt í frétt vef­mið­ils­ins að undir regl­una heyri „gögn er varða upp­gjör á þrota­búi föllnu bank­anna“ en hið sama kemur fram á vef Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hið rétta er, að því er fram kemur í svari mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Vigdísar Hauks­dóttur frá því í fyrra að regl­unni hefur aldrei verið beitt. 

Um er að ræða sér­staka und­an­tekn­ing­ar­reglu sem hljóðar svo: „Þegar sér­stak­lega stendur á getur opin­bert skjala­safn ákveðið að synja um aðgang að skjali sem er yngra en 110 ára, svo sem þegar það hefur að geyma upp­lýs­ingar um einka­mál­efni ein­stak­lings sem enn er á lífi eða um almanna­hags­muni er að ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár