Aðstoðarkona Gunnars Braga: Sögusagnir um framhjáhald birtingarmynd kvenhaturs

Tíma­ritið Séð og heyrt full­yrðir að Margrét Gísla­dóttir færð á milli ráðu­neyta að beiðni eig­in­konu utan­rík­is­ráð­herra. Margrét segir sögu­sagnir sem þessar ekki myndu eiga sér stað ef hún væri karl­maður.

Aðstoðarkona Gunnars Braga: Sögusagnir um framhjáhald birtingarmynd kvenhaturs

Í nýjasta tölu­blaði Séð og heyrt er full­yrt að Margrét Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­kona bæði Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra og Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra hafi verið færð úr utan­rík­is­ráðu­neyt­inu yfir í for­sæt­is­ráðu­neytið að beiðni eig­in­konu Gunnars Braga. Fram hefur komið að Gunnar Bragi stendur í skiln­aði við eig­in­konu sína og hefur flutt lög­heim­ili sitt til for­eldra sinna í Skaga­firði.

Í sam­tali við Stundina segir Margrét sögu­sagnir um meint sam­band sitt við Gunnar Braga Sveins­son ein­fald­lega birt­ing­ar­mynd kven­hat­urs í sam­fé­lag­inu. „Þetta er vand­ræða­legt og ógeðs­lega kjána­legt. Það myndi eng­inn segja þessar sögur ef ég væri karl­maður. Ef ég væri karl­maður væri öllum sama. Þetta er ein birt­ing­ar­mynd þess,“ segir Margrét. 

„Ef ég væri karl­maður væri öllum sama.“

Færð að ósk Sigmundar

Í frá­sögn á vef Séð og heyrt er boðuð frek­ari umfjöllun um málið í blað­inu. „Sagt er að Margrét Gísla­dóttir, fyrrum aðstoð­ar­kona Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra, sem flutt var í for­sæt­is­ráðu­neytið að kröfu eig­in­konu ráð­herr­ans sem hann stendur nú í skiln­aði við, sé dóttir séra Gísla Guð­munds­sonar prests í Glæsibæ í Skaga­firði.“

Margrét hafnar sögu­sögnum og frétta­flutn­ingi Séð og heyrt á marg­vís­legum for­sendum. „Samstarf okkar var fag­legt, við erum fag­fólk,“ segir Margrét, og bætir því að ekk­ert nema fag­leg vinnu­brögð hafi ráðið því að hún var færð á milli ráðu­neyta, frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í for­sæt­is­ráðu­neytið. „Ég var færð til að beiðni for­sæt­is­ráð­herra. Ég var bara lánuð. Það var óskað eftir aðstoð minni í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Síðan fram­lengd­ist það, og ég end­aði á því að vera í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í níu mán­uði, fór í lok mars og var út jan­úar,“ svarar Margrét spurð um hina raun­veru­lega ástæða þess að hún fór á milli ráðu­neyta.

Utanríkisráðherra
Utan­rík­is­ráð­herra Margrét var aðstoð­ar­maður Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra í tæpt ár.

„Ég var færð til að beiðni for­sæt­is­ráð­herra.“

Rangfeðruð

Hvað umfjöllun Séð og heyrt varðar segir Margrét blaðið hafa náð því að fara með fleipur í öðru hverju orði. „Ég var að opna síð­una. Þetta er „hilar­íus“, í fyrsta lagi. Þetta er svo mikið kjaftæði að hálfa væri nóg. Þeim tekst að fara rangt með í öðru hverju orði. Í fyrsta lagi er ég frá Glaumbæ, ekki Glæsibæ. Í öðru lagi var ég flutt í for­sæt­is­ráðu­neytið að kröfu utan­rík­is­ráð­herra. Í þriðja lagi er ég dóttir Gísla Gunn­ars­sonar en ekki Gísla Guð­munds­sonar. Þar fyrir utan er Gísli Guð­munds­son prestur í Glæsibæ í Skaga­firði ekki til,“ segir Margrét.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár